06. apr. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19
Umfang stærstu aðgerða vegna heimsfaraldurs 95 milljarðar króna
Umfang stærstu stuðningsaðgerða ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru er nú ríflega 95 milljarðar króna. Hlutabætur eru þar umfangsmestar en næst kemur frestun skattgreiðslna, stuðnings- og viðbótarlán, greiðsla launa á uppsagnarfresti, tekjufalls-, viðspyrnu og lokunarstyrkir. Undanfarna mánuði hafa rúmir 15 milljarðar króna verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki.