30. jan. 2026Dómsmálaráðuneytið, Almannaöryggi, Almannavarnir, Utanríkisráðuneytið
Húsfyllir á fundi um áfallaþol Íslands í breyttum heimi
Opinn fundur um áfallaþol Íslands í nýrri heimsmynd fór fram í Norræna húsinu í gær. Fundurinn var haldinn á vegum Varðbergs, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra setti fundinn og fjallaði í opnunarávarpi sínu um breytta heimsmynd, aukna óvissu í öryggisumhverfi Evrópu og mikilvægi þess að Ísland efli seiglu samfélagsins.