04. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Fjármálaáætlun
Fjármálaáætlun 2019-2023: Umtalsverð aukning til heilbrigðismála
Útgjöld til reksturs heilbrigðismála munu aukast um 79 milljarða króna alls á næstu fimm árum miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Stofnkostnaður, m.a. vegna byggingaframkvæmda, verður 101 milljarður á tímabilinu. Stefnt er að því að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga á tímabili fjármálaáætlunar, þannig að hlutdeild sjúklinga hérlendis verði sambærileg því sem gerist á Norðurlöndunum.