02. júl. 2020Atvinnuvegir, Neytendamál, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Orka, Siglingar, Atvinnuvegaráðuneytið
Milljarði varið í fjárfestingar vegna innviða fyrir orkuskipti á tveimur árum
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að veita 200 milljónum króna í styrki til uppbyggingar innviða fyrir orkuskipti í samgöngum. Þetta kemur til viðbótar við styrki sem úthlutað var á síðasta ári, en að teknu tilliti til mótframlags styrkþega verður fjárfesting í innviðum vegna orkuskipta alls um milljarður króna á tveimur árum.