Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Umhverfi og náttúruvernd
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1359
    Raða eftir:
    07. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Framkvæmdasýsla ríkisins í aukið samstarf

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) undirrituðu sl. föstudag yfirlýsingu um aukið samstarf milli ráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar vegna uppbyggingar innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

    18. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaóss í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaóss. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Fljótsdalshérað.

    18. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Goðafoss í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Goðafoss í Þingeyjarsveit. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Þingeyjarsveit.

    06. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Verkefni um þjóðgarð á miðhálendinu í kynningu: Mörk þjóðgarðs, verndarflokkar ofl.

    Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu óskar eftir umsögnum um drög að skilgreiningu marka þjóðgarðsins, áherslur um skiptingu landsvæða í verndarflokka og umfjöllun um aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar. Frestur til að skila umsögnum er til 30. júní.

    05. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Erum við viðbúin? - Ráðstefna Loftslagsráðs um aðlögun að loftslagsbreytingum

    Loftslagsráð boðar til ráðstefnu um aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum í Háteig, Grand Hóteli, fimmtudaginn 16. maí 2019 kl. 9:30 – 12:00.

    05. júl. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Alþingi samþykkir lög sem banna plastburðarpoka

    Alþingi samþykkti í gær breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem m.a. kveða á um að óheimilt verði að afhenda plastburðarpoka í verslunum frá og með 1. janúar 2021. Óheimilt verður að afhenda hvers kyns burðarpoka án endurgjalds frá og með 1. september næstkomandi.

    02. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breytingar á lögum um loftslagsmál í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um loftslagsmál.

    02. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkir til verkefna og rekstrar 2019

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Þá hefur ráðuneytið úthlutað rekstrarstyrkjum til frjálsra félagasamtaka.

    29. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Vatnajökulsþjóðgarður stækkaður, Herðubreið og Herðubreiðarlindir hluti af þjóðgarðinum

    Vatnajökulsþjóðgarður hefur verið stækkaður og svæðið sem tilheyrt hefur Herðubreiðarfriðlandi frá 1974 er nú hluti af þjóðgarðinum.

    26. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Alþingi samþykkir fjögur lagafrumvörp frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu

    Alþingi samþykkti á nýloknu þingi, fjögur lagafrumvörp umhverfis- og auðlindaráðherra sem lög. Breytingarnar fela m.a. í sér að stjórn loftslagsmála er styrkt hér á landi, stutt við innleiðingu á Minimatasamningnum um að draga úr notkun kvikasilfurs, breytingar innleiddar á tilskipun um mat á umhverfisáhrifum og Umhverfisstofnun fær heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

    21. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Dranga í Árneshreppi á Ströndum í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni og landslagsverndarsvæði. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Árneshrepp.

    21. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingar í Garðabæ í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu tveggja svæða í Garðabæ. Annars vegar er um að ræða áform um friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár sem kynnt eru í samstarfi við Garðabæ og landeigendur. Hins vegar eru kynnt í samvinnu við Garðabæ áform um stækkun fólkvangsins Hliðs.

    19. jún. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Fyrsti stjórnarnefndarfundur Norðurskautsráðsins í formennskutíð Íslands haldinn í Reykjanesbæ

    Ísland tók í byrjun maí síðastliðnum við formennsku í Norðurskautsráðinu til næstu tveggja ára. Dagana 18.-19. júní var fyrsti stjórnarfundur embættismannanefndar ráðsins, á formennskutíma Íslands, haldinn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Með fundinum er hrundið af stað röð reglubundinna funda Norðurskautsráðsins og tengdra viðburða sem fara munu fram víðsvegar um landið næstu tvö árin.

    18. jún. 2019Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Orkusjóður auglýsir styrki til uppbyggingar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla

    Á þessu ári verður úthlutað 250 milljónum króna í tvenns konar styrki. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2019.

    14. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Magnús Guðmundsson skipaður í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Magnús Guðmundsson í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs

    12. jún. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Reglugerð um bann við notkun svartolíu í landhelgi Íslands

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skrifað undir reglugerð um hertar kröfur varðandi eldsneyti í íslenskri landhelgi, sem í raun bannar notkun svartolíu innan hennar. Bannið er meðal annars liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála.

    31. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra og nemendur gróðursetja tré í tilefni eflingu Yrkjusjóðs

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gróðursetti trjáplöntur í Þorláksskógum á Suðurlandi í dag með hópi grunnskólabarna sem taka þátt í fræðslu- og gróðursetningarverkefni Yrkjusjóðs.

    28. maí 2019Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið, Auðlindir

    Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlenda 2019

    Skýrsla forsætisráðherra um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlenda og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi

    28. maí 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stofnun samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir

    Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    27. maí 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Páfi ávarpaði fund fjármálaráðherra í Vatíkaninu

    „Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að mæta loftslagsvandanum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra á fundi fjármálaráðherra í Vatíkaninu í dag.

    24. maí 2019Forsætisráðuneytið, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlendna 2019

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja fyrir Alþingi skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi og er skýrslan sú sjöunda í röðinni á jafnmörgum árum.

    24. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Notkun svartolíu verði bönnuð innan landhelgi Íslands

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerðarbreytingu sem bannar notkun svartolíu innan íslenskrar landhelgi. Frestur til að skila umsögnum um drögin er til 5. júní n.k. Fyrirhugað bann er m.a. liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála.

    23. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Bláskelin: Ný viðurkenning fyrir framúrskarandi plastlausa lausn

    Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til nýrrar viðurkenningar sem hlotið hefur heitið Bláskelin. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu.

    17. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Greining tækifæra og ávinnings af friðlýsingu svæða á Suðurlandi

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, skrifuðu í dag undir samning á Selfossi um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða á Suðurlandi.

    17. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Vel sótt ráðstefna Loftslagsráðs um aðlögun að loftslagsbreytingum

    Bekkurinn var þétt setinn á ráðstefnu Loftslagsráðs í gær um aðlögun að loftslagsbreytingum, en yfirskrift ráðstefnunnar var „Erum við viðbúin?“ Ráðstefnunni var streymt beint og eru erindin nú aðgengileg hér á vef Stjórnarráðsins.

    15. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Opinn fundur um vinnu nefndar um stofnun miðhálendisþjóðgarðs

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boða til opins fundar vegna vinnu nefndarinnar. Á fundinum verður sagt frá stöðu vinnunnar og þeim verkefnum sem fram undan eru.

    14. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Hildur Knútsdóttir skipuð formaður stjórnar loftslagssjóðs

    Hildur Knútsdóttir hefur verið skipuð formaður stjórnar loftslagssjóðs. Hildur er rithöfundur, hefur látið baráttuna í loftslagsmálum sig miklu varða og er yfirlýstur aðgerðasinni í loftslagsmálum.

    11. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ísland skipar ungmennafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála

    Aðalbjörg Egilsdóttir hefur verið kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland skipar ungmennafulltrúa í málaflokknum. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt fjármagni til þess að Aðalbjörg geti sótt loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember í umboði íslenskra ungmenna en ráðstefnan fer fram í Madrid á Spáni.

    07. maí 2019Menningarmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO

    Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi heimsminjanefndar UNESCO í Bakú í Aserbaídsjan í dag.

    02. maí 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið við stefnu Íslands um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út viðauka við stefnuna „Saman gegn sóun“, sem er stefna Íslands um úrgangsforvarnir 2016-2027.

    30. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur umhverfisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Viðurkenningar veittar fyrir umhverfismál

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, veitti Krónunni í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla í Reykjavík og Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi útnefndir Varðliðar umhverfisins.

    29. apr. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Er einnota óþarfi? – Átak Umhverfisstofnunar komið í loftið

    Umhverfisstofnun setti nýlega af stað átak til að vekja athygli á mikilvægi þess að draga úr notkun á einnota plasti. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að taka höndum saman um að hætta notkun á einnota vörum þar sem það er mögulegt.

    16. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Undirbúningur fyrir stofnun miðhálendisþjóðgarðs í fullum gangi

    Undirbúningur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er í fullum gangi og tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins hafa nú verið settar í Samráðsgátt stjórnvalda.

    16. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Rannsókn og vöktun hafin á minkum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, hafa skrifað undir samning um rannsóknir og vöktun Náttúrustofu Vesturlands á minkum.

    15. apr. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Skýrsla Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi 1990 - 2017

    apríl 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Skýrsla Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi 1990 - 2017 Skýrsla Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi 1990 - 2017 (National Inventory Report) til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. National Inventory Report - Emissions of Greenhouse Gases in Iceland from 1990 to 2017 (á ensku)

    15. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Landsskýrsla um losun gróðurhúsalofttegunda til 2017 komin út

    Umhverfisstofnun hefur skilað skýrslu (National Inventory Report) um losun gróðurhúsalofttegunda til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) þar sem er að finna upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi frá 1990 til 2017.

    15. apr. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Fjármála- og efnahagsráðherra aðili að alþjóðlegum loftslagsvettvangi

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hefur undirritað yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum. Fyrsti fundur vettvangsins var haldinn um helgina í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.

    11. apr. 2019Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Drög að reglugerðum er varða mat á umhverfisáhrifum í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingum á reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.

    10. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Lög og réttur, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur

    Ríkisstjórnin samþykkir að leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingu á þjóðlendulögum

    Ríkisstjórnin samþykkti að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp á fundi sínum í morgun.

    09. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðildarríkjaþing Samnings SÞ um varnir gegn eyðimerkurmyndun hafið í Nýju Delí

    Aðildarríkjaþing Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) var sett í Nýju-Delí á mánudag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra sækir ráðherrahluta þingsins í næstu viku. Loftslagsmál verða fyrirferðarmikil á þinginu og þær lausnir sem felast í bættri landnýtingu.

    06. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka, Rit og skýrslur

    Innviðir fyrir orkuskipti - Tillögur starfshóps um aðgerðir

    júní 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Innviðir fyrir orkuskipti - Tillögur starfshóps um aðgerðir Tillögur starfshóps umhverfis- og auðlindaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem var falið að móta tillögur um aðgerðir til að hraða orkuskiptum hér á landi, í samræmi við aðgerðaáætlanir um loftslagsmál og orkuskipti. Innviðir fyrir orkuskipti - Tillögur starfshóps um aðgerðir

    06. apr. 2019Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Loftslagsmál, Orka, Samgöngusáttmálinn, Atvinnuvegaráðuneytið

    Markviss uppbygging innviða vegna orkuskipta í samgöngum

    Hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn verður fjölgað verulega og blásið verður til átaks með ferðaþjónustunni til að stuðla að orkuskiptum hjá bílaleigum, sem hafa víðtæk áhrif á samsetningu bílaflota landsmanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þriggja ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem kynnt voru næstu skref varðandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi.

    04. apr. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Greining tækifæra og ávinnings af friðlýsingu svæða á Austurlandi

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Einar Már Sigurðarson, formaður sambands sveitarfélaga á Austurlandi, skrifuðu í dag undir samning á Egilsstöðum um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða á nærsvæði þeirra.

    29. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármálaáætlun, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Fjármálaáætlun 2020-2024: Loftslagsmál, náttúruvernd og hringrásarhagkerfi í forgrunni

    Ráðgert er að verja rúmum átta milljörðum króna sérstaklega til loftslagsmála á árunum 2020-2024 samkvæmt fjármálaáætlun. Áætlað er að verja sömu upphæð, rúmum átta milljörðum króna til verkefna tengdri náttúruvernd og sjálfbærri nýtingu lands. Þá verður 500 milljónum króna varið til eflingu hringrásarhagkerfisins á sama tímabili.

    28. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagsbreytingar: þróun lausna og bætt nýting auðlinda komið í samráðsgátt til umsagnar

    Framtíðarnefnd forsætisráðherra hefur sett fram spurningar í samráðsgátt stjórnvalda um þróun lausna við loftslagsvandanum.

    27. mar. 2019Atvinnuvegir, Auðlindir, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áframhaldandi uppbygging um allt land til verndar náttúrunni

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Markmiðið er halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.

    26. mar. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Náttúruvernd, Skipulagsmál, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir að Ísland fullgildi Landslagssamning Evrópu

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að Ísland fullgildi Landslagssamning Evrópu. Samningnum er ætlað að stuðla að verndun, stýringu og skipulagi landslags ásamt því að koma á fót evrópsku samstarfi um landslag.

    18. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2019. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

    15. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ályktað um lausnir við áskorunum í umhverfismálum, sjálfbæra neyslu og plast í hafi á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna

    Umhverfisráðherrar heimsins ályktuðu m.a. um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, úrgangsstjórnun og sjálfbæra nýtingu lands á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Einnig voru fjölmargar ályktanir um tiltekin málefni samþykktar, þar á meðal ályktun um ferli til að ná á alþjóðavísu utan um plastmengun í hafi og örplast. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið þátt í fjölda leiðtogaumræðna, funda og annarra viðburða á þinginu.

    14. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Ósjálfbær neysla okkar hefur alvarleg áhrif á umhverfi og loftslag“ – ráðherra ávarpaði Umhverfisþing SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Neysla, sóun, náttúruvernd og barátta gegn plastmengun var meðal þess sem ráherra lagði áherslu á.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband