Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1551–1600 af 2554
    Raða eftir:
    15. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Verkefnisstjórn falinn undirbúningur að sýnatöku hjá komufarþegum

    Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipar mun stýra undirbúningi og framkvæmd við sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, í samræmi við ákvörðun stjórnvalda. Heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu minnisblað varðandi þetta á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní geti ferðamenn sem koma til landsins farið í skimun á Keflavíkurflugvelli eða framvísað vottorði sem sóttvarnalæknir metur gilt kjósi þeir það fremur en að fara í sóttkví. Tveimur vikum eftir að skimun hefst verður verkefnið metið og tekin ákvörðun um framhaldið á grundvelli þess.

    14. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Stefna í málefnum einstaklinga með heilabilun

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um stefnumótun í málefnum fólks með heilabilun og fyrstu aðgerðaáætlunina í þjónustu við fólk með heilabilun sem heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út og gildir til ársins 2025.

    14. maí 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um útfærslur á 28. gr. lögræðislaga (varðar þvingaða meðferð og þörf á reglum)

    maí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um útfærslur á 28. gr

    13. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Niðurstöður hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík kynntar

    Á morgun, 14. maí, kl 15:00, verður beint streymi frá verðlaunaathöfn hönnunarsamkeppni um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir verðlaunatillöguna og veitir viðurkenningar. Allir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með útsendingunni sem verður í streymi á YouTube-rás Þekkingarnets Þingeyinga.

    13. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur starfshóps: Reglur um þvingaða meðferð nauðsynlegar

    Knýjandi þörf er á reglum sem kveða skýrt á um hvers konar þvinganir eru heimilar í meðferð sjúklinga ef víkja þarf frá meginreglunni um sjálfsákvörðunarrétt sjúklings til að þiggja eða hafna meðferð. Þetta er meginniðurstaða starfshóps heilbrigðisráðherra sem fjallað hefur um efnið. Drög að reglugerð byggð á niðurstöðu hópsins verða birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    11. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um rekstur sérhæfðrar COVID-19 hjúkrunardeildar

    Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Hlíðarskjól ehf. um opnun 10 rýma hjúkrunardeildar fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga sem smitast hafa af COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn. Deildin er ætluð íbúum hjúkrunarheimila sem veikst hafa af COVID-19 og þurfa tímabundið á sérhæfðri þjónustu að halda svo sem í framhaldi af sjúkrahúsmeðferð.

    11. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sérnámsstöðum í geðlækningum fjölgað

    Heilbrigðisráðherra hefur lagt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) til 23 milljóna króna fjárveitingu til að fjölga sérnámsstöðum í geðlækningum. Þetta gerir kleift að fjármagna stöður tveggja sérnámslækna við geðheilsuteymi heilsugæslunnar. Undanfarin tvö ár hefur rík áhersla verið lögð á að efla annars stigs geðheilbrigðisþjónustu, meðal annars með stofnun geðheilsuteyma í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, sérstöku geðheilsuteymi fanga og geðheilsuteymi í fjölskylduvernd sem starfar á landsvísu líkt og geðheilsuteymi fanga, undir stjórn HH.

    11. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Áform um lagasetningu – réttindi sjúklinga (þvinguð meðferð o.fl.)

    Áform heilbrigðisráðherra um breytingar á lögum um réttindi sjúklinga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið frumvarpsins er að tryggja fullnægjandi lagaheimildir til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum sjúklingum á heilbrigðisstofnunum og tryggja réttindi sjúklinga, m.a. með því að skýrt sé kveðið á um að þvingunum sé ekki beitt nema í algerum undantekningartilvikum, að meðalhófs verði gætt og ​að eftirlit verði með beitingu þeirra.

    10. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Aðgerðir til að létta á útskriftarvanda Landspítala

    Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili unnið að því að létta álagi af Landspítala með því að flytja þaðan sjúklinga sem hægt er að sinna annars staðar sem eru einkum aldraðir hjúkrunarsjúklingar. Frá því um nýliðin mánaðamót hafa rúmlega 20 sjúklingar verið færðir frá spítalanum til annarra stofnana og unnið er að fleiri lausnum í þessu skyni.

    06. maí 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    júní 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga Tillögur til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    06. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Ákvörðun um gjaldtöku fyrir skimun á landamærum

    Farþegar sem koma til landsins og kjósa að fara í sýnatöku vegna Covid-19 fremur en að sitja 14 daga í sóttkví, munu frá 1. júlí næstkomandi greiða 15.000 kr. gjald vegna sýnatökunnar. Sýnataka á landamærum hefst 15. júní og verður gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar. Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa ekki að fara í sýnatöku. Tillaga heilbrigðisráðherra um gjaldtökuna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Bjartari tímar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein um breytingarnar varðandi takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í gær. Hún segir þetta merkan áfanga og til marks um hve vel hefur tekist hér á landi að hafa stjórn á útbreiðslu kórónuveirunnar, verja heilbrigðiskerfið og vernda viðkvæma hópa. Hún minnir á að verkefninu sé þó langt í frá lokið, mikilvægt sé að allir haldi áfram vöku sinni, vinni saman og skilji engan eftir nú þegar bjartari tímar eru framundan og sumarið á næsta leiti.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigði í okkar höndum

    Í dag er alþjóðlegi handþvottadagurinn sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur staði fyrir ár hvert frá árinu 2009 undir yfirskriftinni „Björgum mannslífum: Þvoum okkur um hendur.“ Að þessu sinni er sjónum beint að heilbrigðisstarfsfólki og þeirra þætti í að tryggja öryggi sjúklinga og fyrirbyggja smit með reglubundnum og góðum handþvotti. COVID-19 faraldurinn er skýrt dæmi um hvað veirusmit geta breiðst hratt út og afgerandi áminning um mikilvægi handþvottar. Því er óhætt að segja að heilbrigði sé í okkar allra höndum þar sem við getum haft mikil áhrif með reglulegum handþvotti.

    05. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Málefni fólks með heilabilun: Ný aðgerðaáætlun vekur athygli

    Heilbrigðisráðherra kynnti nýverið í ríkisstjórn aðgerðaáætlun í málefnum einstaklinga með heilabilun. Áætlunin var unnin í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017 þar sem heilbrigðisráðherra var falið að móta stefnu í málefnum þessa hóps sem fer ört stækkandi. Til þessa hefur engin formleg stefna verið til hér á landi í þessum efnum og því um merk tímamót að ræða. Stefnumótunarvinnan hefur vakið athygli Evrópsku Alzheimersamtakanna (Alzheimer Europe) en aðild að þeim eiga félög alzheimersjúklinga og aðstandenda þeirra frá 39 Evrópuríkjum.

    03. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur um menntun sjúkraliða

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði í desember sl. til að gera tillögur um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Auk tillagna um menntun og viðbótarmenntun eru einnig lagðar til leiðir sem eiga að styrkja störf sjúkraliða, gera störf þeirra áhugaverðari og gefa þeim færi á framgangi í starfi.

    03. maí 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða

    mars 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða Tillögur starfshóps um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða

    02. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ásthildur Knútsdóttir skipuð skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ásthildi Knútsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára. Ráðherra skipar Ásthildi að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem metur hæfni umsækjenda. Niðurstaða nefndarinnar var að Ásthildur væri mjög vel hæf til að gegna starfinu.

    02. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Félagasamtökum úthlutað 95 m.kr. til verkefna á sviði heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær 95 milljónum króna af safnliðum fjárlaga til félagasamtaka sem starfa að heilbrigðismálum. Að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni tengd heilsueflingu aldraðra og kvennaheilsu. Alls hlutu 27 félagasamtök styrki til 32. aðskilinna verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

    29. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24. maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á aðkeppa um bestu lausnirnar. Vefsíða keppninnar var formlega opnuð í dag hakkathon.island.is.

    24. apr. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Endurhæfing - Tillögur að endurhæfingarstefnu

    apríl 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Endurhæfing - Tillögur að endurhæfingarstefnu Endurhæfing - Tillögur að endurhæfingarstefnu

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Covid-19

    Valkvæðar skurðaðgerðir heimilaðar á ný 4. maí

    Valkvæðar skurðaðgerðir og ífarandi rannsóknir verða heimilaðar frá 4. maí næstkomandi og ýmsum öðrum takmörkunum á heilbrigðisþjónustu aflétt. Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um þetta í samræmi við tillögu landlæknis.

    22. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Dómsmálaráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Breyttar reglur um sóttkví og upptaka landamæraeftirlits á innri landamærum

    Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis breytt gildandi reglum um sóttkví. Með nýjum reglum verður öllum sem koma til landsins skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu. Samhliða verður tekið upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum. Reglurnar koma til framkvæmda föstudaginn 24. apríl og falla að óbreyttu úr gildi 15. maí.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um takmarkanir á samkomum frá 4. maí

    Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi, unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsfólks og efling geðheilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verja um 1,0 milljarði króna í sérstakar álagsgreiðslur til starfsfólks sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana sem starfar undir miklu álagi vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Enn fremur verða framlög til geðheilbrigðisþjónustu aukin um 540 milljónir króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu um allt land. Þessar aðgerðir eru liður margþættum aðgerðum stjórnvalda vegna áhrifa Covid-19 hér á landi sem kynntar voru í dag.

    21. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Lyfjamál

    Til umsagnar: Reglugerð um heimildir til að ávísa getnaðarvarnalyfjum

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð heilbrigðisráðherra sem fjalla um heimildir hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvarnalyfjum, um námskröfur og veitingu leyfa. Tilgangurinn með reglugerðinni er að útfæra heimild þessa efnis sem veitt var með lögum nr. 153/2018. Umsagnarfrestur er til 19. maí næstkomandi.

    20. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur að endurhæfingarstefnu kynntar og birtar í samráðsgátt

    Sérfræðingar í endurhæfingarmálum sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að móta tillögur að endurhæfingarstefnu hafa skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum. Ráðherra segir skýra stefnu fyrir þennan mikilvæga og vaxandi þátt heilbrigðisþjónustunnar bráðnauðsynlega og því mikið fagnaðarefni að fá skýrsluna í hendur. Skýrslan hefur nú verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 20. maí.

    18. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ræktun iðnaðarhamps verður heimil í kjölfar reglugerðarbreytingar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur með breytingu á reglugerð nr. 233/2001 veitt Lyfjastofnun undanþáguheimild með stoð í 2. gr. laga um ávana- og fíkniefni sem gerir innflutning, meðferð og vörslu fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulega. Heimildin er háð skilyrðum og takmörkunum svo tryggt sé að ekki verði fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda vímuefnið THC í nýtanlegu magni, eða að hámarki 0,2%.

    17. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að fjalla um menntun hjúkrunarfræðinga og leggja til leiðir sem eru til þess fallnar að fjölga þeim sem ljúka námi í faginu hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Tillögur hópsins lúta að menntun, fjölgun námsplássa, útvíkkun á starfssviði hjúkrunarfræðinga, fjölbreyttum starfstækifærum og ímynd hjúkrunar, m.a. með áherslu á sýnileika stéttarinnar.

    16. apr. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Magnað heilbrigðiskerfi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þann styrk sem íslenska heilbrigðiskerfið hefur sýnt í COVID-19 faraldrinum í blaðagrein í dag. Hún segir það hafa sýnt burði sína til að takast á við afleiðingar faraldursins sem birtist meðal annars í miklum sveigjanleika um leið og það vinni sem ein heild: „Allir þeir sem starfa í heilbrigðiskerfinu og veita þjónustuna stilla nú saman strengi til þess að láta allt ganga sem best í viðbrögðum okkar við COVID 19-faraldrinum" segir m.a. í eftirfarandi grein ráðherra sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

    15. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hugað að geðheilsunni á tímum C0VID-19

    Ljóst er orðið að COVID-19 faraldurinn mun hafa gríðarleg áhrif á almannaheill og efnahag fólks um heim allan. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við neikvæðum áhrifum faraldursins og þeirri efnahagslegu kreppu sem honum mun fylgja á geðheilsu almennings og hvetur til aðgerða. Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit um það helsta af upplýsingum, leiðbeiningum og úrræðum sem almenningi stendur til boða, eins og nánar er greint frá hér. Heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir þessu efni á fundi ríkisstjórnar í gær.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19 verður rannsökuð

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 1,5 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19. Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands stendur að rannsókninni í samvinnu við Embætti landlæknis og sóttvarnarlækni, en hún er einnig unnin í samvinnu við aðra háskólastofnanir á Norðurlöndunum.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Kynjahlutföll í nefndum heilbrigðisráðuneytis

    ​Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við jafnréttislög. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna þar sem hlutur kvenna er 59% á móti 41% hlut karla.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi frá 4. maí

    Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s. á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem gerð er ýtarleg grein fyrir hér á eftir.

    12. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Litakóðunarkerfi tekið upp vegna COVID-19

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.

    12. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Opið þing um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum 9. desember

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar til vefþings og samráðs um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Ráðstefnan hefst kl. 9.00 með opnunarávarpi ráðherra. Síðan taka við stutt erindi leik- og fagmanna um efnið sem lýkur með pallborðsumræðum. Þeir sem fylgjast með þinginu geta tekið þátt í umræðum og komið spurningum á framfæri í gegnum forritið Slido.

    11. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frá fréttafundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar 2. nóvember um COVID-19

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) heldur reglulega fréttafundi þar sem fjallað er COVID-19 heimsfaraldurinn. Upptökur frá fréttafundum WHO eru aðgengilegar á vef stofnunarinnar og einnig er hægt að fylgjast með fundunum í beinni útsendingu. Hér á eftir stutt samantekt frá síðasta fundi sem haldinn var 2. nóvember síðastliðinn.

    11. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bætt aðgengi íbúa Austurlands að þjónustu sérgreinalækna

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Austurlands varanlegt aukið fjármagn til að tryggja áframhaldandi þjónustu sérgreinalækna við íbúa heilbrigðisumdæmisins með samningum við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítala. Verkefnið hófst sem tilraunaverkefni í fyrra með samningum um þjónustu bæklunarlækna og þvagfæraskurðlækna. Á 12 mánaða tímabili sinntu læknarnir um 850 komum hjá einstaklingum sem annars hefðu þurft að sækja þjónustuna til Akureyrar eða Reykjavíkur.

    10. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Breyttar reglur um samkomutakmarkanir og skólahald

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomuhaldi og skólastarfi sem kveða á um hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 og taka þær gildi á miðnætti, aðfaranótt 5. október. Eftirfarandi er samantekt um helstu breytingar, m.a. um undanþágur frá hámarksfjölda þeirra sem mega koma saman en meginreglan er 20 manns.

    09. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Yfirlýsing frá heilbrigðisráðherra vegna krabbameinsskimana

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að konur treysti áfram á þjónustu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og sinni boðum um reglubundnar skimanir. Hún segir að allt verði gert til að rannsaka til hlítar hvað olli afdrifaríkum mistökum við leghálsskimanir hjá Leitarstöð KÍ og fyrirbyggja að slíkt geti endurtekið sig. Breytingar verða á fyrirkomulagi krabbameinsskimana um næstu áramót, þegar ábyrgð á leghálsskimunum færist frá Krabbameinsfélagi Íslands til heilsugæslunnar og brjóstaskimanir til Landspítala. Þessar breytingar tengjast ekki þeim mistökum sem nú eru til rannsóknar hjá embætti landlæknis. Þetta kemur fram í eftirfarandi yfirlýsingu heilbrigðisráðherra.

    09. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Rýmri samkomutakmarkanir taka gildi 7. september

    Nálægðarreglu verður breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    08. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyting á auglýsingu um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að gera breytingar á auglýsingu þeirri sem tók gildi 31. júlí síðastliðinn.

    06. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Opnun afeitrunardeildar fyrir ólögráða ungmenni mikilvægt framfaraskref

    Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni var opnuð á Landspítala í vikunni. Deildin heyrir undir fíknigeðdeild sjúkrahússins og verður áhersla lögð á fjölskyldumiðaða þjónustu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir tilkomu deildarinnar langþráða og um mikilvægt framfaraskref að ræða í þjónustu við afar viðkvæman hóp.

    05. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Nýjar reglur um takmarkanir á samkomum hafa tekið gildi

    Á miðnætti aðfaranótt 4. maí tóku gildi nýjar reglur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Fjöldamörk hafa verið hækkuð úr 20 í 50 manns, takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum hafa verið felldar niður og sömuleiðis vegna íþróttaiðkunar og æskulýðsstarfs barna á leik- og grunnskólaaldri. Framhalds- og háskólar hafa verið opnaðir á ný og ýmsir þjónustuveitendur opnuðu í morgun dyr sínar fyrir viðskiptavinum. Áfram gildir reglan um tveggja metra nálægðartakmörk hjá fullorðnum og gæta þarf að hreinlæti og sóttvörnum líkt og áður.

    04. apr. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Traust á tímum kórónuveiru

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi trausts á erfiðum tímum eins og nú þegar COVID-19 faraldur geisar, í blaðagrein í dag.

    02. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð til umsagnar: Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsfólks frá öðrum ríkjum EES

    ​Birt hafa verið til umsagnar drög að nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem varðar viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss. Reglugerðin helst í hendur við frumvarp ráðherra menntamála um breytingu á lögum nr. 26/2010 sem miðast við að leiða í lög öll nauðsynleg nýmæli tilskipunar Evrópusambandsins 2013/55/EB hvað þetta varðar.

    02. apr. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður stofnaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, stofnuðu í dag Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð og undirrituðu úthlutunarreglur sjóðsins með formlegum hætti.

    31. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem starfa samkvæmt undanþágu frá samkomubanni

    Eftirfarandi er listi yfir fyrirtæki sem fengið hafa undanþágu frá samkomubanni svo unnt sé að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra veitti undanþáguna að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

    31. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Evrópusamvinna, Lyfjamál, Covid-19

    Ísland aðili að samningi um sameiginleg innkaup Evrópuríkja á aðföngum fyrir heilbrigðisþjónustuna

    Íslensk stjórnvöld geta framvegis tekið þátt í sameiginlegum innkaupum Evrópuríkja á læknisfræðilegum viðbúnaðarvörum, eftir að Ísland undirritaði í gær sérstakan samning þar að lútandi. Í samningnum felst að aðildarríki samningsins geta staðið saman að innkaupum á lækningabúnaði, lyfjum, vöru og þjónustu sem nauðsynleg eru hverju sinni og geta þannig fengið hagstæðari kjör og skjótari afgreiðslu. Nær öll aðildarríki Evrópusambandsins, auk Bretlands standa að þessum samningi og Noregur gerðist aðili í síðustu viku.

    31. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Covid-19

    COVID-19: Myndrænar leiðbeiningar til fólks í mismunandi aðstæðum

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur birt á myndrænan hátt skýrar leiðbeiningar til fólks um hvað má og hvað má ekki gera meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir. Leiðbeiningarnar eru sniðnar að mismunandi aðstæðum fólks, t.d. fyrir fólk sem er í sóttkví eða fólk í áhættuhópi. Upplýsingaspjöldin eru aðgengileg til útprentunar og eru á íslensku og ensku.

    27. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 17/2020

    Menntaskólinn í tónlist sótti um undanþágu í þremur liðum frá takmörkun á skólastarfi fyrir útskriftarnema. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.

    • First
    • Prev
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband