Krókaleiðir ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Steina G SK-14, skipaskrárnúmer 6988.
Krókaleiðir ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðárið 2011/2012 til bátsins Óskars SK-13, skipaskrárnúmer 7022.
A.Ó.A. útgerð hf. kærir ákvörðun Fiskistofu um afturköllun á tilfærslu aflamarks, 10 ágúst 2012.
Sjóstangaveiðifélag Húsavíkur kærir ákvörðun Fiskistofu dags. 27. apríl 2012 um synjun um leyfi fyrir fiskiskipið Aþenu ÞH 505, til þess að stunda hvort tveggja (samhliða) strandveiðar og frístundaveiðar á fiskveiðiárinu 2011/2012.
I.F.S. ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu dags. 12. júní 2012 „um að hafna beiðni kæranda dags. 2. júní 2012 vegna framkvæmdar hlutkestis um leyfi til veiða á bláuggatúnfiski í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 400/2012“.