18. september 2026
/

Ávarp ráðherra á haustviðburði Eyvarar 2026

Ávarp flutt á haustviðburði Eyvarar 18. september 2026

Ágætu fundargestir og kæru samstarfsaðilar.

Það er ánægjulegt að vera hér með ykkur á haustviðburði Eyvarar, hæfniseturs Íslands í netöryggi.

Ég vil byrja á að þakka stjórn og fagráði Eyvarar en ekki síður Fjarskiptastofu, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Rannís, samstarfsaðilum Eyvarar og öllum þeim sem hér eru saman komin fyrir mikilvægt framlag til netöryggissamfélagsins á Íslandi.

Það skiptir máli að við hittumst á vettvangi sem þessum. Netöryggi verður ekki byggt upp í lokuðu herbergi hjá einni stofnun, einu ráðuneyti eða einu fyrirtæki. Það verður til í samtali og samstarfi.

Þess vegna er Eyvör svo mikilvæg. Hún er brú milli stjórnvalda, fræðasamfélags, markaðarins og evrópsks samstarfs.

Eyvör hefur á skömmum tíma sýnt að þörfin er raunveruleg. Á síðustu þremur árum hafa styrkir verið veittir til yfir 40 aðila og búast má við að þeir verði nærri 60 eftir næsta úthlutunarferli sem hefst í október.

Eftirspurn hefur verið langt umfram framboð í öllum úthlutunum. Skilaboðin til stjórnvalda eru skýr: hér eru hugmyndir, kraftur og vilji til að byggja upp íslenska getu á sviði netöryggis.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá marga fulltrúa fyrirtækja, nýsköpunaraðila og sérfræðinga sem vinna daglega með þessi mál. Íslenskt netöryggi byggist á ykkur.

Við stöndum á ákveðnum tímamótum. Ísland hefur náð miklum árangri í stafrænni uppbyggingu.

Ljósleiðaravæðing, háhraðafarnet, öflug gagnaver, og aukin notkun skýjalausna hafa breytt því hvernig við vinnum, lærum, rekum fyrirtæki og sækjum opinbera þjónustu. Næsti áfangi snýst um hraða og útbreiðslu, en líka traust, öryggi og áfallaþol.

En þegar samfélag okkar reiðir sig meira og minna á stafrænar tengingar, er lykilatriði að þær virki þegar mest á reynir.

Þessi hugsun kom skýrt fram í forsamráði innviðaráðuneytisins um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Þar bárust rúmlega 30 umsagnir frá hagaðilum. Við eigum eftir að vinna nánar úr þeim sjónarmiðum, en fyrstu skilaboðin eru skýr. Samfélagið kallar eftir meiri áherslu á áfallaþol, skýrari ábyrgð, og markvissari framkvæmd.

Ágætu gestir,

Ríkið ber ábyrgð á stefnumótun, regluverki og eftirliti. En lög og eftirlit tryggja ekki netöryggi eitt og sér.

Þess vegna þurfum við að tala um samábyrgð. Ríkið á að skapa skýran, sanngjarnan og fyrirsjáanlegan ramma. En atvinnulífið, sveitarfélög, stofnanir, háskolar og notendur þurfa líka að leggja sitt af mörkunum.

Eyvör er dæmi um slíka nálgun. Hér mætast evrópskt samstarf, opinber stefnumótun, rannsóknir, menntun og frumkvæði markaðarins. Hæfnisetur sem þetta getur breytt góðum hugmyndum og verkefnum í raunverulegan ávinning fyrir samfélagið. Það er kjarninn: frá styrkjum til áhrifa.

Næstu ár verða krefjandi. Innleiðing NIS2 og annars stafræns regluverks mun kalla á aukna getu hjá hinu opinbera og atvinnulífinu. Gervigreind mun breyta bæði vörnum og árásum. Birgjakeðjur verða flóknari. Fjarskiptasvik trúverðugri. Og almenningur mun gera þá sjálfsögðu kröfu að þjónusta virki og gögn séu örugg.

Ísland er lítið samfélag, en það getur verið styrkleiki. Við getum tengt saman fólk og stofnanir hraðar en stærri ríki. Við getum prófað nýjar lausnir, lært hratt og tekið þátt í evrópskum verkefnum þar sem íslensk þekking og nýsköpun skipta máli.

Ég hvet markaðs- og nýsköpunaraðila sérstaklega til að nýta meðbyr sem fæst með Eyvöru. Sækja í samstarfið, styrkina og tengslin.

Ágætu fundargestir.

Við höfum ástæðu til að vera bjartsýn. Við höfum sterka innviði, öflugan mannauð og fyrirtæki sem vilja sækja fram. Við höfum Eyvöru sem getur orðið enn mikilvægari vettvangur fyrir þekkingu, nýsköpun og samstarf.

Ég vil að lokum þakka ykkur öllum fyrir mikilvægt framlag. Ég hlakka til að sjá þau verkefni, tengsl og lausnir sem verða til á grundvelli þessa samstarfs. Og ég vil hvetja ykkur til að nýta daginn vel: spyrja, tengjast, deila reynslu og leita nýrra leiða.

Ef okkur tekst að sameina skýra stefnu, öfluga þekkingu, virkt evrópskt samstarf og kraft markaðarins, getur Ísland orðið fyrirmynd í netöryggi.

Takk fyrir og gangi ykkur vel.