Fiskræktarsjóður - stjórn 2026-2030

Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð og er á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sbr. 1. gr. laga nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð. Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán og styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að viðhalda og efla lífríki í ám og vötnum ásamt því að auka verðmæti veiði úr þeim. Stjórn Fiskræktarsjóðs hefur yfirumsjón með starfsemi hans í samræmi við lög nr. 72/2008 og tekur ákvarðanir um úthlutanir. Skipunartími fjögur ár í senn.

Stjórnin er þannig skipuð:

Aðalmenn:
    Kristján Freyr Helgason, skipaður formaður án tilnefningar
    Ólafur Þór Þórarinsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
    Drífa Hjartardóttir, tilnefnd af Landssambandi veiðifélaga
    Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, tilnefnd af Landssambandi stangaveiðifélaga
 

Varamenn:
    Jón Helgi Björnsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
    Guðrún Sigurjónsdóttir, tilnefnd af Landssambandi veiðifélaga
    Kristján Friðriksson, tilnefndur af Landssambandi stangaveiðifélaga.
 

Var efnið hjálplegt?