Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 892
    Raða eftir:
    20. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Óbreytt fyrirkomulag á landamærum til 1. febrúar

    Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í morgun. Þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar.

    19. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kórónaveira fannst ekki í minkum

    Í rannsóknum sýnataka úr minkum á íslenskum minkabúum greindist enginn með SARS-CoV-2 veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Skimunum Matvælastofnunar á öllum minkabúum er nú lokið.

    18. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í París, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Ísland styður verkefni UNESCO um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum

    Ísland hefur gerst aðili að alþjóðaverkefni Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir að um mikilvægt framlag sé að ræða sem nýtist í baráttunni við kórónuveiruna.

    18. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Evrópusamvinna, Sendiráð Íslands í Brussel, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Kórónuveirufaraldurinn efstur á baugi á EES-ráðsfundi

    Samstarf ríkja Evrópska efnahagssvæðisins á tímum kórónuveirufaraldursins var í brennidepli á fjarfundi EES-ráðsins í dag. Í almennum umræðum um alþjóðamál bar málefni Hvíta-Rússlands hæst.

    18. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Jöfnunarsjóður, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Jöfnunarsjóður varinn með sértækum aðgerðum ríkisstjórnar

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að tekist hafi að verja stöðu Jöfnunarsjóðs með sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

    18. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Covid-19

    Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid-19

    Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum.

    17. nóv. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Tilslakanir í leik- og grunnskólastarfi: Minni grímuskylda og óheft útivist

    Samkvæmt nýrri reglugerð sem gildi tekur á morgun verða nemendur 5.–7. bekk grunnskóla undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart börnum á leikskólaaldri og nemendum í 1.-7. bekk er einnig afnumin.

    17. nóv. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19

    Frásögnum safnað um skólastarf í samkomubanni

    Nú stendur yfir söfnun upplýsinga um reynslu fólks af skólahaldi á tíma COVID-19. Þá er átt við alla þætti sem snerta nám og kennslu á þessum tíma en einnig aðra þætti sem hafa haft áhrif á nemendur, foreldra, kennara, stjórnendur auk annarra starfsmanna skóla á öllum skólastigum.

    17. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Sýnataka á landamærum gjaldfrjáls tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að sýnataka á landamærum verði gjaldfrjáls frá 1. desember næstkomandi til 31. janúar 2021. Ákvörðunin er tekin í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að hvetja fólk til að fara í sýnatöku fremur en að fara í sóttkví og draga þannig úr líkum á að smit berist inn í landið. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    16. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Grímuskylda afnumin í 5. – 7. bekk grunnskóla

    Börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Reglugerðarbreyting þessa efnis verður birt í Stjórnartíðindum á morgun.

    13. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Dregið úr samkomutakmörkunum 18. nóvember

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar. Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við 10 manns. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember. ​

    13. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins, Ferðakostnaður

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,8 milljarða króna milli ára

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu níu mánuðum ársins um 1,8 milljarða króna og fór úr 3 ma.kr. árið 2019 í tæpa 1,2 ma.kr. árið 2020. Lækkunin nemur um 60% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru.

    12. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID:19: Bóluefni frá Pfizer væntanlegt um áramót

    Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Gert er ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu veiti lyfinu markaðsleyfi í síðasta lagi 29. desember. Samkvæmt dreifingaráætlun Pfizer er ráðgert að Ísland fái rúmlega 21.000 skammta afhenta um áramót og rúmlega 31.000 skammta á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Efnið sem afhent verður við lok þessa árs dugir til að bólusetja þá sem eru í efstu forgangshópum vegna bólusetningar hér á landi samkvæmt reglugerð sem þegar hefur verið birt. Meðal þeirra sem eru mestum forgangi eru allir íbúar dvalar- og hjúkrunarheimila, aldraðir í dagdvölum og starfsfólk á þessum stofnunum. Bólusetja þarf hvern einstakling tvisvar sinnum.

    11. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sveitarstjórnir fá áfram svigrúm til að bregðast við aðstæðum í samfélaginu

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt heimild sveitarstjórna til að víkja tímabundið frá tilteknum skilyrðum ákvæða í sveitarstjórnarlögum til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og að auðvelda ákvörðunartöku þeirra við þær aðstæður sem eru uppi í þjóðfélaginu

    11. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Breytt fyrirkomulag skimunar á landamærum forsenda umtalsverðs efnahagsbata

    Breytt fyrirkomulag skimunar á landamærum, sem liðkar fyrir aðgangi ferðamanna með ásættanlegri áhættu með tilliti til sóttvarna, er forsenda þess að umtalsverður efnahagsbati geti hafist á næsta ári

    09. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um skimanir á landamærum til 6. október

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja án breytinga gildandi reglur um skimanir á landamærum. Framlengingin gildir til 6. október.

    09. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Tími í sóttkví styttur úr 14 dögum í 7 með skimun í lok tímabilsins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem gerir fólki kleift að ljúka sóttkví á 7 dögum ef sannað er með sýnatöku í lok tímabilsins að engin merki séu um sýkingu af völdum COVID-19. Að sóttkví lokinni þurfa þessir einstaklingar að gæta vel að sóttvörnum og forðast samneyti við viðkvæma einstaklinga. Skipulag sýnatökunnar verður á hendi sóttvarnalæknis og er hlutaðeigandi einstaklingum að kostnaðarlausu. Breytingin á við um sóttvarnaráðstafanir innanlands en tekur ekki til komufarþega á landamærum.

    09. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Milljarður króna greiddur út í lokunarstyrki

    Um 1.000 fyrirtæki sem skylt var að loka eða stöðva starfsemi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafa fengið greiddan lokunarstyrk fyrir alls um einn milljarð króna. Þetta kemur fram í uppfærðum upplýsingum yfir stöðu aðgerða stjórnvalda vegna heimfaraldursins.

    09. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir, Covid-19

    Kristján Þór gerði grein fyrir horfum í fiskeldi í ríkisstjórn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir horfum í fiskeldi og áherslu á útgáfu rekstrarleyfa í ríkisstjórn í morgun. Í minnisblaði ráðherra kemur fram að heildarframleiðsla í laxeldi var 11.265 tonn árið 2017, en var 26.957 árið 2019 og er áætluð um 31.500 tonn í ár. Útflutningsverðmæti fiskeldis var 25 ma.kr. í fyrra eða sem nemur tæplega 2% af heildarútflutningi. Þá er útflutningsverðmæti fiskeldis áætlað um 35 ma.kr. árið 2021 eða sem nemur tæplega 3% af heildarútflutningi. Með auknu framleiðslumagni verður þessi verðmætaaukning enn meiri á allra næstu árum. Á sama tíma munu beinar tekjur ríkissjóðs hækka samhliða á grundvelli laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð.

    09. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti

    Mannréttindi og lýðræði á tímum COVID-19

    Norðurlöndin stóðu í dag fyrir umræðufundi um lýðræði og mannréttindi á tímum COVID og tóku utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna þátt í fundinum. Utanríkisráðherrar og þróunarsamvinnuráðherrar norrænu ríkjanna hafa ritað sameiginlega grein um þessi mál sem birtist í fjölmiðlum í dag.

    06. nóv. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka, Siglingar, Covid-19

    Dregið úr losun með orkuskiptum í Akureyrarhöfn

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Pétur Ólafsson hafnarstjóri á Akureyri, undirrituðu í morgun samning um styrkveitingu af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til rafvæðingar hafnarinnar að upphæð 43,8 m.kr, að viðstaddri Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri.

    06. nóv. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    3800 nemendur þegar skráðir í sumarnám háskólanna

    Íslenskir háskólar bjóða upp á fjölbreytt sumarnám í sumar og fer skráning í námið afar vel af stað. Rúmlega 3800 nemendur hafa skráð sig í sumarnám hjá háskólunum sjö og búast má við að þeim fjölgi þar sem enn er opið fyrir umsóknir. Sumarnám er einnig í boði í mörgum framhaldsskólanna.

    05. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samið að nýju til að tryggja lágmarks millilandaflug og innanlandsflug

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur endurnýjað samning við Icelandair um flug til Evrópu og Bandaríkjanna til og með 16. maí.

    03. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar - óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

    Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

    02. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál, Covid-19

    Viðbrögð við kórónuveirufaraldri

    Íslensk stjórnvöld hafa uppi umtalsverðan viðbúnað vegna kórónaveirunnar 2019-nCOV og hefur utanríkisráðuneytið tekið virkan þátt í þeirri vinnu. Ráðuneytið gefur almennt ekki út ferðaviðvaranir en bendir þess í stað á viðvaranir sóttvarnalæknis og utanríkisráðuneyta Norðurlandanna og Bretlands.

    31. okt. 2020Líf og heilsa, Menningarmál, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íþrótta- og æskulýðsstarf: Umfangsmiklar stuðningsaðgerðir í bígerð

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, og Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þess efnis að ráðist verði í aðgerðir til að koma til móts við íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins

    30. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Skýrsla um upplýsingaóreiðu og COVID-19 birt á vef Stjórnarráðsins

    Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstjórnin samþykkir enn frekari efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að grípa til frekari efnahagsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins. Er þar annars vegar um að ræða tillögur að útvíkkun tekjufallsstyrkja, en frumvarp um þá er þegar til meðferðar á Alþingi, og hins vegar nýtt úrræði, viðspyrnustyrki, sem ætlað er að styðja við rekstur fyrirtækja á komandi mánuðum.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Ferðaþjónustufyrirtæki fengið 52% allra stuðningslána

    Stuðningslán hafa einkum verið veitt til fyrirtækja í ferðaþjónustu og hafa þau fengið 52% allra stuðningslána. Þetta er meðal upplýsinga sem fram koma í samantekt Seðlabanka Íslands til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu úrræðisins.

    30. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hertar sóttvarnaráðstafanir frá 31. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.

    30. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Komið til móts við stúdenta: Frekari aðgerðir Menntasjóðs námsmanna

    Menntasjóður námsmanna hefur m.a. framlengt umsóknarfrest um námslán fyrir haustönn 2020 til 1. desember nk.

    30. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áherslur stjórnvalda í umbótum til næstu ára

    Stór skref hafa verið tekin undanfarið í að bæta skilvirkni opinberrar þjónustu og aðgengi almennings að henni, ekki síst með stafrænni þróun hins opinbera. Heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft í för með sér þörf fyrir hraðar umbreytingar á opinberri þjónustu sem kröfðust nýsköpunar af hálfu opinberra aðila og samstarfs við almenning og fyrirtæki í landinu.

    29. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Norrænt samstarf, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Norðurlöndin komi tvíefld út úr heimsfaraldrinum

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra fundaði í dag með norrænum fjármálaráðherrum í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Helsta umræðuefni fundarins var hvernig tryggja megi að Norðurlöndin komist sem fyrst og með sem farsælustum hætti út úr þeim vanda sem leiðir af heimsfaraldri kórónuveiru.

    29. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddi leiðir að öflugum efnahagsbata á ráðherrafundi OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók þátt í ráðherrafundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í dag og í gær. Meginefni fundarins var að ræða leiðir að öflugum og grænum efnahagsbata sem sé sem flestum til hagsbóta.

    28. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Netöryggi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þrír norrænir fundir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í dag

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ræddi viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum, málefni þróunarsamvinnu og öryggis- og varnarmál á þremur norrænum ráðherrafundum sem fram fóru í dag í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Skýrsla Björns Bjarnasonar um norrænt samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála var áberandi umræðuefni á fundunum en jafnframt bar endurfjármögnun Norræna þróunarsjóðsins og loftslagsmál á góma.

    28. okt. 2020Atvinnuvegir, Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sviðsmyndagreining um ferðaþjónustu

    Ferðamálastofa, KPMG og Stjórnstöð ferðamála kynntu í morgun sviðsmyndagreiningu um mögulega þróun ferðaþjónustunnar á næstu misserum.

    28. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Aðgerðir sex sveitarfélaga vegna hruns í ferðaþjónustu

    Undirritaðir hafa verið samningar um 150 milljón króna fjárveitingu til sex sveitarfélaga vegna hruns í ferðaþjónustu í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins.

    28. okt. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tekjufallsstyrkir til ferðaþjónustunnar áætlaðir allt að 3,5 milljarðar króna

    Samkvæmt frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki munu minni ferðaþjónustuaðilar, leiðsögumenn o.fl. geta sótt um styrk vegna tekjufalls sem varð vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda fer til almannatrygginga

    Sífellt aukinn hluti verðmætasköpunar hagkerfisins rennur til tilfærslukerfa og fjárframlaga ríkissjóðs sem hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár. Í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn um framlög til almannatrygginga (að frátöldum atvinnuleysisbótum) kemur fram að þau hafa nær tvöfaldast frá árinu 2013 miðað við verðlag hvers árs og nema nú 642 þúsund krónum á hvern landsmann aldrinum 18-67 ára.

    27. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Dómsmálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar geti unnið í fjarvinnu á Íslandi

    Ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa lagt fram minnisblað fyrir ríkisstjórn um aðgerðir til þess að gera erlendum ríkisborgurum sem eru utan EES kleift að dvelja á Íslandi í allt að sex mánuði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum í fjarvinnu. Með breytingunni verður þeim ríkisborgurum, sem eru undanþegnir áritunarskyldu, heimilt að sækja um langtímavegabréfsáritun á Íslandi fyrir starfsmenn í fjarvinnu og fjölskyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lögheimili til landsins eða fá kennitölur.

    26. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Valkvæðum og ífarandi aðgerðum frestað tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða og hefur auglýsing þess efnis verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir. Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi:

    23. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýting efnahagsúrræða stjórnvalda vegna heimsfaraldurs

    Ríkisstjórnin hefur frá því heimsfaraldur kórónuveiru hófst kynnt úrræði sem ætlað er styðja við efnahagslega vörn, vernd og viðspyrnu heimila og fyrirtækja. Úrræðin geta falið í sér bein útgjöld fyrir ríkissjóð, líkt og í tilfelli hlutabóta eða greiðslu launa á uppsagnarfresti, tilfærslu tekna milli ára eða ábyrgðir sem geta raungerst síðar sem kostnaður fyrir ríkissjóð. Hér á eftir er farið yfir stöðu nýtingar úrræðanna. tingar úrræðanna.

    23. okt. 2020Covid-19, Nýsköpun, Orka, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Evrópusamvinna, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra á fundi viðskiptaráðherra innan EES: „Samkeppni er hvati nýsköpunar“

    „Nýsköpun þarf að vera kjarni nýrrar efnahagsstefnu því hún er lykillinn að sjálfbærum hagvexti til lengri tíma. Samkeppni og nýsköpun eru samofin. Án virkrar samkeppni er takmarkaður hvati til nýsköpunar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra

    22. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Alþjóðleg samstaða um aðgerðir í þágu menntunar

    Alþjóðafundur um menntamál fór fram á vegum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. UNESCO) með fjarfundasniði í dag.

    20. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Samkomutakmarkanir og skólastarf frá 20. október

    Í dag tóku gildi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími reglugerðanna er til og með 10. nóvember að undanskildum bráðabirgðaákvæðum um takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu sem gilda til 3. nóvember. Breytingar sem reglugerðirnar fela í sér frá fyrri takmörkunum eru raktar hér að neðan.

    20. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddi hugmyndir um loftslagsgjöld á fundi OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um sjálfbæra þróun þar sem m.a. var rætt um hugmyndir um loftslagsgjöld á landamærum vegna innflutnings frá svæðum sem leggja ekki á kolefnisgjöld eða losunarkvóta og nýtingu gjaldanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hugmyndir um slík gjöld eru til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evópusambandsins.

    19. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um opnun líkamsræktarstöðva

    Ákvæði nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem heimilar opnun líkamsræktarstöðva að uppfylltum ströngum skilyrðum, byggist á því að jafnræðis og meðalhófs sé gætt. Horft er til þess að sömu skilyrði gildi um íþróttaiðkun og líkamsrækt, þ.e. að iðka megi hvoru tveggja ef regla um 20 manna hámarksfjölda og 2 metra nálægðarmörk er virt.

    19. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Samningur við SÁÁ gerir sálfræðiþjónustu samtakanna fyrir börn mögulega

    Gerir samtökunum kleift að efla og bæta þjónustu við börn.

    18. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi 20. október

    Reglugerðir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi þriðjudaginn 20. október hafa verið staðfestar og verða birtar í Stjórnartíðindum á morgun. Annars vegar er ný reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og hins vegar breyting á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. Reglugerðirnar eru meðfylgjandi.

    16. okt. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    10 fjölþættar aðgerðir fyrir menningarlífið

    Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra kynntu í dag, ásamt fulltrúum Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna, 10 stuðningsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu á tímum COVID-19.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband