14. september 2026
/

Bláfæðubandalagið (Aquatic Blue Food Coalition)

{image.Description}

Bláfæðubandalagið (e. Aquatic Blue Food Coalition) í samstarfi við Fastanefnd Íslands hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm hélt í vikunni móttöku í tengslum við fund Fiskimálanefndar FAO (COFI) til að fagna þeim árangri sem náðst hefur undanfarin tvö ár. Ísland hefur leitt Bláfæðubandalgið frá stofnun þess 2022 í kjölfar leiðtogafundarins um fæðukerfisbreytingar árið 2021 og gegnir Jón Erlingur Jónasson nú formennsku í bandalaginu. Aðild að því eiga nú16 ríki, 35 alþjóðleg félagasamtök, auk stofnana, háskóla og fyrirtækja. Markmiðið er að vekja athygli á og auka skilning á mikilvægi fæðu úr höfum og vötnum fyrir fæðuöryggi, næringu, lífsviðurværi og efnahagslega þróun. Móttakan hófst með kynningu á helstu verkefnum bandalagsins þar sem sérstök áhersla var á Afríku, en bandalagið í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Afríkusambandsins (AUDA-NEPAD) stofnuðu júní sl. sérstakan átakshóp afrískra ráðherra sem ætla að sameinast um að vekja athygli á mikilvægi fæðu úr höfum og vötnum (The African Blue Food Champions Network). Þrír ráðherrar fluttu ávörp í móttökunni, frá Brasilíu, Madagaskar og Gana.