27. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Almannaöryggi, Líf og heilsa, Covid-19, Réttarfar, Dómsmálaráðuneytið
Sektir fyrir brot gegn sóttvarnalögum vegna COVID-19
Vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir í samræmi við sóttvarnalög nr. 19/1997, sem eru viðbrögð við COVID-19 heimsfaraldrinum, hefur ríkissaksóknari sent öllum lögreglustjórum á landinu fyrirmæli vegna brota á reglum heilbrigðisráðherra sem fjalla um samkomubann, lokun samkomustaða og starfsemi, sem og um einangrun smitaðra og um sóttkví.