09. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Skipulagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Samtalið hafið um aðlögun sveitarfélaga að breyttum heimi
Loftslagsbreytingar munu hafa áhrif á íslenskt samfélag og lífríki bæði með beinum og afleiddum hætti og byggja þarf upp þekkingu á því hver möguleg áhrif loftslagsbreytinga gætu orðið á byggðir landsins. Þetta var meðal umræðuefna á fundinum Aðlögun að breyttum heimi – hefjum samtalið, sem haldin var á Grand hótel í dag.