Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 3353
    Raða eftir:
    19. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1330/2025. Úrskurður frá 19. desember 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að kirkjubókum í vörslum presta þjóðkirkjunnar. Ákvörðun þjóðkirkjunnar að hafna beiðninni var byggð á því að henni væri það óheimilt nema ef óskað væri upplýsinga um sig sjálfan. Úrskurðarnefndin taldi að þjóðkirkjan, eða færsla hennar á kirkjubókum, félli ekki undir gildissvið upplýsingalaga. Því væri ákvörðun þjóðkirkjunnar ekki kæranleg til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli laganna. Þá lyti beiðni kæranda ekki að skjölum sem féllu undir lög um opinber skjalasöfn. Kærunni var því vísað frá.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1329/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Seðlabanka Íslands sem vörðuðu F fasteignafélag ehf. Ákvörðun bankans að hafna beiðni kæranda var byggð á því að gögnin hefðu að geyma upplýsingar sem þagnarskylda ætti að ríkja um samkvæmt lögum um bankann, auk þess sem hluti þeirra teldist vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Úrskurðarnefndin taldi að engin gagnanna teldust vera vinnugögn samkvæmt upplýsingalögum. Nefndin taldi nokkur gagnanna innihalda þagnarskyldar upplýsingar og staðfesti ákvörðun bankans að því er varðaði þau gögn. Að öðru leyti var lagt fyrir bankann að veita aðgang að þeim gögnum sem aðgangur kæranda hafði verið takmarkaður að.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1328/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um ákvörðun embættis landlæknis að hafna beiðni um aðgang að verðupplýsingum vegna innkaupa á mótefninu Beyfortus og bóluefninu Gardasil. Ákvörðunin var einkum byggð á því að gögn sem innihéldu upplýsingarnar vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni samningsaðila landlæknis. Úrskurðarnefndin taldi að afhending upplýsinga um einingarverð gæti haft í för með sér neikvæðar afleiðingar fyrir þau bæði með tilliti til samkeppni við samkeppnisaðila á mark­aði sem og samninga fyrirtækjanna við aðra kaupendur bóluefna, og verið til þess fallið að valda þeim tjóni. Ákvörðun landlæknis var staðfest.

    18. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1327/2025. Úrskurður frá 18. desember 2025

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum Sorpu bs. sem vörðuðu samninga eða viljayfirlýsingar Sorpu og tiltekinna félaga um niðurdælingu á CO2 frá Sorpu. Sorpa byggði ákvörðun sína á því að upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni félaganna stæðu í vegi fyrir afhendingu gagnanna. Úrskurðarnefndin lagði fyrir Sorpu að veita afhenda kæranda hluta umbeðinna gagna með tilteknum takmörkunum. Að öðru leyti var beiðni kæranda vísað aftur til Sorpu til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    05. des. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8 ríkjanna til stuðnings Úkraínu

    Norðurlöndin- og Eystrasaltsríkin (NB8) standa með Úkraínu í átt til friðar og endaloka árásarstríðs Rússlands.

    27. nóv. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Mikilvægi Íslands í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), heimsótti í dag Ísland í sinni fyrstu vinnuheimsókn og átti fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann skoðaði einnig öryggissvæðið í Keflavík og fundaði með þingmönnum á Alþingi.

    22. nóv. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar NB8-ríkjanna ítreka stuðning sinn við Úkraínu

    Leiðtogar Norrænu ríkjanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja áttu í dag símafund með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta þar sem nýjustu vendingar og friðarumleitanir voru ræddar. Hafa leiðtogarnir í kjölfarið sent frá sér stuðningsyfirlýsingu.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1319/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nr. 1305/2025 var hafnað þar sem skilyrði stjórnsýslulaga voru ekki uppfyllt auk þess sem ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1318/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um aðgang að gögnum um uppsögn sveitarstjóra. Úrskurðarnefndin taldi gögnin í málinu heyra undir 7. gr. upplýsingalaga og staðfesti ákvörðun sveitarfélagsins.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1317/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um afgreiðslu utanríkisráðuneytis á upplýsingabeiðni kæranda. Ráðuneytið byggði afgreiðslu sína á því að erindi kæranda fæli ekki í sér beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin staðfesti ákvörðun ráðuneytisins að hluti beiðninnar teldist ekki beiðni um gögn. Að öðru leyti var beiðni kæranda vísað aftur til ráðuneytisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    21. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1316/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum um kortaveltu frá færsluhirðum og öðrum greiðsluþjónustuaðilum í vörslu Seðlabanka Íslands. Ákvörðun bankans var byggð á því að að gögnin innihéldu upplýsingar sem féllu undir þagnarskylduákvæði laga um Seðlabanka Íslands. Úrskurðarnefndin taldi að hluti beiðninnar lyti að gögnum sem ekki væru fyrirliggjandi. Að öðru leyti var ákvörðun Seðlabanka Íslands staðfest.

    17. nóv. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsækir Ísland

    Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er væntanlegur í vinnuheimsókn til Íslands 27. nóvember næstkomandi. Er þetta fyrsta heimsókn Mark Rutte til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra sem hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024.

    14. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Fátækt algengari meðal fólks af erlendum uppruna

    Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Á árinu 2023 voru tæp tuttugu prósent innflytjenda undir lágtekjumörkum miðað við tæp átta prósent þeirra sem voru með íslenskan bakgrunn og hefur sá munur farið vaxandi á undanförnum árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknaverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað.

    14. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Atvinnustefna

    Drög að atvinnustefnu birt í samráðsgátt stjórnvalda

    Forsætisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að atvinnustefnu í samráðsgátt stjórnvalda, ásamt stöðugreiningu um þróun efnahags- og atvinnulífs 2010-2024 þar sem dregin eru fram lykilviðfangsefni og áskoranir.

    13. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Karl Guðmundsson ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga

    Karl Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra stórfjárfestinga á sviði atvinnuþróunar með aðsetur í forsætisráðuneytinu. Starfið tengist vinnu stjórnvalda við mótun nýrrar atvinnustefnu fyrir Ísland og er tímabundið til loka árs 2027.

    12. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Helgi Valberg Jensson verður ritari þjóðaröryggisráðs

    Forsætisráðherra hefur fallist á tillögu Þórunnar J. Hafstein, ritara þjóðaröryggisráðs, um að hún láti af störfum sem ritari ráðsins um næstu áramót. Helgi Valberg Jensson tekur við starfi ritara þjóðaröryggisráðs frá sama tíma.

    08. nóv. 2025Forsætisráðuneytið, Atvinnustefna

    Boðið til samtals um nýja atvinnustefnu

    Ríkisstjórnin býður til samtals um nýja atvinnustefnu sem nú er í mótun. Áformaskjal um stefnuna hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

    06. nóv. 2025Forsætisráðuneytið

    Hátíðardagskrá á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn með breyttu sniði

    Á þjóðhátíðardaginn 17. júní fer fram hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá á Austurvelli. Athöfnin verður með breyttu sniði í ár þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra.

    04. nóv. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Ný stuðningsúrræði fyrir Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar 18. mars sl. var samþykkt tillaga forsætisráðherra um að styðja sérstaklega við tekju- og eignaminni heimili Grindvíkinga tímabundið til áramóta á meðan leitað yrði varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra. Þá var jafnframt samþykkt tillaga um að styðja við atvinnulíf í bænum gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja með sérstöku framlagi ríkisins. Útfærsla viðbótarhúsnæðisstuðnings vegna leiguhúsnæðis liggur nú fyrir og vinna við úrræði fyrir atvinnulíf komin vel á veg.

    29. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar kynntur

    Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur á blaðamannafundi í Úlfarsárdal í dag. Pakkinn felur í sér aðgerðir sem fjölga íbúðum, lækka verð og gera húsnæðisstuðning markvissari. Þá verður dregið úr hvata til að safna íbúðum og ráðist í tímabæra tiltekt í húsnæðiskerfinu.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1309/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu forsætisráðuneytis um örugg farsímakerfi sem unnin voru að beiðni þáverandi forsætisráðherra. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna beiðni kæranda var byggð á því að gögnin innihéldu upplýsingar um öryggi ríkisins og samskipti við önnur ríki sem rétt væri að yrðu ekki afhentar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi með vísan til þess að upplýsingar í gögnunum væru settar fram með almennum hætti og í ljósi þess hve langt væri síðan gögnin urðu til, að mikilvægir almannahagsmunir kölluðu ekki á að þeim væri haldið leyndum. Þá taldi nefndin að afhending upplýsinganna væri ekki til þess fallið að skaða samskipti og gagnkvæmt traust gagnvart öðrum ríkjum. Nefndin lagði því fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1308/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1292/2025 frá 21. ágúst 2025. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku máls væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki heldur skilyrði til endurupptöku málsins á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1307/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Mál þetta varðaði beiðnir kæranda um aðgang að gögnum, sem lagðar voru fram á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps, og hefðu ekki verið afgreiddar. Ljóst var að kærandi væri fulltrúi í hreppsnefndinni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að sem sveitarstjórnarfulltrúi hefði kærandi rýmri rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum á grundvelli sveitarstjórnarlaga en samkvæmt upplýsingalögum. Ákvarðanir sveitarfélags og tafir á afgreiðslu beiðna um gögn yrðu þannig ekki kærð til úrskurðarnefndarinnar og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1306/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að tölfræðilegum upplýsingum hjá Reykjavíkurborg um úthlutun félagslegs húsnæðis. Ákvörðun borgarinnar var byggð á því að gagn með upplýsingunum lægi ekki fyrir og að óskylt væri á grundvelli upplýsingalaga að taka þær saman. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Reykjavíkurborgar.

    24. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1305/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að fjárhagsáætlun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. sem samþykkt hefði verið á stjórnarfundi félagsins í október 2024. Ákvörðun félagsins var byggð á því að áætlunin væri vinnugagn og yrði ekki afhent þriðja aðila. Við meðferð málsins hjá úrskurðar¬nefndinni varð ljóst að samþykkt áætlun af stjórnarfundinum lægi ekki fyrir í vörslu félagsins. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að vefengja þá staðhæfingu og staðfesti ákvörðun félagsins.

    23. okt. 2025Ráð og stjórnir, Forsætisráðuneytið

    Atvinnustefnuráð Atvinnustefnuráð starfar sjálfstætt og veitir ráðgjöf í tengslum við mótun og eftirfylgni atvinnustefnu stjórnvalda. Ráðið starfar með samstarfshópi ráðuneyta að tillögugerð um mótun atvinnustefnu og veitir forsætisráðherra, ráðherranefnd um efnahagsmál og ríkisstjórn ráðgjöf um áherslur og framkvæmd stefnunnar. Skipað var í ráðið í september 2025

    22. okt. 2025Forsætisráðuneytið

    Kjölfesta í hringiðu lýðræðisins – forsætisráðherra afhent skýrsla um embættismannakerfið

    Starfshópur um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Í skýrslunni gerir starfshópurinn tillögur að breytingum sem ætlað er að stuðla að auknu sjálfstæði, hreyfanleika og hæfni embættismanna og þar með trausti til stjórnsýslunnar.​

    21. okt. 2025Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Flýta vinnu við undirbúning viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var í dag í opinberri vinnuheimsókn í Nuuk í Grænlandi og fundaði með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, ásamt því að heimsækja stofnanir, skóla og fyrirtæki í höfuðstað landsins. Í heimsókninni áréttuðu leiðtogarnir órofa samstöðu þessara tveggja vinaþjóða og nánu granna á Norðurslóðum og ræddu framgang samstarfs milli landanna á grunni samstarfsyfirlýsingar Íslands og Grænlands frá 2022.

    20. okt. 2025Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra heimsækir Grænland

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hélt í dag í opinbera vinnuheimsókn til Grænlands í boði Jens-Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar. Forsætisráðherra mun funda með formanni landsstjórnarinnar og öðrum ráðamönnum í Nuuk auk þess að heimsækja fyrirtæki og stofnanir.

    17. okt. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Forsætisráðuneytið

    Nýr forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og opnu samráði við hagaðila í samráðsgátt stjórnvalda.

    17. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Mikil tækifæri til að byggja upp starfsemi á Bakka

    Starfshópur um atvinnumál á Húsavík og nágrenni hefur skilað skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Forsætisráðherra skipaði starfshópinn í júní sl. en verkefni hans var að kortleggja stöðu atvinnumála á svæðinu og vinna tillögur að viðbrögðum stjórnvalda í kjölfar tímabundinnar rekstrarstöðvunar kísilvers PCC á Bakka.

    12. okt. 2025Forsætisráðuneytið

    Aðgerðahópur leggur til tímasetta áætlun um brúun umönnunarbilsins

    Aðgerðahópur um brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla hefur skilað skýrslu sinni og tillögu að tímasettri áætlun um brúun umönnunarbilsins. Skýrslan og tillögur hópsins voru til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

    09. okt. 2025Forsætisráðuneytið

    Stefnuræða forsætisráðherra

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

    08. okt. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga NB8-ríkjanna um Úkraínu

    Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) til stuðnings Úkraínu.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1301/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að fundargerð úthlutunarteymis félagslegra leiguíbúða á vegum Reykjavíkurborgar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gagnið og taldi að upplýsingar í því vörðuðu einkamálefni umsækjenda um félagslegt leiguhúsnæði sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt samkvæmt upplýsingalögum. Ákvörðun Reykjavíkurborgar var því staðfest.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1300/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að gögnum um fjölda slysa í málm- og járniðnaði frá 2015 til 2024. Vinnueftirlitið kvað að ekki lægi fyrir gagn með þeim upplýsingum sem beiðnin varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa fullyrðingu Vinnueftirlitsins að gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir lægi ekki fyrir í vörslu stofnunarinnar. Þá taldi nefndin að stofnuninni væri óskylt að taka upplýsingarnar saman fyrir kæranda. Var afgreiðsla Vinnueftirlitsins á beiðni kæranda því staðfest.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1299/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Garðabæjar sem samanstóðu af yfirlitum úr málaskrá bæjarins. Við meðferð málsins hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál voru gögnin afhent kæranda. Kærandi taldi að hjá bænum lægju fyrir gögn sem ekki væru tilgreind á yfirlitunum. Kæru í málinu var vísað frá nefndinni þar sem ekki lá fyrir að Garðabær hefði tekið afstöðu til þess álitamáls.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1298/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum í tengslum við mál sem fagráðið hefði haft til meðferðar. Ákvörðun fagráðsins var byggð á lagaheimild til að takmarka aðgang að gögnum vegna hagsmuna barns. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kærenda til aðgangs að gögnunum færi samkvæmt III. kafla upplýsingalaga. Nefndin taldi að þótt kærendur hefðu hagsmuni af að fá aðgang að gögnunum vægju hagsmunir annarra af að upplýsingar í þeim færu leynt þyngra, þar sem upplýsingarnar væru viðkvæmar og afhending til kærenda til þess fallin að skaða hagsmuni þeirra sem tilgreindir væru í gögnunum. Ákvörðun fagráðsins var því staðfest.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1297/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Skattsins um þá afstöðu að beita ekki sektum þótt erlend flugfélög afhentu ekki íslenskum tollyfirvöldum upplýsingar um farþega. Skatturinn taldi að réttur kæranda næði ekki til aðgangs að gögnunum þar sem þau innihéldu þagnarskyldar upplýsingar samkvæmt tollalögum og væru að auki undirorpin takmörkunum samkvæmt upplýsingalögum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og taldi að mikill meirihluti upplýsinga í gögnunum félli undir þagnarskylduákvæði tollalaga auk 1. og 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Ákvörðun Skattsins var því staðfest.

    25. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1296/2025. Úrskurður frá 25. september 2025

    Deilt var um hvort ákvarðanir mennta- og barnamálaráðuneytis um afgreiðslur beiðna kærenda um gögn hefðu verið fullnægjandi. Kærendur höfðu óskað eftir gögnum á upprunalegu sniði þeirra. Ráðuneytið taldi að gögnin hefðu verið afhent í samræmi við ákvæði upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að þar sem gögnin væru varðveitt á upprunalegu sniði í vörslu ráðuneytisins ættu kærendur rétt til aðgangs að þeim.

    24. sep. 2025Utanríkismál, Alþjóðamál, Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Átakanleg örlög brottnuminna úkraínskra barna rædd í New York

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í viðburði um úkraínsk börn, sem Úkraínuforseti og forsætisráðherra Kanada, ásamt eiginkonum þeirra, skipulögðu í tengslum við setningu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Rússar hafa numið á brott þúsundir úkraínskra barna og ungmenna frá því ólögleg innrás þeirra í Úkraínu hófst fyrir meira en þremur og hálfu ári síðan. Kanada og Úkraína leiða saman hóp 41 ríkis, sem vinnur að því að tryggja að börnin fái að snúa aftur heim.

    23. sep. 2025Alþjóðamál, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði allsherjarþing SÞ á tímamótum

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði í gær allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York á sérstökum viðburði í tilefni þess að 30 ár eru nú frá sögulegri kvennaráðstefnu í Peking í Kína. Í ræðu sinni fagnaði forsætisráðherra þeim árangri sem náðst hefur í jafnréttismálum á heimsvísu síðustu áratugi – en benti sömuleiðis á að enn sé víða langt í land á ýmsum sviðum.

    22. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja 80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í þessari viku. Í dag sátu þær sérstakan hátíðarviðburð í tilefni áttatíu ára afmælis samtakanna, fundað var með Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóra og síðar í dag fer fram sérstakur leiðtogafundur um tveggja ríkja lausnina í Mið-Austurlöndum.

    09. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Ríkisstjórn

    Formenn kynntu verkefnalista ríkisstjórnarinnar

    Á blaðamannafundi í morgun fóru formennirnir yfir þingmálaskrá, ýmis frumvörp og aðgerðir sem ríkisstjórnin mun ráðast í á 157. löggjafarþingi.

    05. sep. 2025Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Aukin áhersla á öryggismál á Norður-Atlantshafi á leiðtogafundi JEF í Ósló

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF – Joint Expeditionary Force) í Ósló. Í JEF-samstarfinu eru ásamt Íslandi hin Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bretland og Holland.

    04. sep. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Samstaða og samráð á óvissutímum

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti síðdegis í dag fundi með Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), og António Costa, forseta leiðtogaráðs ESB.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármálaáætlun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikilvægur áfangi um úrbætur í öryggisráðstöfunum

    Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekið afgerandi skref um úrbætur í þjónustu og úrræðum fyrir einstaklinga sem sæta þurfa sérstökum öryggisráðstöfunum. Um er að ræða einstaklinga sem geta verið sjálfum sér og öðrum hættulegir en hafa fallið milli þjónustukerfa ríkis og sveitarfélaga. Þessir einstaklingar glíma gjarnan við alvarlegar þroska- og/eða geðraskanir og geta verið ósakhæfir, en einnig sakhæfir sem lokið hafa afplánun og þurfa mikinn stuðning í samfélaginu utan réttarvörslukerfis.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1268/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem ákvarðanir Alþingis um aðgang að gögnum sættu ekki kæru til nefndarinnar.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1267/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem erindi kæranda til ríkissaksóknara bæri ekki með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1266/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi framkvæmdastjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var á því byggð að gögnin vörðuðu málefni starfsmanna félagsins og væru því undanþegin aðgangi samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að ráðningarsamningar væru gögn í málum sem vörðuðu ráðningu einstakra starfsmanna í starf og því væri almennt heimilt að takmarka aðgang að slíkum samningum á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi hins vegar með vísan til þess að framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teldist til æðstu stjórnenda félagsins að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum um launakjör hans sem fram kæmu í ráðningarsamningnum. Að öðru leyti var ákvörðun félagsins staðfest.

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband