Stefnumiðuð áætlun og þriggja ára áætlun

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur með bréfi kallað eftir stefnumiðaðri áætlun aðila til þriggja ára og ársáætlun 2027. Í bréfinu kemur fram að lokaskil á ársáætlun og stefnumiðaðri áætlun eru 14. nóvember. Áætlun og stefnu skal skila í gegnum AKRA-áætlanakerfið. Greinargerð með ársáætlun og áætlun um tekjur og gjöld til þriggja ára skal senda á netfangið [email protected]. Í bréfinu er vísað á neðangreint sniðmát til innfyllingar og leiðbeiningar.

Að lokum bendir fjármála- og efnahagsráðuneytið á slóðir á fjármálaáætlanir 2027–2031, og frumvarp til fjárlaga 2027.