Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 2554
    Raða eftir:
    28. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps EMT sveit á Íslandi - Skýrsla undirbúningshóps

    27. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps Mannafli í læknisþjónustu til framtíðar - Skýrsla starfshóps

    27. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu - skýrsla með tillögum starfshóps

    27. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skyndimóttaka á höfuðborgarsvæðinu – tillögur starfshóps

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að kanna möguleika þess að setja á fót skyndimóttöku á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Markmið slíkrar móttöku væri að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala og bæta þjónustu við sjúklinga.

    26. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnunarviðmið í hjúkrun - skýrsla og tillögur starfshóps

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnunarviðmið í hjúkrun - skýrsla og tillögur starfshóps Mönnunarviðmið í hjúkrun

    26. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Vottorð og vottorðavottorð. Getum við einfaldað kerfið?

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Vottorð og vottorðavottorð. Getum við einfaldað kerfið? Vottorð og vottorðavottorð

    26. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skýrsla um mönnunarviðmið í hjúkrun

    Mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum sjúkrahúsa skulu byggja á gagnreyndri þekkingu og skýru kerfisbundnu verklagi sem er samræmt milli stofnana. Þau þurfa að byggja á umfangi og gæðum þjónustunnar, starfsumhverfinu og hæfni og þekkingu starfsfólks og veita sveigjanleika sem nauðsynlegur er í daglegum rekstri. Ábyrgð og vald stjórnenda við ákvörðun mönnunarviðmiða þarf að vera skýrt. Þetta er meginniðurstaða vinnuhóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að leggja fram mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala. Formaður vinnuhópsins var Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir.

    26. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Vottorð og vottorðavottorð

    Útgáfa vottorða í heilbrigðiskerfinu hleypur á hundruðum þúsunda á ári. Síðastliðið ár gáfu heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu og Landspítali út tæplega 190.000 vottorð. Flest eru gefin út að beiðni opinberra stofnana til að tryggja réttindi einstaklinga í tengslum við ýmsa þjónustu. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem fjallaði um leiðir til að einfalda vottorðakerfið: „Markmiðið er að nýta betur tíma heilbrigðisstarfsfólks, minnka álag, auka skilvirkni og bæta þjónustu við almenning“ segir ráðherra.

    26. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Þróunarverkefnið „Gott að eldast“ hefst í Dalvíkurbyggð

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Dalvíkurbyggð og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

    25. nóv. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 27/2024

    Útdráttur: Kærandi kærði málshraða embættis landlæknis vegna kvörtunar sinnar til embættisins sem varðaði athugasemd við þjónustu tiltekins lýtalæknis. Taldi kærandi að dráttur í málinu hafi verið úr hófi fram. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að kanna þyrfti hvort erindi kæranda gæti fallið undir ákvæði 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Skipti þar mestu máli hvort kærandi hafi notið heilbrigðisþjónustu í umrætt skipti. Var það niðurstaða ráðuneytisins að þrátt fyrir að hugtakið heilbrigðisþjónusta væri túlkað með víðtækum hætti gæti það ekki náð yfir ágreining um greiðslu fyrir þjónustu sem aldrei fór fram. Af þeim sökum væri um athugasemd við þjónustu að ræða sem endaði ekki með stjórnvaldsákvörðun. Málshraði vegna slíkra erinda sætti því ekki kæru til ráðuneytisins.

    25. nóv. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar

    nóvember 2024 / Heilbrigðisráðuneytið „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar „Hvert á ég að leita?" Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhvera 18 ára og eldri - niðurstaða ferlagreiningar

    25. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á geðheilbrigðisþjónustu fyrir fullorðna einhverfa og tillögur til úrbóta

    Ein af megináskorunum í geðheilbrigðisþjónustu er að tryggja notendum samfellda, samþætta og heildræna þjónustu. Vísbendingar eru um að fólk með einhverfu fái ekki geðheilbrigðisþjónustu sem mætir þörfum þeirra með árangursríkum hætti. Verkefnahópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að gera ferlagreiningu á geðheilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp og koma með tillögur til úrbóta hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum.

    25. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mikil áfengisdrykkja Evrópubúa veldur áhyggjum – WHO hvetur til aðgerða

    Fullorðnir Evrópubúar drekka að meðaltali 9,2 lítra af hreinu áfengi árlega sem er met á heimsvísu, samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Stofnunin hvetur Evrópuþjóðir til að herða tafarlaust aðgerðir sínar til að sporna við áfengisneyslu. Aðgerðaleysi í þeim efnum sé dýru verði keypt í ljósi víðtækra og alvarlegra afleiðinga fyrir einstaklinga og samfélög.

    22. nóv. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 29/2024

    Útdráttur: Kærandi í málinu kærði málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli sem endaði með áliti sem beindist að heilbrigðisþjónustu sem kærandi veitti tilteknum sjúklingi. Áður hafði ráðuneytið ógilt málsmeðferð embættisins og sent það til nýrrar meðferðar til embættisins. Kærandi taldi að um endurtekna málsmeðferð væri að ræða sem bryti gegn meðalhófsreglu. Þá hefði embættinu borið að hefja málsmeðferðina í heild að nýju. Ekki væri nóg að bæta úr þeim annmarka sem hafði verið á fyrra áliti en nýtast við fyrri málsmeðferð að öðru leyti. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að ekkert benti til þess að málsmeðferð embættisins hefði verið ábótavant að öðru leyti en því sem bætt hafði verið úr.…

    22. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðherra styrkir tilraunaverkefni Hugarafls um endurhæfingu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Hugarafl um tilraunaverkefni sem felur í sér aukinn stuðning við endurhæfingu notanda með geðrænar áskoranir. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls og Auður Axelsdóttir framkvæmdastjóri félagsins undirrituðu samning um verkefnið í gær.

    21. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Vika helguð vitundarvakningu um sýklalyf

    Dagurinn 18. nóvember er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins. Sama dag hefst vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Tilgangurinn er að minna almenning, stjórnvöld og heilbrigðisstarfsmenn á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum.

    19. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Þingsályktunartillaga um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma

    Sjaldgæfir sjúkdómar eru skilgreindir sem sjúkdómar sem hafa áhrif á færri en 5 af hverjum 10.000 einstaklingum. Þrátt fyrir lágt algengi eru til um 7.000 sjaldgæfir sjúkdómar og er meirihluti þeirra af erfðafræðilegum orsökum. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipað starfshóp á liðnu ári til að móta drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma. Á grundvelli skýrslu starfshópsins hafa verið unnin drög að tillögu til þingsályktunar um slíka landsáætlun. Markmiðið er að bæta stöðu þeirra sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma. Með markvissri greiningu, meðferð, eftirfylgd, alþjóðlegri samvinnu og rafrænni skráningu verður heilbrigðiskerfið betur í stakk búið til að mæta áskorunum þessa viðkvæma hóps. ​

    18. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur birt í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir, sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

    15. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Staðarval fyrir nýja geðdeildarbyggingu Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ný bygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði staðsett utan Hringbrautarlóðar.

    15. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Niðurtröppun ávanabindandi lyfja - móttaka opnuð fyrir stuðning og eftirfylgd

    Frumkvöðlaverkefni sem hófst í febrúar á þessu ári um nýja þjónustu fyrir einstaklinga sem vilja aðstoð við að hætta eða draga úr notkun ávanabindandi lyfja hefur verið útvíkkað með opnun móttöku fyrir þessa einstaklinga í Efstaleiti í Reykjavík. Heilbrigðisráðuneytið styrkir verkefnið sem byggir á samstarfi sprotafyrirtækisins Prescriby við spítala, heilsugæslustöðvar og apótek.

    15. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi

    Sjúkratryggingar Íslands, heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Austurlands undirrituðu í gær samning um augnlækningar á Austurlandi. Samningurinn tryggir þessa þjónustu við íbúa á Austurlandi.

    14. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra tók þátt í 65 ára afmælishátíð Sjálfsbjargar

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flutti ávarp á afmælishátíð Sjálfsbjargar – landssambandi hreyfihamlaðra 6. nóvember síðastliðinn: „Í 65 ár hafið þið lagt á ykkur ómetanlega vinnu fyrir málefni hreyfihamlaðra á Íslandi með margvíslegum hætti, fyrir það ber að þakka“ sagði Willum m.a. í ávarpi sínu. Við þessi tímamót var einnig fagnað opnun á nýju húsnæði Kjarks endurhæfingar sem tekið var í notkun síðastliðið vor og styrkir enn frekar við öfluga og vaxandi endurhæfingarstarfsemi Kjarks.

    11. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála

    Umsóknarfrestur um embætti skrifstofustjóra fjármála í heilbrigðisráðuneytinu rann út 28. október síðastliðinn. Sautján sóttu um embættið.

    09. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

    Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

    06. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mótuð verði stefna um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi og móta drög að stefnu þar að lútandi. Formaður hópsins er Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

    04. nóv. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 12/2024

    Kærandi kærði málshraða Sjúkratrygginga Íslands þar sem stofnunin hafði ekki gengið til samninga við kæranda þrátt fyrir vilja kæranda þar um. Þá taldi kærandi einnig að Sjúkratryggingar hefðu ekki gætt að jafnræði við málsmeðferðina. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að Í 1. mgr. 49. gr. laga um sjúkratryggingar kæmi fram að ágreiningur um framkvæmd samninga og val á viðsemjendum sæti ekki endurskoðun ráðherra. Kæru samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, skal beint til þess stjórnvalds sem ákvörðun í máli verður kærð til. Þar sem ákvarðanir Sjúkratrygginga um framkvæmd samninga og val á viðsemjendum verður ekki skotið til ráðherra verður kærum sem varða málshraða stofnunarinnar um sama efni ekki heldur skotið til ráðuneytisins.…

    01. nóv. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Líf og heilsa, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    janúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármála- og efnahagsráðuneytið Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    01. nóv. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Líf og heilsa, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    janúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármála- og efnahagsráðuneytið Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    01. nóv. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili

    Fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að breyta fyrirkomulagi við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili. Áformað er nú að ríkið sjái alfarið um öflun húsnæðis undir rekstur hjúkrunarheimila í gegnum leigusamninga við fasteignafélög og aðra sérhæfða aðila á grundvelli útboða. Tillögur starfshóps þessa efnis voru kynntar fyrir ríkisstjórn á dögunum. Markmiðið er að auka hagkvæmni, sérhæfingu og skilvirkni á þessu sviði og stuðla að því að framboð hjúkrunarrýma haldist í hendur við vaxandi þörf á komandi árum.

    31. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Víðtæk samþætting endurhæfingar formgerð með tímamótasamningi

    Samningur sem kveður á um víðtækt samstarf á sviði endurhæfingar og samhæfingu þjónustunnar þvert á kerfi var undirritaður í dag. Að samningnum koma 46 aðilar á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, sem skuldbinda sig til að eiga með sér samstarf og samvinnu um endurhæfingu einstaklinga sem á þurfa að halda. Samningurinn tekur gildi 1. september 2025 og er mikilvægur liður í innleiðingu viðamikilla breytinga á örorkulífeyriskerfinu samkvæmt lögum sem öðlast gildi á sama tíma.

    31. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur skipaður um mönnunarviðmið á hjúkrunarheimilum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að móta tillögur ásamt tímasettri áætlun um það hvernig ná megi gæðaviðmiðum um mönnun á hjúkrunarheimilum hér á landi. Hópnum er ætlað að skila niðurstöðum sínum til ráðherra eigi síðar en 1. febrúar 2025. Hópurinn er skipaður á grundvelli yfirlýsingar heilbrigðisráðherra við undirritun kjarasamings Eflingar stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu 2. október síðastliðinn.

    31. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

    Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Úthlutun styrkja til félagasamtaka fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

    28. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heyrnarfræði á háskólastigi á Íslandi – fyrstu nemendurnir byrjaðir

    Nám í heyrnarfræðum stendur nú í fyrsta sinn til boða á Íslandi á grundvelli samstarfssamnings Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ), Háskólans í Örebro í Svíþjóð og Háskólans á Akureyri. Þrír nemendurnir hófu nám í haust. Unnið er að því að fjölga námsstöðum og þess vænst að hægt verði að taka á móti átta nýnemum á næsta ári. Umsækjendur nú voru á þriðja tug sem sýnir að áhuginn fyrir náminu er mikill og því raunhæft að ætla að framboð sérmenntaðra heyrnarfræðinga aukist til muna innan fárra ára.

    23. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að þingsályktun heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025-2029. Umsagnarfrestur er til 12. nóvember næstkomandi.

    18. okt. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 25/2024

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja endurupptökubeiðni einstaklings sem var til komin vegna synjunar embættisins á starfsleyfisumsókn einstaklingsins vegna náms hans sem næringarráðgjafi. Embættið byggði synjun sína á því að einstaklingurinn hefði ekki aflað tiltekinna upplýsinga sem embættið taldi nauðsynlegt til að meta hvort nám hans, sem hann stundaði í Þýskalandi, væri svo verulega frábrugðið hinu íslenska námi að hann þyrfti að gangast undir uppbótarráðstafanir. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að í rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar felist ekki að stjórnvald þurfi sjálft að afla allra gagna í máli. Í málinu hafi réttarheimildir þó ætlast til að við ákveðnar aðstæður gæti stjórnvald sjálft aflað gagna, til að mál teldist full rannsakað.…

    18. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Þingsályktunartillaga um aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029. Tillagan byggist á skýrslu starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði um gerð slíkar aðgerðaáætlunar og var staðfest sem áætlun stjórnvalda með undirritun heilbrigðisráðherra, matvælaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrr í sumar.

    17. okt. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 21/2024

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun Landspítala um að hafna umsókn um niðurfellingu sjúklingagjalda. Íslenskur ríkisborgari sem er með lögheimili í Bandaríkjunum óskaði eftir niðurfellingu sjúklingagjalda vegna heilbrigðisþjónustu sem hún naut á Landspítala. Samkvæmt Landspítala stendur ekki lagaheimild til að fella niður sjúklingagjöld vegna ósjúkratryggðra og var ríkisborgaranum því gerður reikningur fyrir dvöld hennar á spítalanum. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að ekki sé fyrir að fara heimild til að lækka slík gjöld, enda séu þau í samræmi við lög um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 1552/2023.…

    16. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimaspítali á Suðurlandi: Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk

    Rekstur heimaspítala er nýjung í rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem felst í aukinni heilbrigðisþjónustu, þar með talinni læknisþjónustu, við fólk sem býr heima og þarfnast meiri stuðnings en almennrar félagsþjónustu og heimahjúkrunar. Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samkomulag við stofnunina um stuðning við verkefnið. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU undirrituðu samkomulagið í gær.

    15. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Samningur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og Húnaþings vestra undirritaður

    Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn, sem tekur gildi 1. janúar 2025, er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

    12. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Verkefnastyrkir til fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna á sviði fjarheilbrigðisþjónustu á grundvelli byggðaáætlunar stjórnvalda. Kallað var eftir tillögum að verkefnum frá stofnunum heilbrigðisráðuneytisins. Alls bárust umsóknir um styrki til níu verkefna frá sex stofnunum. Við úthlutun styrkja var byggt á forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og ætlaðan ávinning af verkefnunum. Fimm verkefni hlutu styrk, samtals 43,2 milljónir króna.

    10. okt. 2024Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    „Tímamót fyrir kvenheilsu“ - Stórfelld lækkun gjalds fyrir brjóstaskimanir

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að lækka almennt gjald fyrir brjóstaskimun úr 6.098 kr. í 500 kr. og tekur breytingin gildi 14. október. Skimun er mikilvæg forsenda snemmgreiningar brjóstakrabbameina og hefur mikinn ávinning fyrir einstaklinga og samfélag. Snemmgreining þýðir einfaldari meðferð, bættar lífslíkur og dregur úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.

    10. okt. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 26/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja endurupptökubeiðni kæranda vegna ákvörðunar embættisins um að synja tilkynningu kæranda um rekstur heilbrigðisþjónustu. Byggði embættið synjun sína á því að lausn kæranda væri ósannreynd og að þjónusta sem kærandi hugðist veita skyldi fyrst prófuð og þróuð á heilsugæslu. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að í reynd hefði synjun embættisins falið í sér synjun á tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu. Þá komst ráðuneytið að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð embættisins hafi ekki verið í fullu samráði við kröfur stjórnsýsluréttarins. Þá hafi embættið að auki byggt synjun sína á málsástæðum sem ekki ættu viðhlítandi stoð í lögum.…

    07. okt. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viðbótarmenntun sjúkraliða formlega viðurkennd með reglugerð

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðarbreytingin felur í sér viðurkenningu á viðbótarmenntun sjúkraliða við Háskólann á Akureyri sem gerir þeim kleift að takast á við flóknari verkefni og takast á hendur aukna ábyrgð í störfum sínum.

    30. sep. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    september 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir Önnur áfangaskýrsla stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir

    27. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Opin umræða um fóstur- og nýburaskimanir mikilvæg og tímabær

    Fóstur- og nýburaskimanir, tæknin og tækifærin, siðferðileg álitamál og samfélagslegar áskoranir voru til umfjöllunar á vel sóttu málþingi heilbrigðisráðuneytisins og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í vikunni. Markmið þingsins var að efna til opinnar umræðu um þetta flókna viðfangsefni og draga fram sem flest sjónarmið.

    25. sep. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps

    september 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja - Skýrsla starfshóps

    25. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Hjartastuðtæki um allt land verði skráð og sýnileg í kortasjá

    Starfshópur Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra leggur til að komið verði upp kortasjá fyrir sjálfvirk hjartastuðtæki um allt land. Markmiðið er að „fækka dauðsföllum af völdum hjartastoppa með því að bæta aðgang að sjálfvirkum hjartastuðtækjum á Íslandi og þannig stytta tíma frá hjartastoppi að stuði" eins og segir í skýrslu hópsins til ráðherra.

    25. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi til sóttvarnalaga og frumvarpi um heilbrigðisskrár

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær frumvarpi sínu til nýrra sóttvarnalaga og frumvarpi sem fjallar um heilbrigðisskrár og felur í sér breytingar á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um sjúkraskrár. Frumvörpunum hefur nú verið vísað til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis. Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram 15 lagafrumvörp á 155. löggjafarþingi, þar af tólf á haustþinginu.

    24. sep. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 16/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að svipta lækni með sérfræðileyfi í geðlækningum starfsleyfi á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Voru ástæður starfsleyfissviptingarinnar að meginstefnu tvær. Annars vegar byggði embættið á að kærandi hafi ávísað óhoflegu magni af ávana- og fíknilyfjum til fjögurra sjúklinga hans um langan tíma. Þá hefðu þau lyf sem kærandi ávísaði til umræddra sjúklinga ekki virkað saman og ekki ætluð til framhaldsmeðferðar auk þess sem eftirlit og eftirfylgni kæranda var ábótavant. Hins vegar byggði embættið á að einn af umræddum sjúklingum hefði verið látinn frá árinu 2014.…

    24. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir

    Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir í dag, þriðjudaginn 24. september kl. 13:00-16:30. Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband