Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 2565
    Raða eftir:
    21. apr. 2021Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún kynnir Vörðu: Heildstæð nálgun áfangastaðastjórnunar

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag nýja heildstæða nálgun áfangastaðastjórnunar: Vörðu. Fyrstu áfangastaðirnir sem hefja ferli til að verða Vörður eru Gullfoss, Geysir, Þingvallaþjóðgarður og Jökulsárlón.

    21. apr. 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún kynnir uppbyggingu á Fyrirmyndaráfangastöðum kl 14

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, kynnir uppbyggingu Fyrirmyndaáfangastaða í beinu streymi miðvikudaginn 21. apríl kl. 14:00 (vinsamlegast athugið breyttan tíma).

    19. apr. 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún skipar starfshóp um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum

    Á föstudag kynnti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ríkisstjórn áform um að settur yrði á fót starfshópur helstu hagaðila sem falið verði að koma með tillögur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum til skemmri og lengri tíma.

    15. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Kristján Þór opnaði Mælaborð fiskeldis

    Kristján Þór Júlísson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í dag Mælaborð fiskeldis. Í mælaborðinu eru birtar m.a. framleiðslutölur, fjöldi fiska, fjöldi laxalúsa og rekstrarleyfi eldisfyrirtækja, ásamt staðsetningu eldissvæða og niðurstöðum eftirlits stofnunarinnar. Markmið birtingar er að auka gagnsæi í starfsemi atvinnugreinarinnar og veita almenningi og hagsmunaaðilum hagnýtar upplýsingar um starfsemina.

    15. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Opinn streymisfundur um Mælaborð fiskeldis

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnir Mælaborð fiskeldis á opnum streymisfundi fimmtudaginn 15. apríl kl. 10.

    12. apr. 2021Úrskurðarnefnd raforkumála, Atvinnuvegaráðuneytið

    04122021122609.pdf

    Úrskurður raforkumála 2/2020

    11. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir um matvæli og landbúnað, Úrskurðir

    Stjórnsýslukæra vegna synjunar Matvælastofnunar á styrk til frumbýlings árin 2018-2020

    Frumbýlingastyrkur, sauðfjárrækt, frávísun

    10. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðlögunarsamningar í sauðfjárrækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir nú í síðasta skipti eftir umsóknum um aðlögunarsamninga í sauðfjárrækt.

    10. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark í sauðfé

    Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í byrjun nóvember 2021. Verð fyrir innleyst greiðslumark er núvirt and­virði beingreiðslna næstu tveggja almanaksára, kr. 13.396,- pr. ærgildi.

    10. apr. 2021Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir

    Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Ákvörðun ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra um sektarálagningu

    Lykilorð: Ákvörðun ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra um sektarálagningu vegna síðbúinna skila ársreiknings. Ábyrgð á bókhaldi félags. Ákvörðun ársreikningaskrár staðfest.

    10. apr. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðir til álagsstýringar á ferðamannastöðum: Bætt stýring stuðlar að jákvæðri upplifun gesta og heimamanna

    VSÓ ráðgjöf hefur skilað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu skýrslu um álagsstýringu á ferðamannastöðum sem unnin var að beiðni ráðuneytisins. Skýrslunni var ætlað að koma með tillögur að aðgerðum í verkfærakistu til álagsstýringar fyrir ferðamannastaði.

    07. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Uppfærsla á AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins

    Vegna uppfærslu liggur AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins, niðri. Búist er við að henni verði lokið á hádegi á mánudag (5.7). Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

    06. apr. 2021Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir

    Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta

    Byggðakvóti. Skilyrði fyrir úthlutun. Afturköllun stjórnvaldsákvörðunar. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun.

    06. apr. 2021Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta.

    Byggðakvóti. Viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda. Afturköllun stjórnvaldsákvörðunar. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun.

    05. apr. 2021Atvinnuvegir, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

    Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 11. maí 2021.

    05. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór heimilar slátrun beint frá býli

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil. Í reglugerðinni er kveðið á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun og mun kostnaður þess greiðast úr ríkissjóði.

    03. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1252/2019, VIII. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2020-2021 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars. ​

    03. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019, V. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2019-2020 skal skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 15. mars

    02. apr. 2021Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir ferðaþjónusta, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir

    Úrskurður um ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um sekt vegna gististarfsemi

    Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Gististarfsemi.

    02. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðaður rammasamningur ríkis og bænda undirritaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Það er afskaplega ánægjulegur áfangi að hafa nú lokið við endurskoðun á öllum fjórum búvörusamningunum á þessu kjörtímabili. Að baki er mikil vinna með umfangsmiklum breytingum á starfsskilyrðum íslensks landbúnaðar til hins betra. Í samkomulaginu sem nú var undirritað er að finna ákvæði sem ég er sannfærður um að muni styrkja undirstöður landbúnaðarins, m.a. ákvæði um að ný landbúnaðarstefna fyrir Ísland, sem mun liggja fyrir í vor, verði grunnur að endurskoðun búvörusamninga árið 2023.…

    31. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Þorsteinn Sigurðsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna.

    31. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins nr. 345/2021, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. maí – 15. september 2021:

    29. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

    Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. apríl 2021

    29. mar. 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þrír samningar um stofnun áfangastaðastofa undirritaðir í mars

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur það sem af er marsmánuði undirritað þrjá samninga um stofnun áfangastaðastofa. Um er að ræða áfangastaðastofur á Vesturlandi, Vestfjörðum og Austurlandi.

    26. mar. 2021Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Almannaöryggi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Framkvæmdir fjármagnaðar vegna ferðamanna við gosstöðvar á Reykjanesi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ákveðið að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggi allt að 10 milljónir kr til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða jarðeldana á Reykjanesi.

    24. mar. 2021Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir

    Ákvörðun Byggðastofnunar um að hafna umsókn um úthlutun aflamarks samkvæmt 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

    Aflaheimildir Byggðastofnunar. Úthlutun aflaheimilda. Stjórnvaldsákvörðun. Mat stjórnvalda. Málsmeðferð.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Fjárfestingastuðningur í svínarækt

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingastuðning í svínarækt. Um umsóknir og úthlutun stuðningsins gilda ákvæði VII. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1260/2018. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2020-2021 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 6. apríl 2021.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið

    Taktu þátt í rafrænu Loftslagsmóti 2021

    Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslagsvænni rekstur.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Framkvæmd búvörusamninga, Atvinnuvegir

    Sigurborg stýrir verkefni um endurskoðun reglna og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma

    Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, hefur verið ráðin tímabundið til starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Hún mun taka að sér endurskoðun á regluverki og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma.

    23. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Framlög til loftslagsaðgerða aukin um milljarð á ári

    Framlög til loftslagsmála verða aukin um 1 ma.kr. á ári á tímabilinu 2022-2031 samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í fjármálaáætlun 2022-2026 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær og er liður í að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

    22. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir um matvæli og landbúnað, Úrskurðir

    Staðfesting á ákvörðun Matvælastofnunar um höfnun á innflutningi á 358 búrfuglum vegna smits

    Innflutningur á dýrum, smit, lög nr. 55/2013 um velferð dýra.

    22. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið

    Mótun landbúnaðarstefnu stærsta hagsmunamál íslensks landbúnaðar

    Vinna við mótun landbúnaðarstefnu fyrir Ísland sem nú stendur yfir er stærsta hagsmunamál íslensks landbúnaðar nú um stundir. Í þeirri vinnu verður teiknuð upp framtíðarsýn. Tækifæri til að stilla saman strengi – skapa sameiginlega framtíðarsýn til næstu áratuga sem byggir á óumdeildum kostum og styrkleikum íslensks landbúnaðar. Um leit er mikilvægt fyrir bændur að styrkja enn frekar tengslin við íslenska neytendur. Bændur verða til framtíðar að svara spurningum neytenda, hlusta eftir þeirra þörfum og auka skilning.

    18. mar. 2021Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra undirritaði samning um greiningu á svæðinu við Stuðlagil

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Gauti Jóhannesson, varaformaður Austurbrúar, hafa undirritað samning um að Austurbrú vinni að greiningu á svæðinu við Stuðlagil.

    17. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra stýrði lokafundi Stjórnstöðvar ferðamála

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra stýrði lokafundi Stjórnstöðvar ferðamála þann 16. mars 2021, en Stjórnstöðin hefur verið starfrækt frá árinu 2015.

    16. mar. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún opnar vefinn: Jafnvægisás.is

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnaði í dag Jafnvægisás ferðamála á vefsíðunni www.jafnvægisás.is.

    07. mar. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Bann við algengum einnota plastvörum tekur gildi

    Bann við að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað tekur gildi í dag. Meðal vara sem bannað er að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, plasthnífapör og -diskar, sogrör, hræripinnar og blöðrustangir. Matarílát, drykkjarílát, glös og bollar úr frauðplasti eru einnig óheimil. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.

    03. mar. 2021Ferðaþjónusta, Covid-19, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Visit Iceland – upplýsingamiðlun til ferðamanna stórefld

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samning við Íslandsstofu og Ferðamálastofu um heildstæða landkynningar- og upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn undir merkjum Visit Iceland.

    02. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    15 milljónir til að styrkja nýjar ræktunaraðferðir í grænmetisframleiðslu

    Lóðréttur landbúnaður með vatnsræktun, færanleg gróðurgöng og lengri uppskerutími gulróta með hitalögnum er á meðal nýrra ræktunaraðferða í garðyrkju sem fengu í dag ræktunarstyrki að upphæð 15 milljóna króna samtals. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, úthlutaði átta styrkjum til verkefna í dag.

    26. feb. 2021Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýr styrktarflokkur til að hvetja fyrirtæki til þátttöku í þróunarsamvinnu

    Í dag verður opnað fyrir umsóknir um Þróunarfræ, sem mun veita fyrirtækjum og einstaklingum forkönnunarstyrki til verkefna á sviði þróunarsamvinnu, einkum með tilliti til nýsköpunar á tímum COVID-19. Um er að ræða samstarfsverkefni Samstarfssjóðs við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á vegum utanríkisráðuneytisins og Tækniþróunarsjóðs á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem leggja hvor um sig allt að 50 milljónir króna í samstarfið. Umsýsla er á höndum Tækniþróunarsjóðs, en útfærsla styrkjanna verður byggð á styrkjaflokknum FRÆ.

    26. feb. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir kaup á minnisvarða um Hans Jónatan og gerð afsteypu af styttu Nínu Sæmundsson

    Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að veita styrki annars vegar til kaupa á minnisvarða um Hans Jónatan og hins vegar til gerðar afsteypu af styttunni „Afrekshugur“ eftir Nínu Sæmundsson.

    26. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Kristján Þór skipar stjórn Fiskeldissjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn Fiskeldissjóðs. Hlutverk sjóðsins er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.​​

    26. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir um matvæli og landbúnað, Úrskurðir

    Ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á dreifingu vöru

    Stöðvun dreifingar á matvælum, aukefni matvæla, miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

    25. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Skýrslu um tilraunaverkefni við slátrun sauðfjár skilað

    Hólmfríður Sveinsdóttir, doktor í lífvísindum og næringarfræðingur, hefur skilað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skýrslu um niðurstöðu tilraunaverkefnis um aukna verðmætasköpun við slátrun sauðfjár á Íslandi. Alls tóku 25 býli þátt í verkefninu. Ávinningur tilraunaverkefnisins var þríþættur. Í fyrsta lagi að kanna áhuga á meðal bænda á að taka þátt í tilraunaverkefninu og þeim lausnum sem þar á að prófa. Í öðru lagi að kanna umfang opinbers eftirlits og tímalengd skoðunar og í þriðja lagi að kanna möguleika á framkvæmd rafrænnar skoðunnar. Skýrsluna má nálgast hér.

    25. feb. 2021Atvinnuvegir, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tilboðsmarkaður 1. apríl 2021 með greiðslumark í mjólk

    Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. apríl næstkomandi.

    24. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Áhugaverður fundur um landbúnaðarkerfi Breta eftir Brexit

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðaði til fundar í morgun um breytingar á landbúnaðarkerfi Bretlands eftir útgöngu úr Evrópusambandinu. Á fundinum fór Torfi Jóhannesson, doktor í búvísindum og starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar, yfir þær breytingar sem boðaðar hafa verið. Við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu þurftu þeir að móta sér nýja stefnu um hvernig ætti að styðja innlendan landbúnað þar sem sameiginleg landbúnaðarstefna ESB féll úr gildi um leið. Bretar hafa valið að fara nýjar leiðir á margan hátt.

    23. feb. 2021Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir

    Ákvörðun Fiskistofu um afturköllun endurvigtunarleyfis

    Endurvigtunarleyfi. Afturköllun. Meðalhóf. Ítrekunaráhrif.

    19. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Almannaöryggi

    Vel gengur að fylgja eftir úrbótum á innviðum eftir fárviðrið í desember 2019

    Ríkisstjórnin samþykkti þann 28. febrúar 2020 aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Í aðgerðaáætluninni voru lagðar til 287 nýjar aðgerðir eða flýtiaðgerðir.

    19. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Kristján Þór boðar til fundar um landbúnaðarkerfi Bretlands eftir Brexit

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til fundar um breytingar á landbúnaðarkerfi Bretlands eftir útgöngu úr Evrópusambandinu. Á fundinum mun Torfi Jóhannesson, doktor í búvísindum og starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar, fara yfir þær breytingar sem boðaðar hafa verið og í kjölfarið fara fram umræður.

    17. feb. 2021Auðlindir, Neytendamál, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra leggur fram aðgerðaáætlun orkustefnu

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um langtímaorkustefnu og aðgerðaáætlun sem ætlað er að framfylgja markmiðum hennar.

    17. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband