10. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður
Samkomulag um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir 2021-2025
Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2021-2025 hefur verið undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í tengslum við samkomulagið var einnig undirrituð yfirlýsing sem felur í sér að framlög ríkissjóðs til að veita sveitarfélögum fjárhagslega viðspyrnu nema alls tæpum 5 milljörðum króna.