27. mar. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Áframhaldandi uppbygging um allt land til verndar náttúrunni
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Markmiðið er halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.