25 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 186/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 186/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. ágúst 2025 og var umsóknin samþykkt 28. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. mars 2026. Með bréfi, dags. 6. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2026. Kærandi hafi ekki haft ásetning til að leyna upplýsingum um störf sín eða tekjur. Kærandi hafi tilkynnt um vinnu sína við afgreiðslu Vinnumálastofnunar og talið í góðri trú að það hafi verið fullnægjandi. Kærandi hafi ekki verið meðvituð um að jafnframt þyrfti að skrá upplýsingar sérstaklega á „Mínum síðum“. Kærandi vilji veita frekari skýringar varðandi launatekjur hennar frá B í ágúst. Í ágúst hafi kærandi fengið greiddar 745.265 kr. Sú upphæð hafi samanstaðið af venjulegum launum og orlofsgreiðslu. Kærandi hafi hvorki í ágúst né september fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun þar sem hún hafi verið á tveggja mánaða biðtíma. Af þeirri ástæðu hafi kærandi talið að hún þyrfti ekki að tilkynna þessar tekjur þar sem hún hafi ekki fengið neinar greiðslur frá Vinnumálastofnun á sama tímabili. Kærandi hafi því ekki fengið tvígreiðslu á neinn hátt.

Í framhaldinu hafi kærandi farið í prufuvinnu hjá þvottahúsi C og fengið tekjur í október að fjárhæð 235.659 kr. Atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun hafi numið 151.813 kr. Kærandi hafi því ekki fengið fullar atvinnuleysisbætur heldur hafi þær verið lækkaðar í samræmi við tekjur hennar. Í nóvember hafi kærandi fengið tekjur frá C að fjárhæð 447.574 kr. Atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun hafi numið 188.466 kr. Í desember hafi kærandi fengið tekjur frá C að fjárhæð 172.767 kr. Í sama mánuði hafi kærandi farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar og tilkynnt að hún hefði fengið ofgreitt. Í kjölfarið hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 41.598 kr. og einni viku síðar hafi henni borist viðbótargreiðslur að fjárhæð 45.539 kr. Kærandi hafi talið að þessar greiðslur hefðu verið reiknaðar og leiðréttar af Vinnumálastofnun í samræmi við reglur.

Kærandi hafi ekki staðist prufutímann og því ekki haldið áfram störfum. Kærandi hafi ekki á neinn hátt vanrækt skyldur sínar um atvinnuleit. Kærandi hafi lagt sig fram við að finna nýtt starf og haft samband við vini og kunningja. Dóttir kæranda hafi aðstoðað hana við að útbúa og senda umsóknir á ýmsa staði. Þrátt fyrir að hafa ekki enn fengið starf hafi kærandi nýtt tímann í að sækja sér frekari tungumálakennslu. Kærandi hafi því verið virk í atvinnuleit og leitist við að bæta stöðu sína en sitji ekki aðgerðalaus. Kærandi hafi ávallt leitast við að uppfylla skyldur sínar og veita réttar upplýsingar. Ef mistök hafi átt sér stað hafi þau verið óviljandi og byggð á misskilningi en ekki ásetningi. Með hliðsjón af framangreindu óski kærandi eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð og viðurlög fell niður eða milduð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 1. ágúst 2025. Með erindi, dags. 28. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 100% bótarétti. Með vísan til starfsloka kæranda hjá B hafi umsókn hennar verið samþykkt á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Í kjölfar reglulegs eftirlits innan Vinnumálastofnun hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur frá B í ágúst 2025 og frá C í september 2025. Kærandi hafi tilkynnt um tekjur sínar frá C í október og nóvember 2025 en ekki í september 2025. Með erindi, dags. 28. janúar 2026, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum.

Umbeðin gögn hafi ekki borist og kæranda hafi verið tilkynnt með erindi, dags. 2. mars 2026, að þar sem hún hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hennar felldur niður frá og með þeim degi í þrjá mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 4. mars 2026. Í kæru greini kærandi frá því að hún hafi ekki haft neinn ásetning um að leyna tekjum sínum. Kærandi hafi staðið í þeirri trú að í ljósi þess að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur í ágúst 2025 hefði verið samþykkt með tveggja mánaða biðtíma þyrfti hún ekki að tilkynna um tekjur sínar til Vinnumálastofnunar.

Kærandi hafi skilað afriti af launaseðli vegna launatekna sem kærandi hafi fengið greiddar frá C í september 2025 þar sem fram komi að kærandi hafi sannarlega verið með launatekjur í september 2025, samtals að fjárhæð 282.340 kr., sem kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um. Kærandi hafi samhliða kæru jafnframt skilað afriti af launaseðli vegna launatekna frá B í ágúst 2025 þar sem fram komi að um hafi verið að ræða uppgjör á áunnu orlofi við starfslok. Kærandi hafi átt samtals 271,94 orlofstíma við starfslok og því hafi hún átt 34 daga í ótekið orlof sem hafi ekki verið ráðstafað. Kærandi muni koma til með að fá ákvörðun frá Vinnumálastofnun þar sem áunnið orlof við starfslok verði skráð í samræmi við 5. mgr. 51. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2026, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá B í ágúst 2025 né frá C í september 2025. Á þeim tíma hafi kærandi sætt biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta sökum þess að starfslok hennar hjá B hafi ekki verið metin gild. Kærandi hafi því ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur í tvo mánuði frá 1. ágúst 2025 að telja. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun á þeim tíma sem atvinnuleitendur fái greiddar atvinnuleysisbætur, sæti biðtíma eða viðurlögum. Atvinnuleitanda beri meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um störf sín og allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Hið sama eigi við um atvinnuleitendur sem sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna upplýsingar og ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi hvorki greint frá því að hún hafi átt óráðstafað orlof við starfslok hjá B þegar hún hafi sent inn umsókn um greiðslur atvinnuleysisbóta í ágúst 2025 né að hún hafi verið komin með vinnu hjá C í september 2025. Kærandi hafi verið upplýst um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur, fjármagnstekjur og um óráðstafað orlof við upphaf vinnslu umsóknar hennar. Það hafi meðal annars verið gert með tölvupósti, dags. 21. júlí 2025. Þegar Vinnumálastofnun hafi samþykkt umsókn kæranda um atvinnuleysistryggingar hafi henni jafnframt verið bent á að henni bæri að uppfylla skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar á biðtímanum. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera fullljóst að henni bæri að tilkynna stofnunni um óráðstafað orlof við starfslok hjá fyrrverandi atvinnurekanda, auk þeirra tekna sem hún hafi aflað sér í september 2025.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga, en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

 

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í þrjá mánuði. Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að láti einstaklingur hjá líða að tilkynna um tilfallandi tekjur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta skuli hann sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum samkvæmt 57. til 59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir. Líkt og áður segi hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í ágúst 2025 vegna starfsloka hennar hjá B.

Fyrir liggi að kærandi hafi þegið laun í ágúst 2025 frá B og í september 2025 frá C sem kærandi hafi ekki tilkynnt um til Vinnumálastofnunar. Kærandi beri við að hafa ekki vitað að hún hafi átt að tilkynna um starf sitt þar sem á þeim tíma hafi hún ekki fengið neinar atvinnuleysisbætur greiddar. Vinnumálastofnun meti þær skýringar sem kærandi hafi lagt fram ekki gildar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og sé að finna skýr fyrirmæli þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Það sé á ábyrgð atvinnuleitanda hverju sinni að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar hverju sinni á meðan atvinnuleit standi. Að öðrum kosti sé Vinnumálastofnun ókleift að rækja hlutverk sitt og aðstoða atvinnuleitendur í atvinnuleit sinni.

Kærandi hafi farið í vinnu hjá C í september 2025 en á þeim tíma hafi kærandi verið með virka umsókn um atvinnuleysisbætur en sætt á þeim tíma tveggja mánaða bið eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar kærandi hafi staðfest atvinnuleit sína í september hefði hún getað afskráð sig sem atvinnuleitandi tímabundið eða tilkynnt tilfallandi vinnu eða hlutastarf sitt. Það hafi kærandi ekki gert og henni hafi því verið gert að sæta viðurlögum í formi þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í ágúst 2025 frá B og í september 2025 frá C samhliða því að sæta biðtíma atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar.

Þann 21. júlí 2025 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna tekna sinna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreindar tekjur sínar. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 1. ágúst 2025 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna, eða þriggja mánaða viðurlaga við ákvörðun Vinnumálastofnunar í mars 2026.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir