25 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 2024/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 204/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A  gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. febrúar 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 20. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. mars 2026. Með bréfi, dags. 18. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 20. maí 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög vegna þess að hún hafi ekki mætt á hópfund þann 20. janúar 2026. Daginn áður, eða þann 19. janúar 2026 hafi kærandi verið veik og kastað upp allan daginn. Kærandi hafi sofið mjög lítið um nóttina og því ekki séð skilaboðin um fundinn frá Vinnumálastofnun. Kærandi þjáist af langvinnum bakflæðissjúkdómi í vélinda (GERD) sem valdi stundum alvarlegum einkennum eins og ógleði og uppköstum. Kærandi hafi lagt fram læknisvottorð sem staðfesti heilsufarsvandamál hennar. Læknisvottorðið sé því miður á B þar sem kærandi hafi farið í rannsóknir og læknisskoðun í C. Skjalið hafi þó verið þýtt og útskýrt fyrir Vinnumálastofnun af starfsmanni þeirra.

Kærandi hafi aldrei áður misst af fundi hjá Vinnumálastofnun og hafi vitað að umræddur fundur hafi verið mikilvægur. Nokkrum dögum síðar hafi kærandi fengið tölvupóst þar sem henni hafi verið sagt að koma á fund hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi haldið að fundurinn tengdist þessu máli en þegar hún hafi mætt hafi komið í ljós að fundurinn snerist ekki um þetta mál. Á fundinum hafi einfaldlega verið spurt hvaða störf myndi henta kæranda og hvort upplýsingar um hana í kerfinu væru réttar. Kærandi hafi þar útskýrt fyrir starfsmanni Vinnumálastofnunar hvað hafi nákvæmlega gerst þann dag og hvers vegna hún hafi misst af fundinum. Kærandi hafi síðan fengið svar þar sem henni hafi verið sagt að hún þyrfti að sanna að hún hafi verið veik. Kærandi hafi þá sent öll læknisgögn sem hafi staðfest veikindi hennar. Þrátt fyrir það hafi henni verið tilkynnt að Vinnumálastofnun stæði við sína ákvörðun og að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar í tvo mánuði. Í febrúar hafi kærandi fengið greiðslu upp á um 211.000 kr. en samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eigi hún nú að missa allar greiðslur í tvo mánuði. Kærandi óski eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðun Vinnumálastofnunar, taki tillit til heilsufarsástæðna hennar og þeirra gagna sem hún hafi lagt fram og að viðurlögin verði felld niður.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar eru þau atriði sem fram komi í kæru ítrekuð. Kæranda hafi liðið illa daginn fyrir boðaðan fund og því einfaldlega reynt að sofa það af sér. Kærandi sitji ekki með símann í hendinni heldur reyni að hvíla sig þegar henni líði illa. Kærandi hafi misst íbúðina sem hún hafi verið að leigja og sé enn að leita að vinnu. Kærandi hafi sótt um á fullt af vinnustöðum en enginn hafi svarað henni. Kæranda finnist ákvörðun Vinnumálastofnunar ósanngjörn. Kærandi hafi búið allt sitt líf á Íslandi, sé stödd hér á landi og hafi verið heiðarleg frá byrjun gagnvart Vinnumálastofnun en fái svona meðferð vegna aðstæðna sem hún hafi í raun enga stjórn á. Kærandi velji ekki hvenær henni líði vel eða illa. Kærandi hafi strax sent skýringar og útskýrt stöðuna. Kærandi hafi sent læknisgögn eftir samtalið við starfsmann Vinnumálastofnunar því hún hafi einfaldlega ekki vitað hvernig ætti að fara með þetta mál þar sem hún hafi aldrei áður lent í svona aðstæðum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. janúar 2025. Með erindi, dags. 20. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 19. janúar 2026, hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum þann 20. janúar 2026, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 19. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 19. janúar 2026, klukkan 08:18.

Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Þá hafi engar tilkynningar borist af hálfu kæranda um forföll. Skýringar hafi borist í gegnum samskiptagátt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda þann 20. janúar 2026, klukkan 18:09, þar sem eftirfarandi komi fram:

„Sæl. Ég sá ekki þessa skilaboð. Hvað á ég að gera núna?“

Þá hafi frekari skýringar borist frá kæranda þann 21. janúar 2026 þar sem eftirfarandi komi fram:

„Dear Sir or Madam, I am writing to explain my absence from the scheduled meeting I was invited to On the day when I received the message regarding the meeting, I was feeling unwell and my health condition worsened during the day. Because of this, I lay down to rest and fell asleep. Unfortunately, I did not check my phone at that time and only read the message the following day, when the meeting had already taken place. My absence was not intentional, and I sincerely apologize for not attending the meeting or notifying you in advance. I understand the importance of attending scheduled appointments and I would never deliberately miss such a meeting. If required, I am willing to provide any additional information or documentation related to my health condition. Thank you for your understanding and consideration. Kind regards, A“

Með erindi, dags. 2. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs kynningarfundar. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Þann 6. febrúar 2026 hafi kærandi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum og sagt að boð stofnunarinnar, dags. 19. janúar 2026, hafi farið fram hjá sér. Kærandi hafi verið að glíma við magasjúkdóm daginn sem boðunin hafi verið send og ekki náð að festa svefn. Kæranda hafi verið leiðbeint að skila inn læknisvottorði. Kærandi hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að hún hefði ekki þurft að leita læknisaðstoðar í umrætt sinn en hún ætti gögn frá lækni í C sem staðfesti að hún glími við sjúkdóm.

Með erindi, dags. 18. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði sökum þess að hún hefði ekki sinnt boðun á kynningarfund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 20. febrúar 2026 hafi frekari skýringar borist frá kæranda þar sem fram komi að ástæða fjarveru hennar hafi verið vegna veikinda og hún hafi ekki haft heilsu til að mæta. Veikindin hafi leitt til þess að hún hafi ekki getað boðað forföll. Jafnframt hafi borist B læknisvottorð, dags. 25. maí 2022. Samkvæmt læknisvottorðinu sé kærandi með langvinnan sjúkdóm, þ.e. bakflæðissjúkdóm í vélinda (GERD). Samkvæmt skýringum kæranda fái hún þau einkenni af og til en leiti ekki alltaf til læknis þegar þau komi fram. Þann 19. janúar 2026 hafi kærandi kastað upp allan daginn og hafi ekki fest svefn um nóttina. Hún hafi af þeim sökum ekki séð boð frá Vinnumálastofnun um fundinn og því ekki mætt.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 12. mars 2026. Þau sjónarmið sem kærandi haldi uppi í kæru til úrskurðarnefndar séu efnislega þau sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar. Kærandi fari fram á að tekið verði tillit til heilsufarsaðstæðna sem hún búi við.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 20. janúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning fundarins. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir fjarveru á fund Vinnumálastofnunar séu að henni hafi ekki borist fundarboð frá stofnuninni og því ekki mætt. Þá hafi kærandi lagt fram gögn þar sem fram komi að hún hafi glímt við heilsufarsvandamál þegar umræddur upplýsingafundur hafi farið fram í janúar 2026. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið boðuð á umræddan fund með skilaboðum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Það sé á ábyrgð atvinnuleitenda að kynna sér þau skilaboð sem stofnunin sendi þeim, enda séu allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess.

Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það eigi bæði við um skýringar kæranda er lúti að því að hún hafi ekki orðið vör við boðun stofnunarinnar og að hún hafi látið hjá líða að tilkynna um forföll vegna veikinda sinna. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 19. janúar 2026 boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 20. janúar 2026. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Athygli kæranda var vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð boðun þar sem hún hafi verið að hvíla sig vegna veikinda og því ekki getað mætt. Af fyrirliggjandi gögnum málsins verður þó ekki séð að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín eins og henni var skylt að gera, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt ákvæðinu ber þeim sem eru tryggðir samkvæmt lögunum að tilkynna stofnuninni án ástæðulausrar tafar um allar þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni þeirra eða aðstæðum að öðru leyti, þar á meðal um tilfallandi veikindi.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Það er á ábyrgð hins tryggða að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálastofnun sendir, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir