Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 1473
    Raða eftir:
    26. jún. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún alfarið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöfin er gerð á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu og er varúðarnálgun Alþjóðahafrannsóknaráðsins höfð að leiðarljósi.

    24. jún. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar og Jafnvægisás ferðamála í Samráðsgátt stjórnvalda

    Stefnumótun til langs tíma fyrir íslenska ferðaþjónustu er eitt af forgangsmálum Þórdísar Kolbrúnar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Nú hafa verið lögð fram í Samráðsgátt stjórnvalda tvö grunnskjöl á þessari vegferð; þ.e. Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 og Jafnvægisás ferðamála.

    18. jún. 2019Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Orkusjóður auglýsir styrki til uppbyggingar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla

    Á þessu ári verður úthlutað 250 milljónum króna í tvenns konar styrki. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2019.

    14. jún. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir

    Norrænir sérfræðingar funduðu um ríkisaðstoð

    Í dag komu sérfræðingar af Norðurlöndunum á sviði ríkisaðstoðar saman til fundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Norrænir fundir um ríkisaðstoð hafa verið haldnir óslitið í tvo áratugi og var fundurinn í Reykjavík sá 21. í röðinni. Á fundinum deila löndin reynslu sinni af ríkisaðstoðarmálum og þeim takmörkunum sem EES-samningurinn og sáttmálinn um starfshætti ESB kveða á um.

    14. jún. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Niðurstöður útboða, Atvinnuvegir, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið júlí – desember 2019

    Föstudaginn 31. maí sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 390/2019 fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2019. Samtals bárust 20 gild tilboð í tollkvótann.

    12. jún. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði um heimaslátrun

    Á fundinum fór Kristján Þór yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðuneytinu á undanförnum misserum

    31. maí 2019Menntamál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Undirritun samnings um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftslagsmála

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samning við Háskólann í Reykjavík, Orkuklasann og GRP ehf., um samstarf á sviði sjálfbærni, orku, nýsköpunar og loftslagsmála. Undanfarin ár hafa íslenski Orkuklasinn og GRP ehf., ásamt stjórnvöldum, verið í samstarfi við Cornell háskóla í Bandaríkjunum með það að markmiði að vinna að þekkingaryfirfærslu í orkumálum og sjálfbærni, auk samstarfs í vísindarannsóknum og menntamálum. Með samningnum er efnt til áframhaldandi samstarfs við Cornell háskóla til næstu fjögurra ára og er markmiðið að samstarfið muni leiða af sér aukin tækifæri í nýsköpun, þekkingaryfirfærslu, sjálfbærni, grænum orkulausnum og verðmætaaukningu fyrir íslenskt samfélag.

    28. maí 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína fundar með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

    Á fundinum ræddu þeir m.a. gott samband ríkjanna, árangur og tækifærin sem felast í fríverslunarsamningnum sem tók gildi árið 2014

    22. maí 2019Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2019

    Miðvikudaginn 15. maí 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.

    21. maí 2019Ferðaþjónusta, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Áhersla á góða samvinnu Íslands og Grænlands

    Í ræðu sinni á ráðstefnunni „Future Greenland – economic independence and political autonomy“ sem haldin var 14.-15. maí í Nuuk, ræddi Þórdís Kolbrún Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þær áskoranir og þau tækifæri sem Grænlendingar og Íslendingar standa frammi fyrir.

    20. maí 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila

    Á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag var samþykkt tillaga Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila. Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun. Vonast er til að stefnan verði fordæmisgefandi fyrir sveitarfélög og aðra. Kjarni stefnunnar er að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á markmiðum um sjálfbærni, góða lýðheilsu og umhverfisvitund.

    14. maí 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Miklum árangri heimagistingarvaktar fylgt eftir

    Að frumkvæði ferðamálaráðherra var eftirlit sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með heimagistingu stóraukið í fyrra með átaksverkefninu Heimagistingarvakt. Árangurinn var ótvíræður: Tíðni nýskráninga í heimagistingu fimmfaldaðist í kjölfar átaksins, skráðum eignum fjölgaði um nær 100% á milli ára og áætlað er að óskráðum og leyfislausum gististöðum hafi fækkað um meira en 30%. Engu að síður er áætlað að um helmingur allrar skammtímaleigu fari enn fram án tilskilinna leyfa eða skráningar.

    13. maí 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Samningur um þorskveiðar íslenskra fiskiskip í rússneska hluta Barentshafsins 2019

    Dagana 7.-8. maí sl. var haldinn fundur í Moskvu í fiskveiðinefnd Íslands og Rússlands um fiskveiðisamning fyrir árið 2019, svokallaðan „Smugusamning“ sem í þessu tilviki snýst um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins.

    06. maí 2019Ferðaþjónusta, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Virkjum hugvitið í ferðaþjónustu – námskeið og vinnuaðstaða

    Í dag undirrituðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Íslenski ferðaklasinn samstarfssamning varðandi framkvæmd á verkefninu Virkjum hugvitið. Það er til komið vegna breyttra aðstæðna í ferðaþjónustu og gengur út á að virkja viðskiptahugmyndir á sviði nýsköpunar í ferðaþjónustu. Verkefnið er sérstaklega miðað að þeim dýrmæta mannauði í ferðaþjónustu sem hefur orðið fyrir atvinnumissi á síðustu vikum og mánuðum. Verkefnið skiptist í tvo meginþætti, annars vegar tímabundna vinnuaðstöðu í Húsi ferðaklasans og hins vegar vinnustofur og fræðslu. Innifalið í fræðsluhlutanum er stöðumat og greining á viðskiptahugmynd.

    06. maí 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auglýsing um WTO-tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, smjöri, ostum, fuglseggjum og afurðum þeirra og unnum kjötvörum.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 13. júní 2019.

    06. maí 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Annað, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 13. júní 2019.

    04. maí 2019Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla starfshóps varðandi raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns

    Í maí 2017 skipaði ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar starfshóp til að greina möguleika og gera tillögur um úrbætur á raforkuflutningskerfi í dreifbýli með áherslu á þrífösun. Starfshópurinn hefur nú skilað skýrslu sinni.

    04. maí 2019Auðlindir, Landbúnaður, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla starfshóps varðandi raforkumálefni garðyrkjubænda

    Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda var skipaður af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 27. apríl 2018. Starfshópnum var ætlað að kortleggja þróun framleiðslukostnaðar garðyrkjubænda og hlut raforku í honum, þróun gjaldskrárbreytinga, taxta og niðurgreiðslna vegna raforkunotkunar garðyrkjubænda, kanna möguleika til aukinnar nýsköpunar, þróunarverkefna og samstarfs í greininni og skoða hvaða möguleikar og verðmæti kunni að felast í kolefnisfótspori garðyrkjunnar eða öðrum loftlagstengdum áherslum.

    04. maí 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ræða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á aðalfundi sauðfjárbænda

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, hélt í gær ræðu aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Í ræðunni fór Kristján Þór yfir þau mál sem eru efst á baugi á vettvangi sauðfjárræktar og íslensks landbúnaðar og má þar nefna endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar, átak um betri merkingar á matvælum, aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería og aðgerðaáætlun í tengslum við frumvarp um innflutning á ófrystu kjöti sem miðar að því að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu.

    04. maí 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns

    apríl 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla starfshóps um raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns Skýrsla starfshóps um raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns --- Í maí 2017 skipaði ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar starfshóp til að greina möguleika og gera tillögur um uppfærslur á raforkuflutningskerfi í dreifbýli með áherslu á þrífösun rafmagns. Í skýrslu starfshópsins er lagt til að útfært verði átaksverkefni um þrífösun rafmagns til næstu fimm ára

    04. maí 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla um raforkumálefni garðyrkjubænda

    apríl 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla um raforkumálefni garðyrkjubænda Skýrsla starfshóps um raforkumálefni garðyrkjubænda --- Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda var skipaður af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 27. apríl 2018

    03. maí 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Frumvarp um fiskeldi lagt fram á Alþingi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi. Frumvarpið byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar og var við undirbúning þess byggt að verulegu leyti á skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi sem skilaði tillögum sínum með skýrslu hinn 21. ágúst 2017.

    26. apr. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Úthlutun styrkja á málefnasviðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

    Gengið hefur verið frá úthlutun styrkja til verkefna og viðburða á málefnasviðum Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

    26. apr. 2019Atvinnuvegir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auglýsing um veitingu leyfa til hrefnuveiða 2019-2023

    Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa aðilum kost á að sækja um leyfi til hrefnuveiða en skilyrði fyrir veitingu leyfanna koma fram í reglugerð nr. 163, 30. maí 1973, um hvalveiðar, með síðari breytingum.

    24. apr. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

    Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16:00 föstudaginn 3. maí 2019.

    16. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Lög og réttur, Atvinnuvegir, Menningarmál

    Lægri grunnútgjöld og bætt forgangsröðun með nýju verklagi um endurmat útgjalda

    Lægri grunnútgjöld, bætt forgangsröðun og gleggri yfirsýn yfir verkefni hins opinbera eru markmiðin með nýju verklagi um reglulegt endurmat útgjalda sem nú er verið að innleiða.

    15. apr. 2019Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrsla um áhættumat vegna innflutnings hunda og katta til Íslands

    Dr. Preben Willeberg fyrrverandi yfirdýralæknir Danmerkur hefur skilað skýrslu til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um áhættumat vegna innflutnings hunda og katta til Íslands með sérstakri áherslu á hjálparhunda.

    15. apr. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Áhættumat Preben Willeberg vegna innflutnings hunda og katta til Íslands

    apríl 2019 / Atvinnuvegaráðuneytið Áhættumat Preben Willeberg vegna innflutnings hunda og katta til Íslands Áhættumat vegna innflutnings hunda og katta til Íslands Haustið 2017 fól þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra dr. Preben Willeberg að vinna áhættumat vegna innflutnings hunda og katta til Íslands með sérstakri áherslu á hjálparhunda

    15. apr. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Samningaviðræður um endurskoðun búvörusamnings við nautgripabændur að hefjast

    Ríkið og Bændasamtök Íslands hafa skipað samninganefndir sínar vegna endurskoðunar á búvörusamningi um starfsskilyrði nautgriparæktar. Í búvörusamningunum sem gerðir voru árið 2016 og gilda til 10 ára er mælt fyrir um að tvisvar á samningstímanum, þ.e. 2019 og 2023, verði samningarnir teknir til endurskoðunar. Þar verði litið til þess hvort markmið samninganna hafi náðst og hvort ástæða sé til að gera á þeim breytingar.

    12. apr. 2019Atvinnuvegir, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. desember 2019.

    12. apr. 2019Atvinnuvegir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 10. desember 2019.

    12. apr. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Heimilt að fullnýta fisk og fiskeldisafurðir til lýsis og fiskimjöls framleiðslu

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð sem heimilar að nota megi allar fiskeldisafurðir og allan fisk við framleiðslu á fiskimjöli og lýsi sem ætlað er til manneldis, svo framarlega sem meðferð hráefnisins uppfylli kröfur um hollustuhætti og matvæli.

    10. apr. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fundur um framgang aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi o.fl.

    Í kynningunni ráðuneytisins kom fram að vinna við framgang aðgerðaáætlunar gangi vel og sé í forgangi í ráðuneytinu.

    10. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Atvinnuvegir

    Fjölbreytt atvinnutækifæri um land allt til umræðu í ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem áréttað var mikilvægi þess að skoðað verði gaumgæfilega hvort að þær stofnanir sem ráðuneyti áformi að setja á laggirnar geti verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins.

    06. apr. 2019Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Loftslagsmál, Orka, Samgöngusáttmálinn, Atvinnuvegaráðuneytið

    Markviss uppbygging innviða vegna orkuskipta í samgöngum

    Hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn verður fjölgað verulega og blásið verður til átaks með ferðaþjónustunni til að stuðla að orkuskiptum hjá bílaleigum, sem hafa víðtæk áhrif á samsetningu bílaflota landsmanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þriggja ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem kynnt voru næstu skref varðandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi.

    04. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra fundaði með forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur forsætisráðherra fundar með forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (International Labour Organization – ILO).

    04. apr. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Borghildur Erlingsdóttir kosin varaformaður framkvæmdaráðs Evrópsku Einkaleyfastofunnar

    Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar, var í síðustu viku kosin varaformaður framkvæmdaráðs Evrópsku Einkaleyfastofunnar (EPO).

    01. apr. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný lög um Ferðamálastofu og pakkaferðir tóku gildi um áramótin

    Tvenn lög á sviði ferðamála tóku gildi um áramótin, þ.e. lög um Ferðamálastofu og lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

    29. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fundaði með framkvæmdastjóra ESB á sviði heilbrigðis og matvæla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, átti í gær fund með Vytenis Andriukaitis, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á sviði heilbrigðis og matvæla. Megintilgangur fundarins var að ræða stöðu mála er varðar innflutning á ófrystu kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurafurðum til Íslands og dóma EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að núgildandi leyfisveitingakerfi og frystiskylda brjóti gegn skuldbindingum Íslands gagnvart EES-samningnum.

    28. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands vegna lokunar WOW air

    Ríkisstjórn Íslands lýsir yfir vonbrigðum með að tilraunir WOW air hf. til að tryggja rekstur félagsins skiluðu ekki árangri.

    27. mar. 2019Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Norrænt samstarf, Atvinnuvegaráðuneytið

    Miklir möguleikar í norrænu samstarfi um ferðamál

    Norðurlönd hafa til mikils að vinna með því að starfa saman á sviði ferðamála. Meðal annars getur borgað sig að eiga samstarf á sviði nýsköpunar, stafrænnar þróunar og markaðsmála. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Norræna ráðherranefndin hefur látið gera. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vann greininguna og varpar fram allmörgum tillögum að því hvernig styrkja megi samstarfið. Efni skýrslunnar er ætlað að nýtast í vinnu að norrænni ferðamálaáætlun sem nú stendur yfir og verður kynnt síðar á þessu ári.

    27. mar. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áframhaldandi uppbygging um allt land til verndar náttúrunni

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Markmiðið er halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.

    27. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Auðlindir, Atvinnuvegir

    Verkefnisstjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni

    Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn til að koma með tillögur um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Sérstakur samráðshópur skipaður fulltrúum allra þingflokka og helstu hagaðila mun starfa með verkefnisstjórninni. Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórnin skili skýrslu til ráðherra á haustmánuðum 2019.

    23. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Tillögur um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar

    Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga hefur skilað skilabréfi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um endurskoðun á samningi um stafsskilyrði nautgriparæktar.

    22. mar. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skipað í samráðshóp um betri merkingar matvæla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað í samráðshóp um betri merkingar matvæla. Í síðasta mánuði var undirritað samkomulag milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtaka Íslands, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka iðnaðarins um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.

    21. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Samgöngur og fjarskipti, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tilkynning vegna viðræðna Icelandair og Wow air

    Vegna tilkynningar Icelandair til Kauphallar Íslands um viðræður Icelandair og Wow air vill ríkisstjórnin taka fram:

    21. mar. 2019Neytendamál, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Til umsagnar: Drög að innkaupastefnu matvæla fyrir opinbera aðila

    Í innkaupastefnunni er m.a. lögð áhersla á tryggja neytendum matvæli úr heilnæmum afurðum með tilliti til framleiðsluhátta og umhverfisáhrifa. Máltíðir taka mið af ráðleggingum embættis landlæknis um mataræði og áhersla er lögð á aðgang neytenda í opinberum mötuneytum að uppruna og næringargildi og í náinni framtíð um kolefnisspor máltíða.

    21. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Ræða Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur á fundi um samkeppnismat OECD

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hélt opnunarræðu fundarins og sagði m.a. að kostir samkeppnismats og ábati af betra regluverki væru miklir og þeir hefðu í öðrum löndum leitt til aukins hagvaxtar og betri lífsgæða fyrir almenning.

    21. mar. 2019Menningarmál, Menntamál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ferðaþjónustan svarar kallinu á íslensku

    Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Samtök ferðaþjónustunnar hafa nú kynnt framtak sem miðar að því að auka fræðslu til erlends starfsfólks um íslenskt mál.

    18. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Betra regluverk fyrir atvinnulífið – opinn fundur um samkeppnismat OECD

    Fimmtudaginn 21. mars kl. 15.00 býður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til opins fundar í Grand hótel þar sem samkeppnismati OECD verður formlega hleypt af stokkunum. Meðal ræðumanna verður Ulrik Vestergaard Knudsen, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband