Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1301–1350 af 1473
    Raða eftir:
    18. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Fiskveiðisamkomulag Íslands og Færeyja

    Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja hafa náð samkomulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja. Samningurinn felur í sér endurnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Íslands fyrir sömu tegundir.

    18. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Markviss einföldun regluverks – betri eftirlitsreglur

    Einföldun afgreiðsluferla vegna leyfisveitinga og bætt þjónusta við leyfisumsækjendur verður sett í forgang við heildarendurskoðun á opinberum eftirlitsreglum sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Heildarendurskoðunin er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en í honum er lögð áhersla á að stjórnsýslan sé bæði skilvirk og réttlát og jafnframt mælt fyrir um að átak verði gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings.

    14. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Fullt út úr dyrum á málþingi um áhættumat erfðablöndunar

    Um 130 manns sóttu málþing um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð fyrir í Sjávarútvegshúsinu í morgun.

    13. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bein útsending á fimmtudagsmorgun frá málþingi um áhættumat erfðablöndunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, fimmtudaginn 14. mars kl. 9:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4. Bein útsending verður frá málþinginu á vef Stjórnarráðsins.

    12. mar. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir

    Ákvörðun Fiskistofu kærð, um að svipta fiskiskipið Z leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur frá og með 30. júní 2019

    desember 2019 / Atvinnuvegaráðuneytið Ákvörðun Fiskistofu kærð, um að svipta fiskiskipið Z leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur frá og með 30. júní 2019 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru X, f

    06. mar. 2019Auðlindir, Ferðaþjónusta, Lýðheilsa og forvarnir, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðamenn hvattir til að draga úr plastnotkun og drekka kranavatn

    Ferðamenn eru hvattir til þess að draga úr plastnotkun og drekka kranavatn á ferð sinni um landið í nýrri markaðsherferð undir merkjum Inspired by Iceland í samstarfi við Umhverfisstofnun og hagaðila.

    05. mar. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 14. maí 2019

    05. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Innflutningsvernd á kartöflum felld niður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning að fella niður innflutningsvernd á kartöflum á tímabilinu 3. maí til 11. ágúst 2019

    05. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skipað í starfshóp um aflaheimildir sem ríkið fer með forræði yfir

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fimm manna starfshóp sem hefur það hlutverk að endurskoða meðferð og ráðstöfun aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir.

    04. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vinnumál, Atvinnuvegir

    Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings lífskjarasamningum aðila vinnumarkaðarins

    Ríkisstjórnin kynnti yfirlýsingu sína vegna lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í dag. Aðgerðirnar eru víðtækar og stuðla að samfélagslegum umbótum fyrir allan almenning.

    04. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Ný vefgátt um vöktun veiðiáa

    Hafrannsóknastofnun hefur opnað á heimasíðu sinni sérstaka vefgátt um vöktun veiðiáa. Þar má finna fjölþættar upplýsingar sem varða laxeldi í sjó og vöktun veiðiáa í sambandi við það.

    04. mar. 2019Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýsköpunarmiðstöð kemur að verkefnum til að styrkja atvinnulíf á Reykjanesi

    Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun koma að verkefnum og mótvægisaðgerðum sem ætlað er að vega á móti auknu atvinnuleysi og áhrifum þess á einstaklinga og fyrirtæki í kjölfar gjaldþrots WOW Air. Verkefnin verða unnin í samvinnu við Vinnumálastofnun, sveitarfélög á Suðurnesjum og hlutaðeigandi ráðuneyti.

    28. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði í Reykjavík í hádeginu og heldur fund á Norðurlandi í kvöld

    Þessa dagana heldur Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opna fundi um frumvarp varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti sem er til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Salurinn í Þjóðminjasafninu var sléttfullur í hádeginu í dag og að lokinni tölu ráðherra voru góðar og málefnalegar umræður. Í kvöld kl. 20 heldur ráðherra svo opinn fund í Félagsheimilinu Hlíðarbæ í Hörgársveit.

    26. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    250 manns á fundi með landbúnaðarráðherra í Þingborg

    Um 250 manns sóttu opinn fund Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í félagsheimilinu Þingborg í Hraungerðishreppi í gærkvöldi. Tilefni fundarins var frumvarp sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti til að bregðast við dómum Hæstaréttar Íslands og EFTA-dómstólsins. Þetta var fyrsti fundurinn af fimm sem ráðherra heldur um þetta málefni um allt land á allra næstu dögum.

    25. feb. 2019Atvinnuvegir, Verslun, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aukið við rannsóknir á sviði verslunar

    Framlag til Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) hækkar úr fjórum milljónum í sex milljónir króna samkvæmt samningi sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Árni Sverrir Hafsteinsson forstöðumaður RSV undirrituðu í dag.

    22. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Leiðrétting á forsíðufrétt Morgunblaðsins

    Í fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag kemur fram að í tengslum við frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um innflutning á m.a. ófrystu kjöti sé fyrirhugað að heimila dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurafurðum. Vegna þessa vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ítreka að ekki er fyrirhugað í tengslum við boðaðar breytingar að gera neinar breytingar á núgildandi regluverki um innflutning og dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurvörum.

    20. feb. 2019Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaráætlun í tengslum við frumvarp um innflutning landbúnaðarafurða frá EES-svæðinu

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli og lögum um dýrasjúkdóma. Í frumvarpinu er kveðið á um afnám núverandi leyfisveitingakerfis vegna innflutnings á ákveðnum landbúnaðarafurðum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Samhliða hefur ráðuneytið kynnt sérstaka aðgerðaráætlun til að bregðast við áhrifum dóma EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands vegna skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum landbúnaðarafurðum sem og lagabreytinganna.

    19. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ákvörðun um hvalveiðar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag undirritað reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019–2023. Nær ákvörðunin til veiða á fimm ára tímabili, eins og fyrri reglugerð gerði.

    19. feb. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Skýrsla um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja

    Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja hefur skilað skýrslu og tillögum að aðgerðum til Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en hún fól honum sl. sumar að kortleggja starfsumhverfi smálánafyrirtækja og leggja fram tillögur til úrbóta. Lögð var áhersla á að í hópnum sætu fulltrúar ólíkra fagaðila.

    18. feb. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Minnisblað Hafrannsóknastofnunar um hvalveiðar

    Í kjölfar útkomu skýrslu Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða sem kom út 16. janúar, óskaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir áliti Hafrannsóknastofnunar á þeim vistfræðilegu forsendum sem Hagfræðistofnun grundvallar niðurstöður sínar á.

    31. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skýrsla starfshóps um úthlutun tollkvóta

    Starfshópur um úthlutun tollkvóta landbúnaðarvara hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í skýrslunni leggur meirihluti hópsins til breytingar á núverandi útboðskerfi þar sem tollkvótum er úthlutað til hæstbjóðanda og í stað þess verði farin svokölluð „hollensk útboðsleið“. Reikna má með að samkvæmt þeirri útboðsleið gæti kostnaður vegna útboða tollkvóta lækkað talsvert og ávinningur neytenda aukast frá því sem nú er. Jafnframt leggur hópurinn til að allur úthlutunarferill tollkvóta verði nútímavæddur og fari fram með rafrænum hætti.

    31. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um úthlutun tollkvóta

    Starfshópur um úthlutun tollkvóta landbúnaðarvara hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    21. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Styrkir til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti

    Hafréttarstofnun auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti 30. júní - 19. júlí 2019.

    18. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti í íslenskum höfnum - skýrsla

    Eitt af þeim verkefnum sem stjórnvöld vinna að í tengslum við aðgerðir í loftslagsmálum eru orkuskipti í haftengdri starfsemi og er stefnt að því að hlutdeild endurnýjanlegrar orku verði að minnsta kosti 10% árið 2030. Nú hefur verið lögð fram skýrsla með aðgerðaáætlun um orkuskipti í íslenskum höfnum þar sem sérstök áhersla er lögð á raftengingu til skipa. Skýrslan var unnin af Íslenskri Nýorku ehf. og Hafinu og var unnin í víðtæku samráði við lykilaðila sem tengjast uppbyggingu innviða fyrir raftengingar skipa í höfnum.

    18. jan. 2019Auðlindir, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti í íslenskum höfnum - skýrsla og glærur frá fundi

    Eitt af þeim verkefnum sem stjórnvöld vinna að í tengslum við aðgerðir í loftslagsmálum eru orkuskipti í haftengdri starfsemi og er stefnt að því að hlutdeild endurnýjanlegrar orku verði að minnsta kosti 10% árið 2030. Nú hefur verið lögð fram skýrsla með aðgerðaáætlun um orkuskipti í íslenskum höfnum þar sem sérstök áhersla er lögð á raftengingu til skipa.

    17. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Nú eru löggiltir endurskoðendur orðnir alls 320

    Tíu einstaklingar fengu í gær réttindi til að kalla sig löggilta endurskoðendur. Þar með eru löggiltir endurskoðendur á Íslandi orðnir alls 320.

    16. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Hagfræðistofnun skilar skýrslu um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða

    Síðastliðið vor óskaði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að hún myndi meta þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Hagfræðistofnun hefur nú skilað skýrslu til ráðherra og er meginniðurstaða hennar að „Þegar allt er skoðað virðast hvalveiðar vera hluti af hagkvæmri nýtingu náttúruauðlinda landsmanna. Rök hníga til þess að hagkvæmt sé fyrir þjóðarhag að haldið verði áfram að veiða hvali.“

    16. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða og greinargerða Hafrannsóknastofnunar um mat á fæðuþörf hvala

    Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra óskaði eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vorið 2018 að hún myndi meta þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Við gerð skýrslunnar leit Hagfræðistofnun til fjölmargra þátta, s.s. afkomu og umsvifa af hvalveiðum og hvalaskoðun, áhrif hvalveiða á aðra nytjastofna og efnahagsleg áhrif m.a. á ferðaþjónustu og útflutningsgreinar.

    16. jan. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að setja viðbótartryggingar vegna salmonellu

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur heimilað íslenskum stjórnvöldum að setja sérstakar viðbótartryggingar vegna salmonellu í kjúklingakjöti, hænueggjum og í kalkúnakjöti. Þetta felur í sér að við innflutning á þessum matvælum skuli fylgja vottorð sem byggi á sérstökum salmonella rannsóknum á viðkomandi vöru áður en hún er flutt til landsins frá öðrum EES löndum.

    11. jan. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Leyfisveitingagátt Ferðamálastofu virk á vefnum Ísland.is

    Með breytingunni er umsóknarferlið orðið rafrænt og vottorð eru nú sótt sjálfvirkt auk þess sem umsækjendur geta vistað umsóknir og haldið áfram með þær síðar.

    03. jan. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um viðbrögð vegna dóma Hæstaréttar um úthlutun aflaheimilda á makríl

    Með tveimur dómum Hæstaréttar Íslands í desember 2018 var viðurkennd skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga, en talið var að á árunum 2011 til 2014 hafi skipum þeirra verið úthlutað minni aflaheimildum til veiða á makríl en skylt var samkvæmt lögum.

    02. jan. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Átak um betri merkingar matvæla

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtök Íslands, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag ​um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.

    20. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Þak sett á magn greiðslumarks mjólkur

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag fjórar reglugerðir um stuðning við nautgriparækt, sauðfjárrækt, garðyrkju og landbúnað. Er þetta í samræmi við ákvæði búvörusamninga frá 2016 og eru reglugerðirnar endurskoðaðar árlega

    19. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – júní 2019

    Föstudaginn 14. desember 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu samkvæmt reglugerð nr. 1045/2018 fyrir tímabilið janúar – júní 2019.

    19. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kvótaákvörðun fyrir kolmunna og norsk-íslenska síld 2019

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerðir um heildarkvóta Íslands í kolmunna og norsk-íslenskri síld fyrir árið 2019. Ekki er í reglugerðinni gert ráð fyrir heimild til handa íslenskum skipum til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld í færeyskri lögsögu árið 2019.

    17. des. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Reglugerð um Umhverfissjóð sjókvíaeldis

    ​Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um Umhverfissjóð sjókvíaeldis, en sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 71/2008 um fiskeldi. Með setningu reglugerðarinnar er stjórnsýsla sjóðsins styrkt og gagnsæi ákvarðana við úthlutanir úr honum aukið.

    16. des. 2018Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um tryggingar vegna pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar

    Ný lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun taka gildi 1. janúar nk. Í tengslum við þau óskar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir umsögnum um drög að reglugerð um tryggingar vegna pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar sem mun koma í stað eldri reglna um bókhald og reikningsskil ferðaskrifstofa.

    13. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2019

    Föstudaginn 30. nóvember 2018 rann út umsóknarfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2019, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1026/2018.

    13. des. 2018Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2019

    Mánudaginn 10. desember 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.

    09. des. 2018Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    09. des. 2018Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    04. des. 2018Atvinnuvegir, Landbúnaður, Annað, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um aukaúthlutun eftirstöðva tollkvóta vegna innflutnings á blómum vegna fyrri hluta ársins 2018.

    Umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 18. apríl 2018.

    04. des. 2018Neytendamál, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skýrsla umhverfis- og auðlindaráðherra til Alþingis um málefni Sameinaðs sílikons í Helguvík

    Málefni Sameinaðs sílikons hf. eiga sér engin fordæmi hérlendis og mikilvægt er að læra af þeirri reynslu sem málið hefur skapað. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umhverfis- og auðlindaráðherra til Alþingis um aðdraganda að útgáfu starfsleyfis til kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík, sem birt er á vef Alþingis í dag.

    01. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir

    Leiðbeinandi reglur ESA um ríkisastoð aðgengilegar á íslensku

    Nýlega var birt íslensk þýðing á leiðbeinandi reglum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um hugtakið ríkisaðstoð eins og það er notað í 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins. Leiðbeinandi reglurnar hafa það hlutverk að hjálpa stjórnvöldum og fyrirtækjum að greina hvenær opinber stuðningur getur verið veittur án þess að hann feli í sér ríkisaðstoð.

    15. nóv. 2018Rit og skýrslur, Orka, Auðlindir, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun

    nóvember 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla ráðherra um nýjar aðferðir við orkuöflun Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hefur að beiðni Alþingis lagt fram skýrslu um nýjar aðferðir við orkuöflun

    05. nóv. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Úttekt á þjóðhagslegum áhrifum hvalveiða

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, tók í dag við undirskriftum 50.424 einstaklinga sem krefjast þess að Faxaflói verði lýstur griðarsvæði hvala. Fulltrúar frá IFAW (International Fund for Animal Welfare), Hvalaskoðunarsamtökum Íslands og Samtökum ferðaþjónustunnar afhentu ráðherra undirskriftirnar.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra ávarpar 45. þing BSRB

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði 45. þing BSRB á Hilton hótel Nordica í morgun.

    12. okt. 2018Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stofnun Auðnu-Tæknitorgs styrkir innviði nýsköpunar og samkeppnishæfni á Íslandi

    Tækniveitan Auðna – Tæknitorg ehf., sem ætlað er að vera gátt fyrir atvinnulífið inn í vísindasamfélagið og farvegur fyrir uppfinningar og niðurstöður rannsókna út í samfélagið hefur verið formlega sett á laggirnar. Að Auðnu standa allir háskólar landsins og helstu rannsóknastofnanir ásamt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og mennta-og menningarmálaráðuneyti.

    28. sep. 2018Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Greinargerð um þriðja orkupakkann

    september 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Greinargerð um þriðja orkupakkann Greinargerð um þriðja orkupakkann

    27. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegir

    Eðlilegt að þjóðin fái beinan og sýnilegan arð af auðlindinni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti opnunarávarp á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu í gær.

    • First
    • Prev
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband