Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Sjávarútvegur
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 400
    Raða eftir:
    25. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár. Reglugerðin fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf stofnunarinnar byggir á því að nýta stofna miðað við hámarksafrakstur að teknu tilliti til vistkerfis- og varúðarnálgunar.

    21. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðstefna 22.júní: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við.

    14. maí 2021Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn: 630 milljónir til úthlutunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Margrét Hólm Valsdóttir, formaður Matvælasjóðs, opnuðu í dag fyrir umsóknir í Matvælasjóð. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á þessu ári og er heildarúthlutunarfé sjóðsins alls 630 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

    02. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um aukinn loðnukvóta

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun síðdegis í gær ráðgjöf um veiðar á allt að 127.300 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Er það aukning um 66.300 frá fyrri ráðgjöf.

    01. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðu loðnuleitar. Vísaði ráðherra til þess í gær fóru bæði rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar ásamt þremur uppsjávarskipum til mælinga á loðnustofninum. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun hefja mælingar út af Vestfjörðum en rs. Bjarni Sæmundsson mun leita og mæla á grunnslóð út af Norðurlandi. Uppsjávarskipin Aðalsteinn Jónsson, Ásgrímur Halldórsson og Polar Amarok munu leita út af Austfjörðum, Norðausturlandi og djúpt út af norðanverðu landinu. Alls eru um 20 sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar um borð í skipunum auk sjómanna skipanna. Því eru um 75-80 manns sem koma beint að verkefninu á hafi úti.

    28. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum

    Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna sem styðja við markmið sjóðsins um lágmörkun umhverfisáhrifa af völdum sjókvíaeldis, samkvæmt reglugerð nr. 874/2019.

    23. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aflamark í ýsu aukið um 8.000 tonn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis að aflamark í ýsu verði aukið um 8.000 tonn þ.e. úr 44.419 tonnum í 52.419 tonn.

    31. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Þorsteinn Sigurðsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna.

    26. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um veiðar á loðnu

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf um veiðar á allt að 61.000 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Er það aukning um 39.200 frá fyrri ráðgjöf.

    22. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu forstjóra Hafrannsóknarstofnunar

    Alls bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020 en umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar sl.

    12. jan. 2021Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stækkun veiðisvæðis loðnu með flotvörpu

    Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð nr. 1161/2021, en við hana bætist bráðabirgðaákvæði og verður með því heimilt til og með 31. desember 2021 að stunda veiðar á loðnu með flotvörpu á svæði sem afmarkast af ákveðnum svæðum.

    06. jan. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um ákvörðun makrílafla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um ákvörðun makrílafla íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samningssvæði Norðaustur-Atlanthshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja árið 2021.

    18. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    120 m.kr. aukaframlag til loðnuleitar

    Hafrannsóknastofnun mun fá 120 milljón króna aukaframlag samkvæmt breytingartillögum fyrir 3. umræðu fjárlaga næsta árs til rannsókna og leitar að loðnu. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fundaði í gær með fulltrúum stofnunarinnar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um fyrirkomulag loðnuleitar á næstu vikum og mánuðum. Samstaða er um að leitin verði eins umfangsmikil og þörf er á enda miklir hagsmunir í húfi.

    16. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Strandríkin sammála um heildarafla í makríl

    Viðræður strandríkjanna Íslands, Bretlands, Evrópusambandsins, Færeyja, Grænlands og Noregs, um stjórn veiða úr stofni makríls í Norðaustur Atlantshafi, fóru fram dagana 26.-27. október og 25. nóvember sl. Eins og kunnugt er hafa Evrópusambandið, Færeyjar og Noregur haft með sér samkomulag um skiptingu aflaheimilda frá árinu 2014 en það rennur sitt skeið í árslok og hafa þessir aðilar ekki náð samkomulagi um áframhald þess. Á fundunum náðist ekkert samkomulag um skiptingu aflaheimilda.

    16. des. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður úthlutar í fyrsta sinn: 62 verkefni hljóta styrk

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti fyrstu úthlutun Matvælasjóðs í morgun en alls hljóta 62 verkefni styrk að fjárhæð allt að 480 milljónir að þessu sinni. Alls bárust 266 umsóknir um styrki upp á 2,7 ma.kr. Hægt er að fylgjast með upptöku frá úthlutuninni hér, en hún var í beinu streymi. Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs kynnti úthlutunina og vinnu stjórnar og fagráða sjóðsins.

    16. des. 2020Covid-19, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun Matvælasjóðs: Beint streymi í dag kl 9:30

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi í dag, 16. desember 2020, kl. 09:30. Alls bárust 263 umsóknir um styrki. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn var stofnaður í apríl, en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt.

    26. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Minnihlutavernd í veiðifélögum verði styrkt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, sem miðar einkum að því að styrkja minnihlutavernd í veiðifélagi með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frumvarp sem stefndi að sömu markmiðum, en það varð ekki að lögum. Unnið hefur verið með þær athugasemdir og tillögur sem fram komu við meðferð málsins á Alþingi og er frumvarpið afrakstur þeirrar vinnu.

    24. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla um útflutning á óunnum fiski

    Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um álitaefni sem varða útflutning óunnins fisks og áhrifa á íslenskt atvinnulíf og samfélag. Sjávarútvegsmiðstöðinni var falið að vinna hana eftir fyrirspurn frá atvinnuveganefnd Alþingis.

    17. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 39. í röðinni, var haldinn í gegnum fjarfundabúnað dagana 10.-13. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Bretar gerðust nýlega aðilar að ráðinu eftir útgöngu sína úr Evrópusambandinu, en auk þeirra eru aðilar NEAFC Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    17. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra undirritaði nýjan þjónustusamning við Matís

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Matís hafa undirritað tvo nýja samninga, þjónustusamning til að tryggja öryggisþjónustu á sviði matvælarannsókna í þágu landsmanna og samning um eflingu starfsemi Matís á landsbyggðinni.

    15. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Unnið að hvítbók um vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland

    Hafrannsóknastofnun vinnur nú að hvítbók um umhverfis og vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland og mögulegar sviðsmyndir eða afleiðingar áhrifa loftslagsbreytinga. Vinnan er unnin að frumkvæði Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en ráðherra gerði grein fyrir vinnunni í ávarpi á ársfundi Hafrannsóknastofnunar á föstudag. Áformað er að skýrslan liggi fyrir í apríl á næsta ári.

    12. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Matvælasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun Matvælasjóðs: Beint streymi 16. desember

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi þann 16. desember 2020 kl. 09:00.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Styrkveitingar haustið 2020

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag við Breta um framtíðarsamstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

    09. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði um fyrirkomulag loðnuleitar

    Fyrirkomulag loðnuleitar í haust og vetur var til umræðu á fundi sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðaði til í gær með fulltrúum Hafrannsóknastofnunar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Á fundinum fóru fulltrúar Hafrannsóknastofnunar yfir fyrirhugaða leit. Þar kom fram að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur í haustleiðangur á mánudaginn og stendur hann yfir í 22 daga. Jafnframt mun rannsóknarskip á vegum Grænlendinga taka þátt í leiðangrinum. Munu skipin leita í september og október fyrir norðan og vestan land en einnig langt norður með austurströnd Grænlands. Er tilgangur leiðangursins að meta stærð loðnustofnsins og veita endurskoðaða ráðgjöf um hámarksafla á komandi vertíð.

    06. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Óskað eftir umsögnum um fiskeldi

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum þriggja stofnanna og viðkomandi sveitarfélaga um hvort rétt sé að lýst verði yfir banni við eldi laxfiska af eldisstofni í sjókvíum í Eyjafirði, Jökulfjörðum og í sunnanverðum Norðfjarðarflóa, það er í Viðifirði og Hellisfirði.

    16. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra skipar í embætti þriggja skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

    Nýtt skipurit atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins tók gildi í þessum mánuði en með breytingunum urðu til þrjár nýjar fagskrifstofur í stað tveggja áður. Um er að ræða skrifstofu landbúnaðarmála, skrifstofu matvælaöryggis og fiskeldis og skrifstofu sjávarútvegsmála.

    13. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra fellur frá gjaldskrárhækkun MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að falla frá öllum gjaldskrárhækkunum Matvælastofnunnar á árinu 2020 vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins á íslenska matvælaframleiðendur.

    12. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    07. okt. 2020Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Orkídeu ýtt úr vör

    Orkídeu, nýju samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi, hefur verið ýtt úr vör með undirskrift fulltrúa allra þeirra sem að verkefninu standa, en það eru Landsvirkjun, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóli Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    07. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Auðlindir

    Skýrsla verkefnastjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni afhent ráðherra

    Verkefnastjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni hefur afhent Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lokaskýrslu sinni. Ráðherra skipaði verkefnastjórnina í mars 2019 til þess að fjalla um þær athugasemdir og ábendingar sem komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í desember 2018 um Eftirlit Fiskistofu og gera tillögur um úrbætur í rekstri Fiskistofu einkum er varðar verklag og áherslur er snúa að eftirlitshlutverki hennar. Enn fremur var verkefnastjórninni falið að leggja mat á fjárþörf Fiskistofu til að hún geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum og að lokum að setja fram ábendingar um nauðsynlegar breytingar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem varða hlutverk og viðfangsefni stofnunarinnar til að tryggja skilvirkni í störfum hennar.

    06. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Opinn fundur um fiskeldi á Norðurlandi í Hofi á fimmtudag

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið boðar til opins fundar, í Hofi á Akureyri, um fiskeldi á Norðurlandi. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum, en þar flytja framsögu fulltrúi veiðiréttarhafa og fulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    01. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Tillögur um skilgreiningu á tengdum aðilum

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti tillögur verkefnastjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinn er varðar endurskoðun á m.a. skilgreiningu á tengdum aðilum í lögum um stjórn fiskveiða á ríkisstjórnarfundi í morgun. ​

    23. sep. 2020Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    263 umsóknir í Matvælasjóð

    Alls bárust 263 umsóknir um styrki úr nýstofnuðum Matvælasjóði, en umsóknarfrestur var til mánudagsins 21. september 2020. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar og næstu skref eru þau að umsóknirnar fara til fagráða sjóðsins sem munu veita umsögn um þær og í kjölfarið mun stjórn sjóðsins gera tillögu til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum.

    14. sep. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Matvælasjóður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Beint streymi: Upplýsingafundur um Matvælasjóð 15. september

    Matvælasjóður er byrjaður að taka við umsóknum og af því tilefni er boðið til upplýsingarfundar um sjóðinn og umsóknarferlið.

    09. sep. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Íslenskt – láttu það ganga

    Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás. Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem fer af stað í dag. Tilgangur átaksins er að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.

    31. ágú. 2020Matvælasjóður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Fiskeldi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynningarfundur um Matvælasjóð

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til opins fundar um Matvælasjóð, miðvikudaginn 2. september kl 09:00.

    04. ágú. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Heimilt að draga 0,6% frá ofurkældum afla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla. Með breytingunni verður heimilt að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum (íslausum) afla sem veginn er á hafnarvog.

    01. ágú. 2020Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra skipar samstarfsráð MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samstarfsráð Matvælastofnunar.

    24. júl. 2020Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    29 þúsund tonnum aflamagns ráðstafað til sérstakra aðgerða á fiskveiðiárinu 2020/21

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ráðstafað rúmlega 29 þúsund tonnum aflamagns í bolfiski til sérstakra aðgerða. Er það nokkuð minna magn en á síðasta fiskveiðiári sem skýrist af samdrætti í leyfilegum heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár sem fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

    21. júl. 2020Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðstöfun á 4.000 lesta viðbótaraflaheimilda í makríl

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun 4.000 tonna af makríl til skipa í B-flokki gegn gjaldi.

    21. júl. 2020Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auknar aflaheimildir til strandveiða

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um auknar aflaheimildir til strandveiða á þessu fiskveiðiári. Með reglugerðinni er komið til móts við þá miklu fjölgun báta sem hafa stundað strandveiðar á þessu ári en ljóst er að með ráðstöfuninni er öllum aflaheimildum í 5,3% kerfinu svokallaða ráðstafað að fullu á þessu fiskveiðiári.

    10. júl. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Heimilt að draga frá 7% með notkun á ísþykkni

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Breytingin lýtur að reglum um afla sem veginn er á hafnarvog frágenginn til útflutnings, beint í flutningsfar. Til þessa hefur verið heimilt að draga frá 12% þegar kælt er með flöguís, en með breytingunni verður einnig heimilt að draga frá 7% þegar kælt er með ísþykkni (e. Liquid Ice).

    05. júl. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Umsækjendur um stöðu forstjóra Matvælastofnunar

    Alls bárust átján umsóknir um starf forstjóra Matvælastofnunar, en umsóknarfrestur rann út þann 4. maí 2020.

    01. júl. 2020Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Úthlutun almenns byggðakvóta fiskveiðiárið 2019/2020 nemur alls 5.374 þorskígildislestum.

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað byggðakvóta til byggðarlaga samkvæmt 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, fyrir fiskveiðiárið 2019/2020.

    25. jún. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Almannaöryggi

    Norrænu ráðherrarnir vilja efla fæðuöryggi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og norrænir ráðherrar á sviði landbúnaðar, matvæla, fiskveiða, fiskeldis og skógræktar vilja efla og styrkja fæðuöryggi á Norðurlöndunum. Þetta er niðurstaða norræns ráðherrafundar sem fram fór í gær.

    16. jún. 2020Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.

    11. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Endurnýjaður samningur við Færeyjar um fiskveiðimál

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra og Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja náðu fyrr í vikunni samkomulagi um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir næsta ár og um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu landanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna.

    04. jún. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skýrsla um vigtun sjávarafla

    Það skiptir sköpum að birta nöfn fyrirtækja þegar kemur að endurvigtun og aukið eftirlit Fiskistofu með minni (samþættum) aðilum og áframhald á aðgerðum Fiskistofu er líklegt til að halda vandamálum tengdum áreiðanleika endurvigtunar og umfangi frávika í skefjum. Þetta eru niðurstöður úr nýrri skýrslu Daða Más Kristóferssonar og Birgis Þórs Runólfssonar. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fól Daða Má og Birgi Þór, sem eru prófessor og dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, að gera úttekt á endurvigtun á fiski með tilliti til þess hversu mikil frávik í ísprósentu kæmu í raun og veru fram við eftirlit Fiskistofu.

    04. jún. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Landbúnaður, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    ANR auglýsir eftir umsóknum um styrki: Ertu með snjallt verkefni?

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband