Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Flóttafólk
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1–50 af 100
    Raða eftir:
    06. sep. 2026Dómsmálaráðuneytið, Flóttafólk, Útlendingar

    Vistun á brottfararstöð ávallt lokaúrræði

    Alþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Lögin taka gildi 1. desember. Ráðherra segir úrræðinu eingöngu verða beitt þegar vægari úrræði duga ekki.

    28. ágú. 2026Útlendingar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Móttaka flóttafólks

    Móttaka flóttafólks Flestir umsækjendur um alþjóðlega vernd koma frá Úkraínu en hingað leitar einnig fólk víða annars staðar frá í leit að vernd. Íslensk stjórnvöld hafa sömuleiðis boðið hópum í viðkvæmri stöðu til landsins. Hér fyrir neðan er að finna umfjöllun um réttindi flóttafólks og hlutverk hinna ýmsu stofnana við móttöku fólksins, auk tengils á síðu með margvíslegri tölfræði

    21. ágú. 2026Útlendingar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Flóttamannanefnd og innflytjendaráð

    Flóttamannanefnd og innflytjendaráð Flóttamannanefnd Flóttamannanefnd er skilgreind í lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Hlutverk flóttamannanefndar er m

    21. ágú. 2026Útlendingar, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Dómsmálaráðuneytið

    Flóttafólk

    Flóttafólk Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu dauðarefsingu, pyndingar eða ómmannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu geta sótt um vernd hér á landi. Mismunandi reglur gilda um þjónustu til þeirra sem fengið hafa vernd hér á landi: Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda (kvótaflóttafólk) Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda hefur stundum verið kallað kvótaflóttafólk. Stjórnvöld móttökuríkja ákveða þá sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau vilja taka á móti

    11. mar. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Flóttafólk, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í vinnuheimsókn

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), en hann er í vinnuheimsókn á Íslandi.

    01. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Stuðningur við heyrnarlaust flóttafólk

    Stutt verður sérstaklega við heyrnarlaust flóttafólk sem leitað hefur skjóls á Íslandi samkvæmt samningi við Félag heyrnarlausra sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur endurnýjað.

    03. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    72 einstaklingar frá Gaza komu til landsins í dag

    72 dvalarleyfishafar frá Gaza komu til landsins í dag, þar af voru 24 fullorðnir og 48 börn. Ferðin frá Egyptalandi gekk vel og tók starfsfólk frá Vinnumálastofnun, Rauða krossinum og Reykjavíkurborg á móti fólkinu á Keflavíkurflugvelli og aðstoðaði hópinn í gegnum völlinn.

    01. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Flóttafólk

    Mannréttindaskrifstofa Íslands fær styrk til að veita innflytjendum lögfræðiráðgjöf

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, undirrituðu í dag áframhaldandi samning vegna verkefnis sem miðar að því veita innflytjendum sérhæfða lögfræðiráðgjöf um rétt sinn innan íslenska stjórnkerfisins. Ráðgjöfin er fólki að kostnaðarlausu.

    02. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Næstu fundir

    Vinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og verða næstu samráðsfundir haldnir í Reykjanesbæ og Reykjavík. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

    24. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Úttekt GEV á samningum um móttöku flóttafólks

    Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur lokið úttekt sinni á samræmdri móttöku flóttafólks en hún var unnin að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Úttektin fjallar um þjónustusamninga sem voru í gildi til ársloka 2023 og náði til níu móttökusveitarfélaga af þrettán. Nýir samningar tóku gildi þann 1. janúar sl.

    03. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Undirbúningur vegna komu fjölmenns hóps frá Gaza

    Undirbúningur fyrir komu fjölmenns hóps frá Gaza hefur staðið yfir síðustu misseri. Vinnumálastofnun vinnur að móttöku fólksins hér á landi í samráði við þau sveitarfélög þar sem fjölskylda þeirra hér á landi býr. Flestir dvalarleyfishafar frá Gaza ganga inn í svokallaða samræmda móttöku flóttafólks í því sveitarfélagi þar sem fjölskyldumeðlimir þeirra hér á landi eiga heima.

    01. maí 2024Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Flóttafólk

    Samið við Suðurnesjabæ um aukna þjónustu við fylgdarlaus börn

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gert samning við Suðurnesjabæ til að efla og styrkja barnaverndarþjónustu við fylgdarlaus börn. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði samning þess efnis við Suðurnesjabæ í dag.

    12. mar. 2024Dómsmálaráðuneytið, Úkraína, Flóttafólk, Útlendingar

    Vernd vegna fjöldaflótta lengd í fimm ár í stað þriggja að hámarki

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm. Í 4. mgr. 44. gr. laganna er kveðið á um að umsókn útlendings sem fellur undir 2. mgr. um alþjóðlega vernd megi leggja til hliðar í allt að þrjú ár frá því að umsækjandi fékk fyrst leyfi. Breytt ákvæði felur í sér að stjórnvöldum verði heimilt að leggja umsókn um vernd til hliðar í allt að fimm ár eða í tvö ár til viðbótar. Breytingin á við um þá sem þegar hafa fengið sameiginlega vernd á grundvelli fjöldaflótta sem og þá sem kunna að fá slíka vernd í framtíðinni.

    26. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Opinn fundur í Reykjavík

    Vinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og næsti samráðsfundur ferm fram í Reykjavík nú á miðvikudaginn. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

    20. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Innflytjendur, Flóttafólk

    Heildarsýn í útlendingamálum

    Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Á grundvelli þeirra aðgerða verður tekið utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með aukinni samhæfingu á milli ráðuneyta og stofnana. Markmiðið er að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins, og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála. Með þessari heildarsýn er lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft er sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.

    25. jan. 2024Flóttafólk, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar hafa undirritað samning um ný foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk í sveitarfélaginu.

    18. jan. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Ráðuneytið býður til samtals hringinn í kringum landið og eru innflytjendur sérstaklega hvattir til að mæta.

    19. des. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá viðbótargreiðslur í desember

    Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá viðbótargreiðslur í desember líkt og verið hefur undanfarin ár. Greiðslurnar nema 10 þúsund krónum fyrir hvern fullorðinn einstakling og 5 þúsund krónum fyrir börn og koma til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur.

    06. des. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Útlendingar, Vinnumál, Fatlað fólk, Flóttafólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, NPA, Almannatryggingar og lífeyrir

    Níu frumvörp félags- og vinnumarkaðsráðherra urðu að lögum í þinginu

    Níu frumvörp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, urðu að lögum á liðnu þingi, auk þess sem Alþingi samþykkti tillögu ráðherra til þingsályktunar. Fjögur frumvörp urðu að lögum á haustþinginu og má þar nefna lög sem fólu í sér fyrstu hækkun á frítekjumarki örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega í 14 ár. Frítekjumarkið nær tvöfaldaðist og tóku breytingarnar gildi strax 1. janúar síðastliðinn.

    29. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Flóttafólk frá Afganistan komið til landsins

    Átján einstaklingar frá Afganistan eru nú komnir til Íslands í boði íslenskra stjórnvalda en um er að ræða aðstandendur ungra Afgana sem búa hér á landi. „Það var hjartnæmt að heyra af endurfundum fjölskyldna sem ekki höfðu sést svo árum skipti," segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

    15. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Fyrsta grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks

    Stöðumat og valkostagreining (grænbók) í málefnum innflytjenda og flóttafólks hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þetta er í fyrsta sinn sem slík grænbók hefur verið unnin í málaflokknum.

    14. okt. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Flóttafólk, Utanríkisráðuneytið, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs

    Ísland styrkir neyðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna á Gaza

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að svara kalli Sameinuðu þjóðanna um framlög til neyðaraðstoðar í Palestínu með 70 milljóna króna framlagi fræa íslenskum stjórnvöldum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Framlagið bætist við reglubundið framlag Íslands til stofnunarinnar, sem er ein af samstarfsstofnunum Íslands í mannúðarmálum.

    01. okt. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Nichole Leigh Mosty, for­stöðukona Fjöl­menning­ar­set­urs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í gær og kveður á um að Reykjanesbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum. Þetta er fjórði samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma.

    20. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Málefni eldra fólks, Útlendingar

    Kynning á niðurstöðum könnunar á félagslegri einangrun og einmanaleika eldra fólks eftir uppruna

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stendur fyrir kynningarfundi um niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á líðan eldra fólks af íslenskum og erlendum uppruna en í henni var sérstök áhersla lögð á félagslega einangrun og einmanaleika.

    05. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Fólk með dvalarleyfi af mannúðarástæðum má nú strax hefja störf

    Breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um atvinnuréttindi útlendinga auðvelda fólki sem fengið hefur dvalarleyfi af mannúðarástæðum að komast út á vinnumarkaðinn. Það sama gildir um þau sem fengið hafa dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið. Undir þann hóp sem fengið hefur dvalarleyfi af mannúðarástæðum fellur meðal annars flóttafólk frá Úkraínu sem fengið hefur leyfið útgefið á grundvelli fjöldaflótta.

    23. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Kópavogur tekur á móti flóttafólki

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks. Samkvæmt honum mun Kópavogur taka á móti allt að 101 flóttamanni. Þar með hafa níu fjölmennustu sveitarfélög landsins öll undirritað samninga um samræmda móttöku flóttafólks. Heildarfjöldi flóttafólks sem samningarnir ná yfir er orðinn ríflega 3.300.

    22. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Ísafjarðarbær tekur á móti allt að 40 flóttamönnum

    Ísafjarðarbær tekur á móti allt að 40 flóttamönnum samkvæmt samningi sem undirritaður hefur verið af Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Þetta er tólfti samningurinn sem gerður hefur verið um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Heildarfjöldi flóttafólks sem samningarnir ná yfir er kominn yfir 3.200.

    19. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Afríka, Flóttafólk, UNHCR, Utanríkismál

    Aukin framlög til UNHCR vegna átakanna í Súdan

    Alvarleg staða mannúðarmála vegna átakanna í Súdan var meginefni framlagaráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnuna um fjarfundabúnað og tilkynnti um fimmtíu milljón króna viðbótarframlag Íslands til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) sem leiðir viðbrögð Sameinuðu þjóðanna á svæðinu.

    01. jún. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Akureyrarbær tekur á móti 350 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs og Ásthildur Sturludóttur, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks á Akureyri.

    23. maí 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Tæplega 2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar

    Tæplega 2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja nú í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar en stofnunin þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Aldrei hafa jafnmargir sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en um þessar mundir. Fleiri hafa sótt um vernd frá 1. janúar 2022 en samtals í 12 ár þar á undan.

    28. apr. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Mælt fyrir tímabundnum undanþágum vegna búsetuúrræða umsækjenda um alþjóðlega vernd

    Innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi.

    24. apr. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum

    Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag. Þetta er ellefti samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks síðan í nóvember síðastliðinn.

    18. apr. 2023Dómsmálaráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Úkraína, Stafrænt Ísland

    Flóttamenn geta tilkynnt stríðsglæpi

    Sett hefur verið upp tilkynningagátt á island.is þar sem flóttafólk frá Úkraínu getur tilkynnt hugsanlega stríðsglæpi

    17. apr. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Akranes tekur á móti allt að 80 flóttamönnum

    Akraneskaupstaður tekur á móti allt að 80 flóttamönnum samkvæmt samningi sem undirritaður hefur verið milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og bæjaryfirvalda. Þetta er tíundi samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Heildarfjöldi flóttafólks samkvæmt samningunum er orðinn um 3.000.

    09. apr. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Flóttafólk

    Opnað fyrir aðra umferð umsókna um styrk til sveitarfélaga vegna barna á flótta

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir styrki til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta eru búsett. Styrknum er ætlað að ná til allra barna sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2021 til 31. ágúst 2023. Markmiðið með styrknum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.

    24. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Skipulagsmál, Útlendingar, Flóttafólk, Innviðaráðuneytið

    Tímabundnar undanþágur verði veittar vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt drög að stjórnarfrumvarpi sem veitir heimild til að veita tímabundnar og skilyrtar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    20. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Vestmannaeyjabær tekur á móti 30 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum. Þetta er níundi samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl.

    16. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Mosfellsbær tekur á móti allt að 80 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Mosfellsbæ. Samningurinn kveður á um að Mosfellsbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 80 flóttamönnum.

    02. mar. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Múlaþing tekur á móti allt að 40 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Múlaþingi. Samkvæmt samningnum tekur Múlaþing í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 40 flóttamönnum á árinu. Þetta er sjöundi samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma. Auk Múlaþings hafa Akureyri, Árborg, Hafnarfjörður, Hornafjörður, Reykjanesbær og Reykjavíkurborg undirritað samninga við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

    28. feb. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    19 verkefni fá styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála – aukin samfélagsleg þátttaka flóttafólks og innflytjenda í forgrunni

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, tilkynnti í dag hver hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála. Alls fengu 19 verkefni og rannsóknir samtals ríflega 40 milljónir króna.

    24. feb. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úkraína, Flóttafólk

    Vel hefur gengið að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu við að komast út á íslenskan vinnumarkað

    Vel hefur gengið að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu við að komast út á vinnumarkað hér á landi. Yfir 800 flóttamenn frá Úkraínu hafa fengið atvinnuleyfi hér á landi frá innrás Rússlands í Úkraínu þann 24. febrúar 2022. Í dag er eitt ár liðið frá innrásinni.

    26. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Styrkir verkefni til að draga úr ofbeldi og takast á við afleiðingar þess

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur styrkt þrjú verkefni sem miða ýmist að því að draga úr ofbeldi á Íslandi eða takast á við afleiðingar þess. Um er að ræða sérhæfða sálfræðimeðferð fyrir gerendur kynferðisofbeldis, bætt aðgengi að þjónustu fyrir þolendur ofbeldis á landsbyggðinni og verkefni sem miðar að því að virkja karla í baráttunni gegn ofbeldi. Nýlega var auk þess kynnt stöðuskýrsla um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess.

    24. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Stýrihópur vinnur að mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks

    Stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks hefur hafið störf. Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, er formaður hópsins og hittist hann í ráðuneytinu nú í morgun.

    19. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Stuðningur við heyrnarlaust flóttafólk, fötluð börn af erlendum uppruna og hinsegin flóttafólk

    Stutt verður sérstaklega við heyrnarlaust flóttafólk sem leitað hefur skjóls á Íslandi, fötluð börn af erlendum uppruna og hinsegin flóttafólk. Þetta er efni þriggja samninga sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað við Félag heyrnarlausra, Landssamtökin Þroskahjálp og Samtökin 78.

    19. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Rauði krossinn tekur að sér fræðslu til þjónustu- og viðbragðsaðila um menningarnæmi og fjölmenningu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi, hafa undirritað samning um fræðslu um menningarnæmi og fjölmenningu fyrir þjónustu- og viðbragðsaðila hér á landi sem sinna þolendum og gerendum ofbeldis af erlendum uppruna.

    17. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Hafnarfjörður tekur á móti allt að 450 flóttamönnum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Hafnarfirði og áframhaldandi samstarf í málaflokknum. Samkvæmt samningnum mun Hafnarfjarðarbær taka á móti allt að 450 flóttamönnum. „Það er gleðiefni að Hafnarfjarðarbær hafi undirritað nýjan samning um samræmda móttöku flóttafólks, enda er mikilvæg og kærkomin þekking til staðar í bæjarfélaginu varðandi móttöku flóttafólks. Ég óska Hafnfirðingum einlæglega til hamingju,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

    13. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og sveitarfélagið Hornafjörður semja um móttöku flóttamanna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Erla Björg Sigurðardóttir, félagsmálastjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks. Samkvæmt samningnum mun sveitarfélagið Hornafjörður taka á móti átta flóttamönnum á árinu.

    20. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Lokaávarp á norrænni ráðstefnu: Brýnt að meta menntun og reynslu innflytjenda og flóttafólks

    Atvinnuþátttaka innflytjenda og flóttafólks getur ekki einskorðast við störf sem ekki krefjast sérþekkingar. Brýnt er að tryggja raunveruleg tækifæri á öllum sviðum þar sem innflytjendur og flóttafólk, rétt eins og aðrir, hafa möguleika á að taka þátt, vaxa og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Þetta kom fram í lokaávarpi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, á ráðstefnu sem fram fór í Osló nýverið um konur sem innflytjendur og flóttafólk á Norðurlöndunum. Ráðstefnan fór fram á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar.

    12. des. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk, Innflytjendur, Útlendingar

    Efni með tilgang: 12 milljónir króna til að vinna gegn félagslegri einangrun kvenna af erlendum uppruna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt 12 milljóna króna styrk til verkefnisins „Efni með tilgang“ sem er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Reykjavíkurborgar. Verkefnið er hugsað fyrir konur úr hópi innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda sem eru útsettar fyrir félagslegri einangrun.

    07. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Háskólar, Úkraína, Menntamál

    Námsframboð íslenskra háskóla til úkraínskra námsmanna á flótta

    Á island.is er nú að finna upplýsingar fyrir úkraínska háskólanema sem dvelja nú á Íslandi um námsmöguleika í íslenskum háskólum. Þar má nálgast allar upplýsingar bæði á ensku og úkraínsku.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband