22. september 2026
/

Ávarp á Umferðarþingi Samgöngustofu

Ávarp á Umferðarþingi Samgöngustofu í Gamla bíói 22. september 2026.

Góðan dag, kæru gestir. Það er mér sérstök ánægja að ávarpa umferðarþing Samgöngustofu.

Í dag verður sjónum beint að stöðu, reynslu og viðhorfum ungs fólks í umferðinni – og þeim áskorunum og tækifærum sem felast í því að stuðla að auknu umferðaröryggi og ábyrgri þátttöku ungs fólks í samgöngum.

Ungir ökumenn standa sig upp til hópa mjög vel í umferðinni og það er frábært. En við þurfum að halda vel á spöðunum svo að viðhalda þeirri þróun til framtíðar.

Í samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040, sem samþykkt var á Alþingi í sumar, er kveðið á um að eitt af lykilviðfangsefnum í samgöngumálum á Íslandi næstu ár verði þarfir barna og ungmenna í samgöngum.

Það er því mjög gagnlegt að umferðarþingið í ár sé helgað ungu fólki og umferðinni – og ekki síst að þar fáum við að heyra unga fólkið sjálft segja frá reynslu sinni og áherslum.

Eitt helsta markmið samgönguáætlunar er öruggar samgöngur og því markmiði fylgja fjölmargar áherslur.

Þar má nefna:

  • Að unnið verði eftir öryggisáætlunum og gerðar aðgerðaáætlanir með mælanlegum markmiðum og árangursmælikvörðum.
  • Að Ísland verði meðal fimm fremstu Evrópuþjóða hvað varðar fá dauðsföll og alvarlega slasaða í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa.
  • Að akstursleiðir verði aðskildar á umferðarmestu vegum landsins.
  • Og að markvisst verði unnið að aukinni aðgreiningu gangandi og hjólandi í stígakerfum.

Þegar á næsta ári eru fjölmargar framkvæmdir á aðgerðaáætlun samgönguáætlunar sem munu auka umferðaröryggi um land allt.

Þar má til dæmis nefna framkvæmdir á stofnvegum í kringum höfuðborgarsvæðið, þar sem akstursstefnur verða aðskildar á Kjalarnesi og á Suðurlandsvegi.

Áfram verður unnið að fækkun einbreiðra brúa á hringvegi og öðrum stofnvegum.

Loks verður lokið við innleiðingu á heildstæðu mati á öryggi þjóðvegakerfisins á árinu 2027, en það mat mun nýtast til að forgangsraða aðgerðum sem auka umferðaröryggi.

En víkjum aftur að unga fólkinu. Við höfum öll áhyggjur af fjölda alvarlegra slysa og banaslysa sem orðið hafa í umferðinni í ár.

Við vitum að hópur ungmenna stundar ofsaakstur. Sá hópur er sem betur fer ekki stór, en afleiðingarnar eru hræðilegar.

Við þurfum því að taka höndum saman, stemma stigu við hraðakstri þessa afmarkaða hóps og reyna að ná til þeirra sem hann stunda.

Við þurfum einnig að ná til þeirra sem setjast upp í bíl hjá þeim sem aka of hratt og fá þau til að skilja alvarleikann. En hvernig gerum við það? Það er samtal sem við þurfum að eiga við unga fólkið okkar.

Áskoranirnar í umferðinni í dag eru margar. Til að mynda aka börn undir bílprófsaldri um götur og göngustíga á farartækjum sem komast á allt að 100 kílómetra hraða á klukkustund. Við því þarf að bregðast áður en banaslys verður vegna þessara tækja.

Á síðustu áratugum hafa bílar orðið öruggari fyrir þá sem í þeim sitja – þeir hafa orðið stærri, þola harðari árekstra og svo framvegis. Óvarðir vegfarendur eru hins vegar óbreyttir, og gera þarf allt sem hægt er til að verja þá – sérstaklega börnin okkar.

Skólabörn þurfa að eiga auðvelt með að lesa umferðina og vita nákvæmlega hvar óhætt er að þvera götu. Vandinn er sá að ómerktar gönguþveranir og merktar gangbrautir líta oft mjög svipað út. Þetta skapar hættu þar sem gangandi halda að þeir eigi forgang, en ökumenn taka fyrst og fremst eftir vel merktum gangbrautum.

Til að taka af allan vafa er það mín sannfæring að merkja eigi allar þveranir á skóla- og frístundaleiðum barna sem gangbrautir. Þannig tryggjum við skýran forgang gangandi og varkárni ökumanna.

Það er jafnframt lykilatriði að samgönguinnviðir aðgreini ólíka ferðamáta á skýran hátt. Þannig auðveldum við öllum að fóta sig í umferðinni, hvort sem fólk er gangandi, hjólandi eða akandi.

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess eru stöðugt á varðbergi og leita ákaft leiða til þess að bæta löggjöf og samgönguinnviði, auk þess að efla fræðslustarf gagnvart ólíkum hópum vegfarenda.

Ágætu gestir.

Umferðaröryggi verður ekki skapað eingöngu með lögum, sektum, skiltum eða nýrri tækni.

Það verður til í sameiningu – í samræðum – og með því að við sýnum öll ábyrgð í daglegum ákvörðunum okkar í umferðinni og sýnum hvert öðru tillitssemi.

Takk fyrir.