12. feb. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Flug og flugvellir, Atvinnuvegir
7,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll 2023
„Ein af lykilforsendum fyrir velgengni Íslands eru greiðar samgöngur við umheiminn og öflugur alþjóðaflugvöllur,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra á fundi ISAVIA þegar fyrirtækið kynnti farþegaspá sína fyrir árið 2023. Þar er gert ráð fyrir að 7,8 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll á næsta ári sem er þriðji mesti fjöldi farþega um völlinn á einu ári frá upphafi. Þá er því spáð að 2,2 milljónir ferðamanna komi til Íslands árið 2023 en aðeins einu sinni áður hafa fleiri komið til landsins á einu ári eða 2,3 milljónir metárið 2018.