16. feb. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Sveitarstjórnir og byggðamál, Landbúnaður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Ráðuneyti láta vinna tillögu að útfærslu fyrir samræmt söfnunarkerfi dýraleifa
Matvælaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, í samstarfi við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), hafa sett af stað vinnu við útfærslu fyrir samræmt söfnunarkerfi dýraleifa á landsvísu í áhættuflokki eitt með það að markmiði að koma þeim í viðeigandi úrvinnslu eða förgun.