Sviðslistaráð 2026-2029

Sviðslistaráð er skipað skv. ákvæði 15. gr. laga nr. 165/2019.Ráðherra skipar þriggja manna sviðslistaráð til þriggja ára í senn. Fagfélög innan Sviðslistasambands Íslands tilnefna tvo fulltrúa í ráðið en ráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Óheimilt er að skipa sama aðalmann í sviðslistaráð lengur en tvö samfelld starfstímabil.

Sviðslistaráð er skipað frá 1.7.26 - 14.6.29


- Vigdís Másdóttir formaður, skipuð án tilnefningar

- Sigrún Waage, tilnefnd af SAFAS

- Ásgeir Helgi Magnússon, tilnefndur af SAFAS

Varamenn:

- Agnar Jón Egilsson, skipaður án tilnefningar

- Kaamos Metsikkö, tilnefndur af SAFAS

- Ása Fanney Gestsdóttir Laxness, tilnefnd af SAFAS

Hlutverk ráðsins er að veita umsögn um þau mál sem ráðherra vísar til þess, gera tillögu til ráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi sviðslistasjóðs til þriggja ára í senn, gera tillögur til ráðherra um úthlutunarreglur sviðslistasjóð og úthluta árlega styrkjum úr sviðslistasjóði.