14. feb. 2020Sveitarstjórnir og byggðamál, Innviðaráðuneytið, Sameining sveitarfélaga
Sameining fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi staðfest
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra staðfesti í dag sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag. Með sameiningunni verður til eitt stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, með tæplega fimm þúsund íbúa.