29. okt. 2021Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið
Jafnréttisnefnd Evrópuþingsins kynnir sér launajafnrétti á Íslandi
Að þessu sinni er fjallað um fyrirhugaða heimsókn jafnréttisnefndar Evrópuþingsins til Íslands í næstu viku, jafnréttisviku í Evrópuþinginu, beiðni Norðmanna um að opna 4. járnbrautapakkann á ný, verkáætlun framkvæmdastjórnarinnar 2022, stafrænu Covid-vottorðin sem hafa slegið í gegn, grænan landbúnað, hækkandi orkuverð, flokkun kjarnorku, fund ráðuneyta um samstarfsáætlanir, fyrirhugaða úttekt Norðmanna á EES-samstarfinu, dagsektir sem lagðar hafa verið á pólska ríkið í deilu um sjálfstæði dómstóla og fyrstu skýrslu ESA um frammistöðu í loftslagsmálum.