07. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks
Skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni: 67 ný rými bætast við á árinu 2027
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins við Sóltún í Reykjavík. Með henni voru Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns og þær Aníta Eir Vilmarsdóttir og Jóný Helgadóttir, dætur starfsmanna á Sóltúni. Um er að ræða enn eitt skrefið í áætlun ríkisstjórnarinnar um stóraukna uppbyggingu hjúkrunarheimila til að mæta brýnni þörf. Stækkunin gerir ráð fyrir 67 nýjum hjúkrunarrýmum og eru verklok áætluð árið 2027. Hjúkrunarrými í Sóltúni verða þá alls orðin 159.