09. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir
Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.