Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Rekstur og eignir ríkisins
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 845
    Raða eftir:
    18. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup

    Öflug þekkingarstofnun með sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna

    Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir frumvarpi sem felur í sér sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna í öfluga þekkingarstofnun með það að meginhlutverki að ná fram bættum ríkisrekstri og hagræðingu.

    15. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Stafrænt Ísland

    Þétt setinn fundur um bætta þjónustu hins opinbera

    Fundur með helstu þjónustustofnunum ríkisins sem haldinn var fyrir helgi var vel sóttur en þar var rætt um stöðu og framþróun þjónustunnar, auk þess að fjalla um tækifæri gervigreindar fyrir þjónustu hins opinbera. Markmið fundarins voru umræða og aðgerðir um hvernig megi bæta þjónustu hins opinbera meðal annars út frá stefnu um opinbera þjónustu sem nú er í vinnslu.

    07. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda einstaklinga árið 2024

    Í kjölfar álagningar ríkisskattstjóra vegna opinberra gjalda á einstaklinga árið 2024 tók ráðuneytið saman helstu niðurstöður, þar sem tekið er mið af tekjum einstaklinga árið 2023 og eignastöðu þeirra 31. desember 2023.

    07. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál

    Hvatt til enn frekari notkunar rafmagns-, vetnis- og metanbíla með breyttum reglum um bifreiðahlunnindi

    Í júlí taka gildi breytingar á reglum um bifreiðahlunnindi sem hafa það að markmiði að hvetja enn frekar til notkunar rafmagns-, vetnis- og metanbíla umfram bensín- og díselbíla.

    01. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Yfir ellefu þúsund hafa skráð kílómetrastöðu í nýju kerfi

    Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Eigendur slíkra ökutækja geta nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is snjallforritinu.

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Jafnrétti

    Fjármála- og efnahagsráðherra á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa metnað til að vera áfram í farabroddi til þess að hraða jafnrétti kynjanna. Ísland er ekki framarlega í jafnrétti kynjanna því hér sé sterkt samfélag, heldur er samfélagið sterkt vegna þess að það búi við jafnrétti kynjanna.

    14. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Farsæl útgáfa ríkissjóðs á grænu skuldabréfi í evrum

    Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

    13. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukið valfrelsi í séreignarsparnaði í samráðsgátt

    Í drögum að frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt er lagt til að frelsi fólks til ávöxtunar á séreignarsparnaði verði aukið. Lagt er til að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni einstaklings um að iðgjöldum hans til séreignar verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Það hefur í för með sér, verði frumvarpið að lögum, að einstaklingur mun sjálfur geta valið um í hvaða sjóði eða sjóðum fjárfest er til ávöxtunar sparnaðarins, en þó innan þeirra marka sem frumvarpið felur í sér.

    12. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar framlengd um eitt ár

    Alþingi samþykkti á dögunum að heimild til skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól fasteignaláns vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota sem og heimild til skattfrjálsrar nýtingar á uppsöfnuðum séreignarsparnaði við öflun íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði framlengdar til og með 31. desember 2025. Um er að ræða úrræði sem sótt er um á leidretting.is.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, ÍL-sjóður

    Viðræður hefjast við lífeyrissjóði um uppgjör skuldabréfa ÍL-sjóðs

    Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ÍL-sjóðs og íslenska ríkisins, og fulltrúar 18 lífeyrissjóða, sem saman fara með stærstan hluta skuldabréfa sem ÍL-sjóður er útgefandi að, hafa ákveðið að hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum sjóðsins.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Lög um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík samþykkt – upplýsingar og umsókn fyrir íbúa á Ísland.is

    Frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík var samþykkt á Alþingi í gær. Upplýsingasíða fyrir Grindvíkinga er komin í loftið á Ísland.is þar sem m.a. er að finna svör við algengum spurningum. Enn er unnið að útfærslu á einhverjum atriðum en um leið og þau skýrast verða upplýsingar uppfærðar.

    22. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Drög að frumvarpi um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

    Í eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki kemur fram að ætlunin sé að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf. þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur efnt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpi um ráðstöfun eftirstandandi eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka.

    19. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í leigufélögum í samráðsgátt

    Ráðuneytið hefur birt í samráðgátt stjórnvalda áform um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þar eru kynnt fyrirhuguð áform stjórnvalda um að leggja fram á vormánuðum þessa árs tillögu um breytingar á lögbundnum fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða. Tilgangurinn er að rýmka heimildir lífeyrissjóða til þess að fjárfesta í leiguhúsnæði til einstaklinga.

    07. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Þenslan í rénun – aukið jafnvægi í þjóðarbúinu

    Markmið stjórnvalda um aukið efnahagslegt jafnvægi, minni verðbólgu og að skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta ganga hratt eftir. Efnahagsumsvif standa nú nokkurn veginn í stað eftir alls 13% hagvöxt undanfarin tvö ár. Kólnun umsvifa á sér stað nokkuð þvert á atvinnugreinar að undanskildum byggingariðnaði.

    03. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fitch

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    24. jan. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Um 93% skráð kílómetrastöðu

    Rétt tæplega 93% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu. Hefur kílómetrastaða ríflega 47 þúsund bíla verið skráð.

    19. jan. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Jákvæð þróun lánshæfismats á síðasta ári

    Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs þróaðist með jákvæðum hætti árið 2023 eftir að hafa verið óbreytt síðan í nóvember 2019. Þrjú fyrirtæki birta mat á lánshæfi ríkissjóðs; S&P, Moody‘s og Fitch.

    16. jan. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Yfir 60% skráð kílómetrastöðu

    Yfir 60% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu og eru skráningarnar orðnar rúmlega 29.000. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og hafa eigendur frest til 20. janúar til að skrá kílómetrastöðuna.

    29. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Stefna í lánamálum 2024-2028

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út stefnu í lánamálum ríkisins 2024-2028. Stefnan er sett fram á grundvelli fjármálaáætlunar, í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál, og er hún sett fram árlega. Stefna í lánamálum er sett fram til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út í desember 2022.

    22. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skattabreytingar á árinu 2024

    Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Í flestum tilfellum er um að ræða verðlagsuppfærslur, almennt minni en samsvarar verðbólgu liðins árs, en einnig má nefna að stigin voru fyrstu skref að nýju fyrirkomulagi gjaldtöku ökutækja og þá er barnabótakerfið eflt

    22. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, ÍL-sjóður

    Upplýsingar um ÍL-sjóð

    Í skýrslu ráðherra til Alþingis frá október 2022 um stöðu ÍL-sjóðs var upplýst að ef tekin yrði ákvörðun um að selja eignir sjóðsins þyrfti að huga að áhrifum þess á fjármálastöðugleika. Um væri að ræða verulegar fjárhæðir sem gætu haft áhrif á verðlagningu á verðbréfamarkaði.

    21. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Breytingar á staðgreiðslu um áramót

    Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar fjórða samkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.

    21. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Nýr samstarfsvettvangur um eflingu rannsókna um lífeyrismál

    Ný rannsóknastofnun lífeyrismála tekur til starfa í ársbyrjun 2024 en samningur um þetta var undirritaður í gær.

    18. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald. Nýju lögin fela í sér að á næsta ári verður innleitt kílómetragjald fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla, sem áður báru takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins.

    18. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Enn vantar húsnæði til leigu fyrir Grindvíkinga

    Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur var opnað fyrir rúmri viku en þar geta þau sem sérstaklega vilja styðja við Grindvíkinga boðið eignir sínar til útleigu. Enn vantar fjölbreyttari eignir á skrá.

    10. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, ÍL-sjóður

    Drög að frumvarpi um slit ógjaldfærra opinberra aðila

    Drög að frumvarpi sem hefur að geyma almennar reglur um hvernig slíta megi tilteknum ógjaldfærum opinberum aðilum hafa verið birt í samráðsgátt.

    21. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Innviðaráðuneytið

    Vegir okkar allra – upplýsingasíða um nýja nálgun í fjármögnun

    Upplýsingasíðan Vegir okkar allra var opnuð í dag. Þar er að finna upplýsingar um nýja nálgun stjórnvalda á fjármögnun vegakerfisins sem innleidd verður í skrefum á næstu árum.

    17. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun

    Hvernig nota stofnanir gervigreind?

    Nýsköpunarvogin, samnorræn könnun um stöðu nýsköpunar er þessa dagana framkvæmd í þriðja sinn meðal opinberra vinnustaða. Markmiðið er að nýta niðurstöðurnar til að meta hvernig megi auka vægi nýsköpunar i opinberri starfsemi.

    16. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík, Mannauðsmál ríkisins

    Stofnanir komi til móts við starfsfólk ríkisins sem býr í Grindavík

    Í gildi er neyðarstig Almannavarna fyrir Grindavík og hefur íbúum bæjarins verið gert skylt að yfirgefa heimili sín. Óljóst er hvenær þeir fá að snúa aftur heim. Vegna þessa hefur orðið mikið rask á lífi fólks, margir búa við óvissu og er mikilvægt að þeim gefist færi á að sinna fjölskyldum sínum á þessum erfiðu tímum.

    15. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fundaði með efnahags- og fjármálastjóra í framkvæmdastjórn ESB

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, fundaði í gær með Paolo Gentiloni sem fer með efnahags- og fjármál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Á fundinum var rætt um efnahagsþróun í hagkerfunum tveimur og möguleg áhrif eldsumbrotanna á Reykjanesskaga.

    03. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fitch

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    31. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Endurgreiðslutími stuðningslána framlengdur

    Lánastofnunum hefur verið heimilað að lengja endurgreiðslutíma stuðningslána um allt að átján mánuði til viðbótar við fyrri fresti. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð fjármála- og efnahagsráðherra.

    31. okt. 2023Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla eftirlitsnefndar með lánum með ríkisábyrgð skv. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um ríkisábyrgðir, n.r 121/1997, sbr. lög um fjárstuðning tl minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Þriðja skýrsla eftirlitsnefndar með lánum með ríkisábyrgð samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum um ríkisábyrgðir, n.r 121/1997, samanber lög um fjárstuðning tl minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    23. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla um umfang og tilurð misræmis magns í inn- og útflutningstölum landbúnaðarvara

    Starfshópur sem falið var að kanna umfang og tilurð misræmis milli magns í útflutningstölum úr gagnagrunni Evrópusambandsins (ESB) til Íslands og innflutningstölum Íslands frá ESB hefur skilað skýrslu til ráðherra. Hópnum var falið að kanna hvort finna megi kerfislægan mismun í gögnunum og í framhaldinu að greina orsakir hans og koma með tillögur til úrbóta.

    23. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Rit og skýrslur

    Innflutningur landbúnaðarvara frá Evrópusambandinu til Íslands: Greining á misræmi milli gagna Evrópusambandsins og Íslands

    október 2023 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Innflutningur landbúnaðarvara frá Evrópusambandinu til Íslands: Greining á misræmi milli gagna Evrópusambandsins og Íslands Innflutningur landbúnaðarvara frá Evrópusambandinu til Íslands: Greining á misræmi milli gagna Evrópusambandsins og Íslands

    11. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Standard og Poor's

    S&P Global Ratings hækkar lánshæfiseinkunn Íslands í A+ með stöðugum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands í A+ úr A. Horfur fyrir einkunnina eru stöðugar.

    11. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fjármálaráðherra sótti fund EFTA og ECOFIN í Brussel

    Fjármála– og efnahagsráðherra sat sameiginlegan fund EFTA ríkjanna og efnahags- og fjármálanefndar Evrópuráðsins (ECOFIN) 8. nóvember sl. Fundurinn er haldinn árlega og gefst EFTA ríkjunum þar tækifæri til þess að taka upp við Evrópusambandið mál sem þeim þykir brýnt hverju sinni.

    11. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Utanríkisráðuneytið

    Tvísköttunarsamningur við Ástralíu tekur gildi

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Ástralíu hefur tekið gildi og kemur til framkvæmda hérlendis frá og með 1. janúar 2024. Í Ástralíu kemur samningurinn til framkvæmda frá og með 1. janúar 2024, en í ákveðnum tilfellum tekur hann gildi 1. apríl eða 1. júlí eftir því hvaða skatta um ræðir.

    10. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Vegna álits umboðsmanns um sölu á hlutum í Íslandsbanka

    Í tilefni af áliti umboðsmanns Alþingis um sölu á hlutum í Íslandsbanka birtir ráðuneytið meðfylgjandi gögn sem send voru umboðsmanni meðan athugun málsins stóð yfir hjá embættinu.

    03. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Skýrsla starfshóps um skatta og skattaívilnanir á sviði umhverfismála

    Starfshópur sem unnið hefur að skoðun á sköttum og skattaívilnunum á sviði umhverfismála hefur skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.

    03. okt. 2023Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skattar og skattaívilnanir á sviði umhverfismála: Skýrsla starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra

    mars 2023 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skattar og skattaívilnanir á sviði umhverfismála: Skýrsla starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra Skattar og skattaívilnanir á sviði umhverfismála: Skýrsla starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra

    03. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Ný þróunaráætlun Kadeco fellur vel að markmiðum um velsæld og stöðugleika

    Ný þróunaráætlun Kadeco fyrir nærsvæði Keflavíkurflugvallar, K64, fellur vel að markmiðum ríkisstjórnarinnar sem miða að því að verja og tryggja efnahagslega velsæld og stöðugleika í ólgusjó undanfarinna ára, að því er fram kom á ávarpi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti þegar áætlunin var kynnt í gær.

    03. okt. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    30 stofnanir senn flutt vefi sína á Ísland.is

    Liður í því að einfalda líf fólks hér á landi og bæta stafræna þjónustu hins opinbera er aukin upplýsingagjöf og aðgengi að þjónustu gegnum Ísland.is, miðlæga upplýsinga- og þjónustugátt hins opinbera. Að undanförnu hefur þeim stofnunum sem velja að flytja efni sitt á Ísland.is fjölgað til muna og verða þær orðnar um 30 talsins í lok þessa árs.

    22. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Norrænt samstarf

    Hægt verði að nýta rafræn skilríki þvert á landamæri Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

    Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ætla að vinna saman að tæknilegum innviðum fyrir íbúa til að nota eigin rafræn skilríki til auðkenningar í öðrum löndum. Þetta segir í yfirlýsingu ráðherranefndar um stafræna, opinbera þjónustu ríkjanna en nefndin fundaði í Reykjavík í dag.

    10. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Stafrænt Ísland, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Ísland í fjórða sæti í Evrópu í könnun á stafrænni, opinberri þjónustu

    Ísland er í fjórða sæti í árlegri könnun meðal Evrópuríkja á stafrænni, opinberri þjónustu (eGovernment Benchmark) en síðustu árin hefur Ísland hækkað hratt á listanum. Ísland var í 11. sæti í könnuninni árið 2020, 7. sæti árið 2021 og 4. sæti í fyrra og í ár.

    08. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Auglýst eftir áhugasömum aðilum um uppbyggingu og rekstur innviða við Jökulsárlón

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óska eftir markaðsaðilum til samtals um mögulega aðkomu einkaaðila að uppbyggingu fasteigna og innviða við Jökulsárlón.

    06. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukin ánægja með þjónustu stofnana

    73% þátttakenda í könnun á þjónustu stofnana ríkisins eru ánægðir með þjónustuna að því er fram kemur í árlegri könnun á þjónustunni. Tæplega 5.000 notendur tóku þátt í könnuninni og var spurt um heildaránægju í fjórum þáttum – þjónustu, viðmóti, hraða og áreiðanleika.

    06. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa, Utanríkisráðuneytið

    Efnahagshorfur heimsins og alþjóðaviðskipti rædd á ráðherraráðsfundi OECD

    Ráðherraráðsfundur Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, fór fram í París í vikunni og sat Bjarni Benediktsson hann fyrir Íslands hönd. Þema fundarins í ár voru sameiginleg gildi í alþjóðasamstarfi (e. Sharing a resilient future: Shared values and global partnerships).

    05. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Árlegar viðræður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag álit sendinefndar sinnar (e. Concluding Statement) eftir fundi hennar með íslenskum stjórnvöldum og öðrum hagaðilum síðustu tvær vikur.

    03. sep. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Vegna umfjöllunar um málefni Lindarhvols

    Að gefnu tilefni vegna fjölmiðlaumfjöllunar og þingfyrirspurna þar um eru hér áréttuð nokkur atriði til að halda til haga staðreyndum varðandi félagið Lindarhvol.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband