Mál nr. 176/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 176/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 23. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. mars 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði hafnað starfi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. mars 2026. Með bréfi, dags. 9. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi vilji kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar sem hafi verið byggð á því að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði þann 26. febrúar 2026. Kærandi lýsi því yfir að þær upplýsingar séu rangar. Þann 26. febrúar 2026 hafi ferilskrá hennar verið áframsend á atvinnuveitanda. Kærandi hafi ekki fengið boð í atvinnuviðtal, ekki fengið atvinnutilboð né átt í samskiptum við fyrirtækið. Kærandi hafi af þeim sökum ekki haft neitt tækifæri til að hafna starfi þennan umrædda dag. Það sé ómögulegt að hafna tilboði sem hafi aldrei verið kynnt. Fyrir þann tíma, eða þann 2. og 4. febrúar 2026, hafi kærandi haft samband við fyrirtæki að eigin frumkvæði, sjálfstætt og ekki í gegnum Vinnumálastofnun. Samtalið hafi snúið að samningi án lágmarks vinnuframlags en kærandi hafi verið upplýst um að fyrirtækið væri ekki lengur að ráða á grundvelli slíks samnings en í staðinn hafi henni verið boðið 50% starfshlutfall. Kærandi hafi svarað að hún væri að leita að 100% starfshlutfalli yfir sumartímann. Fyrirtækið hafi svarað að það skildi aðstæður hennar en vegna sumarflugáætlunar gætu þeir ekki boðið 100% starfshlutfall. Þessi samskipti hafi verið sjálfstæð atvinnuleit að frumkvæði kæranda og hafi snúist um ráðningarskilyrði á þeim tíma.
Þetta geti ekki talist höfnun á atvinnutilboði þann 26. febrúar 2026. Kærandi sé í virkri atvinnuleit og hafi ekki í hyggju að hafna atvinnu við hæfi. Ákvörðunin um að fresta greiðslum atvinnuleysisbóta til kæranda hafi haft alvarleg og neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu hennar og getu til að standa straum af grunnframfærslu. Af þeirri ástæðu óski kærandi þess að ákvörðunin verði endurskoðuð sem fyrst. Kærandi óski þess að mál hennar verði endurskoðað ítarlega og ákvörðunin sem hafi áhrif á atvinnuleysisbætur hennar verði endurskoðuð þar sem hún virðist hafa verið byggð á ófullnægjandi eða mistúlkuðum upplýsingum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt síðast um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. [18. desember 2025]. Óskastarf kæranda samkvæmt umsókn hafi verið flugvallarstarfsmaður eða starfsmaður dýraathvarfs. Með erindi, dags. 23. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.
Þann 26. febrúar 2026 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf í 50% starfshlutfalli í vaktavinnu við þrif á flugvélum. Kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf þann 26. febrúar 2026 af Vinnumálastofnun. Í skýringum atvinnurekanda komi fram að kærandi hafi hafnað starfinu sökum þess að hún hafi einungis viljað vinna í 100% starfshlutfalli.
Með erindi, dags. 2. mars 2026, hafi verið óskað eftir skýringum á ástæðum þess að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 3. mars 2026 sem hafi verið eftirfarandi:
„Hello I am writing in response to your letter regarding the job offer from B. On February 2nd I was searching for work independently and not through Vinnumálastofnun. On that day, I did not refuse employment. I wrote to the employer explaining that for the summer season I was looking for a 100% position. My intention was not to reject work, but to express my preference for a full-time position at that time. On February 26th, when Vinnumálastofnun sent my CV to the company, the company responded to Vinnumálastofnun on the same day stating that I had declined the offer. However, on that date I was not invited to an interview and I did not receive any new job offer from the company. I respectfully ask that this explanation be taken into consideration. Kind regards,“
Jafnframt hafi borist afrit af tölvupósti sem kærandi hafi fengið sendan frá forsvarsmanni B. þar sem fram komi að kærandi hefði hafnað atvinnutilboði. Kæranda hafi verið tjáð, í þeim tölvupósti, að henni stæði enn til boða 50% starf hjá fyrirtækinu.
Þann 6. mars 2026 hafi Vinnumálastofnun sent fyrirspurn á forsvarsmann B og óskað eftir frekari skýringum á höfnun kæranda á 50% starfi hjá B. Skýringar hafi borist samdægurs þar sem fram komi að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hún væri að leita sér 100% starfi. Þá hafi kærandi aftur haft samband við fyrirtækið eftir að tilkynning um höfnun á starfi hafi borist Vinnumálastofnun. Fulltrúi fyrirtækisins hafi tjáð kæranda að starfið væri enn í boði. Kærandi hafi tjáð atvinnurekanda að hún gæti einungis unnið á milli 08:00 til 16:00. Atvinnurekandi hafi svarað kæranda á þá leið að það henti ekki áætlunum fyrirtækisins.
Þann 6. mars 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar væru felldar niður í tvo mánuði vegna höfnunar á starfi hjá B. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé tryggja þeim sem tryggðir séu og hafi misst fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.
Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Þannig sé öllum atvinnuleitendum vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem m.a. sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum.
Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað boði um atvinnutilboð hjá B. Í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi hafni atvinnuviðtali komi til álita hvort skýringar hans vegna höfnunar á umræddu starfi séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. 57. gr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Ríkar kröfur séu gerðar til atvinnuleitanda að þeir taki þeim störfum sem þeim kunni að bjóðast, enda eigi ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá beri að líta til þess að skv. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þurfi atvinnuleitandi að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, hvar sem er á Íslandi og án sérstaks fyrirvara. Fyrir liggi að kæranda hafi boðist atvinnutilboð í 50% starfshlutfalli sem hún hafi ekki þegið sökum þess að hún hafi einungis viljað taka að sér 100% starf. Kærandi hafi samhliða kæru lagt fram læknisvottorð, dags. 12. mars 2026, sem staðfesti að kærandi geti ekki unnið næturvaktir vegna streitueinkenna. Um þessar upplýsingar hafi kærandi ekki upplýst samhliða umsókn um atvinnuleysisbætur. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði án gildra ástæðna og að hún skuli því sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Samkvæmt gögnum málsins stóð kæranda til boða starf hjá B í 50% starfshlutfalli. Kærandi hefur mótmælt því að hafa hafnað starfstilboði, hún hafi einungis greint frá því að hún væri að leita að 100% starfshlutfalli.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit en samkvæmt f. lið 1. mgr. 14. gr. fellur þar undir að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu.
Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi sannanlega hafnað starfi og að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. mars 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir