Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.