Starfshópur um rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustunni

Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustunni. Verkefni hópsins eru m.a. að kanna hvernig rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustunni er háttað á Norðurlöndum, greina kosti og galla núverandi fyrirkomulags og leggja mat á hvort betur fari á því að verkefninu sé sinnt af öðrum en embætti landlæknis, s.s. með hliðsjón af hæfni, óhæði og hagkvæmni.
Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Sigurður Kári Árnason, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, formaður án tilnefningar
  • Theódór Skúli Sigurðsson, tilnefndur af Læknafélagi Íslands
  • Helga Rós Másdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
  • Unnur Berglind Friðriksdóttir, tilnefnd af Ljósmæðrafélagi Íslands
  • Tómas Þór Ágústsson, tilnefndur af Landspítala
  • Elísabet Benedikz, tilnefnd af Landspítala
  • María Heimisdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Alma Ýr Ingólfsdóttir, tilnefnd af Notendaráði heilbrigðisþjónustunnar
  • Gunnar Alexander Ólafsson, tilnefndur af Notendaráði heilbrigðisþjónustunnar

 

Starfsmaður hópsins er Anna María Káradóttir, lögfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.