Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Menntamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 251–300 af 858
    Raða eftir:
    12. maí 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Niðurstöður PISA 2022

    Niðurstöður í PISA 2022 voru birtar í dag. Könnunin mælir hæfni 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Niðurstöðurnar sýna verri árangur nemenda í þátttökulöndum miðað við fyrri kannanir, m.a. á öllum Norðurlöndum og er lækkunin meiri á Íslandi.

    04. maí 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Úthlutunarreglur Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2023-2024

    Háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur birt nýjar úthlutunarreglur Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2023-2024 í Stjórnartíðindum. Í nýjum reglum er mikilvægt skref stigið til að bæta fjárhagslegt öryggi og sveigjanleika fyrir foreldra í námi og hækka skólagjaldalán til læknanema erlendis. Um leið er staðið vörð um framfærslu námsmanna en meginmarkmið laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna er að tryggja jöfn tækifæri til náms.

    01. maí 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fréttaannáll háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis 2022

    Árið var viðburðaríkt í starfsemi nýs ráðuneytis en hlutverk þess er að leysa úr læðingi þá krafta sem myndast við samþættingu háskóla, vísinda, rannsókna, iðnaðar, upplýsingasamfélags, hugverka, fjarskipta, netöryggis og nýsköpunar. Þar með skapast grundvöllur fyrir markvissari stefnumótun og stjórnsýslu á þessum sviðum með aukinn vöxt, verðmætasköpun og velsæld að markmiði.

    01. maí 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Fjárfesting í röddum kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks skóla um allt land

    Styrkir til kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks skóla á leik- grunn- og framhaldsskólastigi til þátttöku í samráði um uppbyggingu heildstæðrar skólaþjónustu á Íslandi.

    25. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar

    Ánægja með nám og námsumhverfi við Landbúnaðarháskóla Íslands

    Gæðaráð íslenskra háskóla hefur birt niðurstöður úttektar á getu Landbúnaðarháskóla Íslands til þess að tryggja gæði þeirra námsgráða sem hann veitir og þess námsumhverfis sem hann býður nemendum sínum.

    24. apr. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stýrihópur um eflingu framhaldsskóla

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Verkefni hópsins er að móta aðgerðir til að ná markmiðum menntastefnu stjórnvalda til 2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu verk- og starfsnáms. Stefnan byggir á þeirri sýn að veitt skuli framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Tillögur hópsins munu einnig byggja á markmiðum stjórnvalda um að auka farsæld barna og ungmenna, m.a. með samþættingu kerfa, aukinni skólaþjónustu og hagræðingu, eftirfylgni og samvinnu.

    21. apr. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýtt húsnæði Tækniskólans – tillögur verkefnisstjórnar

    Nýr 24.000–30.000 fermetra Tækniskóli fyrir 2.400–3.000 nemendur mun rísa í Hafnarfirði og skoða þarf sameiningu Flensborgarskólans við Tækniskólann. Þetta er tillaga verkefnisstjórnar um framtíðarhúsnæði Tækniskólans til mennta- og barnamálaráðherra.

    19. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál, Fjármálaáætlun

    Ný sókn í þágu háskóla og samfélags

    Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára felur í sér 6 ma. kr. aukningu til háskólastigsins, árið 2028, samanborið við fyrri áætlanir. Áætlunin er í samræmi við áherslu ríkisstjórnarinnar að fjárfesta í vaxtartækifærum framtíðar. Strax á árinu 2024 er aukningin um 3,5 ma. kr. frá áætlun úr fjárlögum frá sl. hausti.

    10. apr. 2023Rit og skýrslur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Skilabréf og tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag að Reykjum

    október 2023 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Skilabréf og tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag að Reykjum Mennta- og barnamálaráðherra skipaði hinn 24. júní 2022 starfshóp til að koma með tillögur um framtíðarfyrirkomulag á Reykjum og Reykjatorfunni, eflingu starfsnáms, rannsókna og nýsköpunarstarfs á Reykjum

    10. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Lengdur umsóknarfrestur í Samstarf háskóla

    Umsóknarfrestur í Samstarf háskóla hefur verið framlengdur til 31. október. Háskólar og samstarfsaðilar þeirra skila umsóknum til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins en áætlað er að úthluta allt að einum milljarði króna til verkefna sem snúa að auknu samstarfi háskóla á yfirstandandi ári. Opnað var fyrir umsóknir í júní sl.

    09. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Menntamál

    Mikil tækifæri í þekkingarsetrum

    Þekkingarsetrin gegna mikilvægu þjóðfélagshlutverki í dag og styðja við samfélagið með fjölbreyttum hætti.

    07. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Skóflustunga tekin að nýju húsi heilbrigðisvísinda

    Húsið mun gjörbylta aðstöðu til kennslu og rannsókna í heilbrigðisvísindum en í því munu nær allar deildir Heilbrigðisvísindasviðs sameinast í nýrri rannsókna- og kennslubyggingu.

    04. apr. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Erlendir nemendur efla háskólastig á Íslandi

    Efnt var til stefnumarkandi umræðu um erlenda háskólanema og þýðingu þeirra fyrir íslenska háskóla á vinnustofu sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra stóð nýlega fyrir.

    23. mar. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Nýsköpun, Menntamál

    Þriggja ára dvalarleyfi erlendra háskólanema á Íslandi að námi loknu

    Nýtt og skilvirkara kerfi um atvinnuréttindi útlendinga utan EES felur meðal annars í sér stóraukin réttindi erlendra háskólanema hér á landi sem nú fá þriggja ára dvalarleyfi að námi loknu.

    22. mar. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Raunvísindastofnun felld undir Háskóla Íslands

    Raunvísindastofnun Háskólans hefur nú verið felld undir Háskóla Íslands. Stofnunin hefur um langt árabil verið rekin á grunni sjálfstæðs fjárlagaliðs en með breytingunni er ríkisrekstur einfaldaður og dregið úr óhagræði í rekstri.

    16. mar. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Menntamál, Háskólar, Iðnaður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fleiri karlkyns háskólanemar forsenda vaxtatækifæra Íslands

    Í ávarpi sínu á Iðnþingi í liðinni viku fjallaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um að á Íslandi vantar níu þúsund sérfræðinga á næstu fimm árum ef vaxtaspár hugverkaiðnaðarins eiga að ná fram að ganga. Ljóst er að hærra hlutfall háskólamenntaðra ungra karlmanna á Íslandi getur að miklu leyti komið í veg fyrir að mannauður hamli vaxtatækifærum landsins.

    14. mar. 2023Innviðaráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fjarskipti, Háskólar, Netöryggi, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kallað eftir samráði um eflingu þekkingarsamfélags á Íslandi

    Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025 hefur verið birt í Samráðsgátt. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hvetur öll áhugasöm til að láta sig málið varða.

    13. mar. 2023Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Matsferill – stefna um nýtt námsmat grunnskóla til umsagnar í Samráðsgátt

    Matsferill er nýtt fyrirhugað námsmat fyrir grunnskóla landsins sem kemur í stað samræmdra könnunarprófa. Matsferli er ætlað að vera öflugt verkfæri fyrir skólana til að leggja mat á kunnáttu, leikni og hæfni nemenda á fjölbreyttan og einstaklingsmiðaðan hátt. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur markað stefnu við gerð matferils og kallar eftir umsögnum í Samráðsgátt stjórnvalda frá kennurum, skólastjórnendum og öðrum haghöfum.

    10. mar. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Viljayfirlýsing um aukið samstarf og mögulega sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst undirrituð

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingu starfandi rektor Háskólans á Akureyri og rektor Háskólans á Bifröst um að hefja formlegar viðræður um samstarf og mögulega sameiningu háskólanna.

    05. mar. 2023Menntamál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tungumál sem lykill að samfélaginu og STEAM-greinar sem lykill að framþróun

    Leggja þarf meiri áherslu á tungumálakennslu barna með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn á Norðurlöndum og efla hæfni norrænna þjóða þegar kemur að STEAM-greinum. Þetta kom fram þegar norrænir ráðherrar menntamála ræddu mikilvægi menntunar fyrir skóla án aðgreiningar og þróun í nemendasamsetningu. Fundurinn var haldinn í Reykjavík sem liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    27. feb. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Iðnaður, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Öflugra nám í vísinda- og tæknigreinum með Samstarfi háskóla

    12 verkefni af 25 sem nýlega hlutu styrk úr Samstarfi háskóla hafa það að markmiði að efla kennslu og nám í STEAM greinum hér á landi. Fjölgun nemenda í þessum greinum er forsenda þess að Ísland geti mætt tækifærum fjórðu iðnbyltingarinnar og eflt nýsköpun í atvinnulífi. Það er því nauðsynlegt að íslenskir háskólar leggi aukna áherslu á STEAM greinar í náinni framtíð, en árið 2020 lögðu aðeins um 19% íslenskra háskólanema stund á nám á því sviði sem er töluvert lægra hlutfall en gengur og gerist á Norðurlöndunum.

    24. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Ný þjónustustofnun á sviði menntamála til umsagnar í Samráðsgátt

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt frumvarp um nýja þjónustustofnun á sviði menntamála til umsagnar í Samráðsgátt. Markmiðið með þessum breytingum er að svara ákalli um aukinn stuðning við fjölbreytt verkefni skólasamfélagsins. Nýja stofnunin mun taka yfir hluta verkefna Menntamálastofnunar, sem verður lögð niður. Hún verður þjónustumiðuð stofnun sem mun m.a. sinna verkefnum á grundvelli laga um heildstæða skólaþjónustu sem eru í undirbúningi. Frestur til umsagna er til 10. mars 2023.

    23. feb. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Löggæsla, Menntamál

    Niðurstöður eftirfylgniúttektar á lögreglufræðinámi við HA

    Gæðaráð íslenskra háskóla hefur nú birt niðurstöður eftirfylgniúttektar á gæðum náms í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Úttektin er liður í skipulegu eftirliti ráðsins með gæðum íslenskra háskóla með áherslu á nemendur, námsumhverfi og prófgráður.

    11. feb. 2023Menntamál, Menntastefna, Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Barnaréttur

    Ráðstefna: Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni?

    Hvernig getur réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi unnið gegn hatursorðræðu í skólastofunni er umfjöllunarefni ráðstefnu sem fer fram 16. nóvember kl. 9:00–15:30 í Hörpu. Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnunni sem er hluti af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og afmæli Barnasáttmálans sem fagnar 34 ára afmæli 20. nóvember nk.

    06. feb. 2023Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Streymi af samráðsfundi um framtíðarskipan skólaþjónustu

    Yfir fjögur hundruð hafa skráð sig á samráðsfund mennta- og barnamálaráðherra um framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi nk. mánudag 5. júní kl. 10:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu. Fundurinn markar þann síðasta í opna samráðsferlinu og er nýtt skipulag skólaþjónustu að taka á sig mynd. Honum verður verður streymt á vef Stjórnarráðsins með táknmálstúlkun.

    03. feb. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Meira og betra verknám

    Auka þarf verulega námsaðstöðu til starfsnáms í framhaldsskólum og móta aðgerðaáætlun til draga úr húsnæðisnotkun í bóknámi út frá spá um þróun á fjölda nemenda í framhaldsskólum til ársins 2033. Þetta er niðurstaða greinargerðar um húsnæðisþörf í framhaldsskólum næstu tíu árin sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti í morgun. Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur nú að áætlun um hvernig brugðist verði við þessum breytingum á næstu árum.

    31. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar, Stafrænt Ísland, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samningur um þróun sameiginlegrar innritunargáttar háskóla undirritaður

    Samningur um þróun upplýsingakerfis fyrir umsóknir og innritun í íslenska háskóla var undirritaður af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Andra Heiðari Kristinssyni, framkvæmdastjóra Stafræns Íslands í dag.

    27. jan. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samstarfshópur um framhaldsfræðslu hefur störf

    Samstarfshópur um heildarendurskoðun framhaldsfræðslu hefur hafið störf. Formaður hans er Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, og hittist hópurinn á fyrsta fundi í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ræddi við fundargesti og óskaði þeim velfarnaðar í störfum sínum.

    27. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Sjálfbært Ísland, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Menntamál

    Sjálfbær matvælaframleiðsla meðal áherslna í Samstarfi háskóla

    Öflugt háskólanám í þágu fiskeldis og framleiðsla nýrra próteina eru meðal verkefna sem hljóta styrk úr Samstarfi háskólanna og hafa aukna sjálfbærni að markmiði. Við mat umsókna í verkefni Samstarf háskóla var sérstaklega litið til möguleika á aukinni sjálfbærni m.t.t. meginmarkmiðs um samvinnu háskóla landsins í þágu samfélagsins. Alls tilheyra 9 af þeim 25 verkefnum sem hljóta styrk þessum áhersluflokki, en flest verkefnanna styðja við tvö eða fleiri markmið.

    24. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Vel gengur að fjölga kennurum

    Í dag er alþjóðlegur dagur menntunar. Án kennara getur menntun ekki átt sér stað og varð skortur á kennurum til þess að stjórnvöld settu af stað fimm ára átaksverkefni um nýliðun kennara vorið 2019. Útskrifuðum kennurum hefur fjölgað umtalsvert frá því að átaksverkefnið hófst. Á síðasta ári útskrifuðust 454 kennarar frá þeim háskólum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi. Það er 160% aukning miðað við meðaltal áranna 2015–2019.

    24. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Sex samstarfsverkefni háskólanna styðja við aukna áherslu á heilbrigðis- og menntavísindi

    Fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum með nýjum færnibúðum, þverfaglegt meistaranám í heilbrigðislausnum og í svefni og fjölgun fagmenntaðs leikskólastarfsfólks eru meðal verkefna sem hljóta styrk úr Samstarfi háskólanna og hafa það að markmiði að efla mannauð í heilbrigðis- og menntavísindum.

    19. jan. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Háskólarnir taka höndum saman til að auka gæði náms og bæta þjónustu við námsmenn

    Verkefnin 25 sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynnti nýlega að hlytu styrki til aukins samstarfs háskóla koma frá öllum háskólum landsins. Styrkirnir, sem samtals nema tæplega 1,2 milljörðum króna að þessu sinni, renna þannig til margvíslegra samstarfsverkefna þar sem allir háskólarnir sjö koma að 6 til 20 verkefnum hver. Þá er hver og einn háskólanna í forsvari fyrir a.m.k. eitt samstarfsverkefni.

    11. jan. 2023Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýir styrkir til skólaþróunar – ertu með góða hugmynd?

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefna á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfs. Um nýja styrki er að ræða til að efla skólaþróun um allt land í samræmi við aðgerð 2 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030.

    31. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Alþjóðlegur sérfræðingahópur skilar mati vegna umsóknar Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði nýverið, að tillögu gæðaráðs íslenskra háskóla, matsnefnd erlendra sérfræðinga til að fjalla um umsókn Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu. Gert var ráð fyrir að matið færi fram í tveimur áföngum og núna liggur fyrir niðurstaða í fyrri hluta þess.

    14. des. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Réttindi og þátttaka barna í málefnum þeirra

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði nýlega samning við alþjóðlegu samtökin Child Rights Connect. Samningurinn styður við réttindamiðaða nálgun í málefnum barna á Íslandi og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann fellur vel að stefnu Íslands um Barnvænt Ísland og samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

    10. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti stofnun Vigdísar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands, Ásdísi Rósu Magnúsdóttur, forstöðumanns stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Ann-Sofie Nielsen Gremaud stjórnarformann Vigdísarstofnunar og fleira starfsfólki HÍ og stofnunarinnar í dag.Ráðherra fékk góða kynningu á því merka starfi sem sinnt er hjá stofnuninni, helstu verkefnum og húsnæðinu Veröld Vigdísar. Ráðherra fékk einnig kynningu á fyrirhugaðri sýningu í Loftskeytamiðstöðinni um ævi og störf frú Vigdísar Finnbogadóttur sem verður opnuð á vormánuðum.

    10. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Innflytjendur, Nýsköpun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland býður erlenda sérfræðinga velkomna

    Fjórar leiðir hafa nú verið kynntar fyrir ríkisstjórn sem ætlað er að liðka fyrir komu erlendra sérfræðinga og aðgengi að sérhæfðri þekkingu, en þær falla undir ábyrgðarsvið nokkurra ráðuneyta.

    07. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Háskólar, Úkraína, Menntamál

    Námsframboð íslenskra háskóla til úkraínskra námsmanna á flótta

    Á island.is er nú að finna upplýsingar fyrir úkraínska háskólanema sem dvelja nú á Íslandi um námsmöguleika í íslenskum háskólum. Þar má nálgast allar upplýsingar bæði á ensku og úkraínsku.

    05. des. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál

    Ráðherra kynnir nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti á Nýsköpunarviku

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnir nýtt ráðuneyti í Grósku mánudaginn 16. maí klukkan 12:10.

    05. des. 2022Menntamál, Úkraína, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við sveitarfélög vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu

    Mennta- og barnamálaráðuneytið mun leggja fé til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta frá Úkraínu og fjölskyldur þeirra eru með búsetu. Markmiðið er að brúa bilið fram að hausti með tímabundnum stuðningi við móttöku barnanna og skólastarf til að stuðla að virkri þátttöku þeirra.

    04. des. 2022Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samráðsfundum um Matsferil lokið

    Samráðsfundum Menntamálastofnunar og mennta- og barnamálaráðuneytisins um Matsferil er nú lokið. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem ætlað er að koma í stað samræmdra könnunarprófa sem ekki verða lögð fyrir. Umræður og endurgjöf fundargesta eru nauðsynlegt og gagnlegt innlegg í áframhaldandi þróun námsmatsins.

    25. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Nýsköpun, Menntamál

    Áslaug Arna kynnti sér árangursmiðaða stefnumörkun í Singapúr

    Umgjörð stefnumótunar stjórnvalda í Singapúr þegar kemur að rannsóknum, nýsköpun og uppbyggingu fyrirtækja hefur gefið góða raun.

    25. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Atvinnuvegir

    14% fjölgun barna- og ungmennabóka milli ára

    Til marks um grósku í íslenskri bókaútgáfu fjölgar barna- og ungmennabókum sem kynntar voru á árlegri barnabókamessa Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir starfsfólk leikskóla og skólabókasafna um 14% milli ára. Viðburðinn er mikilvægur gluggi fyrir lykilfólk í læsisuppeldi yngri kynslóða en Lilja Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra leit við á messunni í Hörpu.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menntamál, Neytendamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Viðskipti, Menningarmál

    Fundaði með viðskiptaráðherra Suður-Kóreu

    Aukin viðskipti og efnahagsleg samvinna milli Íslands og Suður Kóreu var á meðal umræðuefna Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með Ahn Duk-geun viðskiptaráðherra Suður-Kóreu í Seúl. Samningar á sviði tvísköttunar og fríverslunar eru í gildi milli landanna en árið 2020 nam umfang inn- og útflutnings milli Íslands og Suður-Kóreu um 8 milljörðum króna. Suður kóresk fyrirtæki hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum á umliðnum árum, má þar nefna kaup Kóreubúa á tölvuleikjafyrirtækinu CCP árið 2018 fyrir um 46 milljarða íslenskra króna.

    24. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál

    Betra aðgengi að gögnum á ensku og skjótari afgreiðsla opinberra aðila forgangsmál fyrir alþjóðlega sérfræðinga á Íslandi

    Fjölsótt vinnustofa fór fram í vikunni þar sem rætt var um stöðu alþjóðlegra sérfræðinga á Íslandi og hvar tækifæri liggja til að gera betur í þeim málum.

    22. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Nýsköpun, Menntamál

    Tækifæri fólgin í alþjóðlegu samstarfi við háskóla í Singapúr

    Háskólar í Singapúr eru eftirsóttir á heimsmælikvarða og því fagnaðarefni ef aukið samstarf milli háskóla á Íslandi og í Singapúr verður að veruleika.

    16. nóv. 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntastefna, Menntamál

    Ráðstefna um farsæla skólagöngu allra barna – upptaka og áframhaldandi samráð

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt upptöku af öllum erindum og pallborðsumræðum á ráðstefnu um farsæla skólagöngu allra barna sem haldin var á mánudag, 14. nóvember 2022. Ráðstefnan var vel sótt með 260 ráðstefnugestum og 1.827 í streymi.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Barnaréttur, Ferðaþjónusta, Iðnaður, Jafnrétti, Mannréttindi, Sveitarfélög, Atvinnuvegir

    Dúndur diskó Bragi Valdimar fékk verðlaun Jónasar

    Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og textasmiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni verkefnið Tungumálatöfrar á Ísafirði sem býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir fyrir fjöltyngd börn.

    02. nóv. 2022Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 aflétt

    Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott frá og með morgundeginum 12. febrúar með gildistöku nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir. Breytingin felur í sér rýmkun á sóttvarnareglum, fjöldatakmörk verða 200 manns og heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.

    27. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Fyrsti hópur brautskráður úr nýrri námsleið í hjúkrunarfræði

    Söguleg útskriftarathöfn fór fram í Háskóla Íslands í liðinni viku þar sem fyrstu nemendur sem ljúka námi af nýrri tveggja ára námsleið í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf tóku við prófskírteinum sínum.

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband