Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Þróunarsamvinna
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 272
    Raða eftir:
    31. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Ársskýrsla GRÓ 2023 komin út

    Alls útskrifuðust 92 sérfræðingar árið 2023 úr fimm til sex mánaða námi í skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, það er Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum. Þá útskrifuðust fimm fyrrverandi nemendur með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu á skólastyrk frá GRÓ, en á árinu voru alls 36 fyrrverandi nemendur í framhaldsnámi við íslenska háskóla á skólastyrk frá GRÓ.

    31. júl. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Freetown, Sendiskrifstofa

    Opnun á skurðstofu til meðhöndlunar fæðingarfistils í Síerra Leóne

    Ný skurðstofa til meðhöndlunar fæðingarfistils var vígð við hátíðlega athöfn á ríkissjúkrahúsinu í borginni Bo í Síerra Leóne fyrr í mánuðinum. Endurbæturnar á skurðstofunni voru fjármagnaðar af íslenskum stjórnvöldum og eru hluti af verkefni sem Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) vinnur í samstarfi við stjórnvöld í Síerra Leóne.

    12. jún. 2024Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Kampala, Þróunarsamvinna, Sendiskrifstofa

    Ísland styður unglingsmæður í Úganda og börn þeirra

    Ísland er bakhjarl nýs verkefnis Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stuðning við unglingsmæður og börn þeirra í Úganda. Verkefnið ber yfirskriftina „Valdefling unglingsmæðra og barna þeirra – tveggja kynslóða nálgun“. Þar verður sjónum beint að unglingsmæðrum í tveimur héruðum í vesturhluta landsins, Kyegegwa og Kikube, og þær aðstoðaðar við að brjótast úr fátækt um leið og ung börn þeirra fá þjónustu sem stuðlar að þroska þeirra og framförum.

    27. maí 2024Utanríkismál, Mið-Austurlönd, Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna

    Ísland tilkynnir um ný áheit til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum

    Framlög Íslands til mannúðarmála í Sýrlandi og grannríkjum nema 820 milljónum króna næstu þrjú árin. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti þetta á árlegri framlagaráðstefnu fyrir Sýrland og grannríki sem haldin var í Brussel í dag.

    24. maí 2024Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Jafnréttisskóli GRÓ útskrifar 23 nemendur frá 14 löndum

    Tuttugu og þrír nemendur, fjórtán konur og níu karlar, útskrifuðust frá Jafnréttisskóla GRÓ í dag, í sextándu útskrift skólans frá því hann tók til starfa árið 2009. Útskriftarnemendurnir koma að þessu sinni frá fjórtán löndum: Úganda, Suður-Afríku, Gana, Keníu, Palestínu, Indlandi, Malaví, Bosníu Hersigóvínu, Sri Lanka, Nepal, Pakistan og í fyrsta skiptið frá Madagaskar, Liberíu og Rúanda.

    17. maí 2024Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkisráðuneytið

    Sjávarútvegsskóli GRÓ útskrifar 25 sérfræðinga

    Tuttugu og fimm sérfræðingar frá fimmtán löndum voru útskrifaðir frá Sjávarútvegsskóla GRÓ við hátíðlega athöfn á miðvikudaginn. Hópurinn hefur dvalið á Íslandi við nám síðustu sex mánuði og er sá 25. sem lýkur námi við skólann. Með útskriftinni á miðvikudaginn hafa því 488 nemendur frá 60 samstarfslöndum útskrifast frá skólanum.

    02. maí 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við mannréttindi í Malaví

    Fulltrúar sendiráðs Íslands í Malaví, ásamt fulltrúum sendiráðs Noregs og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), undirrituðu á föstudaginn samning um stuðning við stofnanir og samtök sem standa vörð um mannréttindi í landinu. Þá var fyrsta skóflustungan að nýrri stjórnsýslubyggingu í Mangochi-héraði tekin fyrr í vikunni, en framkvæmdin markar tímamót því hún er fjármögnuð sameiginlega af íslenskum og malavískum stjórnvöldum.

    24. apr. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Átök fyrir botni Miðjarðarhafs, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Sjálfstæð þjóð með sterka rödd á alþjóðavettvangi

    Víðsjárverð staða alþjóðamála, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, varnarbarátta Úkraínu sem og staða og stefna Íslands á alþjóðlegum vettvangi var í brennidepli í opnunarávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á árlegri ráðstefnu um alþjóðamál sem fram fór í Norræna húsinu í dag.

    17. apr. 2024Þróunarsamvinna, Íslensk frjáls félagasamtök, Úganda, Utanríkisráðuneytið

    Efnahagsleg valdefling og stuðningur við jaðarsettar fjölskyldur í Úganda skilar árangri

    Verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, sem styður við HIV smitaða, alnæmissjúka, aðstandendur þeirra og eftirlifendur í dreifbýli Úganda, hefur gefið góða raun að því er kemur fram í nýlegri miðannaúttekt á verkefninu, sem fjármagnað er af utanríkisráðuneytinu.

    13. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úganda, Utanríkismál

    Skóli og athvarf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis afhent í Úganda

    Sendiráð Íslands í Kampala í Úganda afhenti í nýliðinni viku héraðsyfirvöldum í Buikwe-héraði annars vegar nýtt athvarf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og hins vegar fullbúinn grunnskóla. Skólinn er sá fimmtugasti sem byggður er fyrir íslenskt þróunarfé frá því byggðaþróunarverkefni Íslands hófst í héraðinu árið 2015. Nemendafjöldinn í þessum skólum er um helmingur íslenskra barna á grunn- og framhaldsskólaaldri.

    05. mar. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í Freetown, Utanríkismál

    Sendiskrifstofa Íslands í Síerra Leóne formlega opnuð

    Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina. Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, flutti ávarp og þá tóku Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, og Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, einnig til máls.

    04. mar. 2024Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Freetown

    Byggingar úr endurunnu plasti rísa í Síerra Leóne

    Íslensk stjórnvöld hafa stutt við verkefni á sviði vatns- og hreinlætismála í afskekktum sjávarþorpum Síerra Leóne frá árinu 2018, í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og þarlend stjórnvöld. Samstarfið við UNICEF á sviði vatns- og hreinlætismála er eitt af lykilverkefnum sendiráðs Íslands í Freetown.

    28. feb. 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Nýr samstarfssamningur við Alþjóðaráð Rauða krossins undirritaður í Genf

    Íslensk stjórnvöld undirrituðu í gær nýjan samstarfssamning um stuðning Íslands við Alþjóðaráð Rauða krossins (International Committee of the Red Cross, ICRC) til næstu þriggja ára. Anna Jóhannsdóttir, staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands ásamt Robert Mardini, framkvæmdastjóra ICRC. Samkvæmt samningnum munu framlög íslenskra stjórnvalda til ICRC nema 30 milljónum króna árlega á tímabilinu 2024-2026.

    09. feb. 2024Þróunarsamvinna, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Utanríkisráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir um styrki til atvinnuskapandi verkefna í þróunarríkjum

    Utanríkisráðuneytið tekur nú á móti umsóknum um styrki til Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífsins um þróunarsamvinnu vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum, en sjóðurinn tekur við umsóknum tvisvar á ári. Umsóknarfrestur er til 10. september nk., en hámarksstyrkur nemur 30 m.kr. á þriggja ára tímabili.

    04. feb. 2024Þróunarsamvinna, Afríka, Úganda, Utanríkisráðuneytið

    Hjálparstarf kirkjunnar stuðlar að valdeflingu ungmenna í Kampala

    Stuðningur Hjálparstarfs kirkjunnar við verkefni sem snýr að valdeflingu ungmenna í fátækrarhverfum Kampala, höfuðborg Úganda, hefur skilað góðum árangri og mætt sárri þörf ungmenna í krefjandi aðstæðum. Þetta kemur fram í nýrri óháðri úttekt sem unnin var af alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu VIG, en Hjálparstarf kirkjunnar hefur um árabil verið einn af lykil samstarfsaðilum utanríkisráðuneytisins í þróunarsamvinnu.

    25. jan. 2024Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland styður við fæðuöryggi skólabarna með loftslagsverkefni í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja samstarf við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna á sviði loftslagsmála í Úganda sem jafnframt stuðlar að auknu fæðuöryggi fátækra skólabarna. Orkusparandi eldunaraðstaða verður sett upp í tugum skóla og þúsundir trjáa gróðursett á einu snauðasta svæði landsins.

    23. jan. 2024Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Lilongwe

    Ísland styður sérstaklega við fátækustu íbúa Malaví

    Íslensk stjórnvöld hafa veitt 50 m.kr. viðbótarframlag í sérstakan sjóð Alþjóðabankans og ríkisstjórnar Malaví sem fjármagnar aðgerðir til að styðja þau allra fátækustu í landinu.

    18. jan. 2024Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland fjármagnar verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo héraði í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að fjármagna sérstakt verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo-héraði í Úganda í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Ísland styður nú við svipuð verkefni með UNFPA í öllum samstarfsríkjunum þremur í Afríku.

    08. jan. 2024Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Lilongwe

    Utanríkisráðherra heilsar upp á stúlknalið Ascent Soccer frá Malaví

    Stúlknalið knattspyrnuakademíunnar Ascent Soccer frá Malaví hitti í gær Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og hélt fyrir hana kynningu.

    21. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Tveir nýir grunnskólar afhentir í Úganda

    Tveir nýir grunnskólar sem byggðir voru fyrir íslenskt þróunarfé hafa verið afhentir yfirvöldum í Namayingo-héraði í Úganda. Á dögunum voru ný salernishús tekin í notkun í sjö skólum til viðbótar.

    20. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028 samþykkt

    Alþingi samþykkti einróma á föstudag þingsályktun um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028. Stefnan byggir á því sem vel hefur tekist á undanförnum árum, niðurstöðum úttekta og nýafstaðinni jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) þar sem meðal annars var lögð áhersla á mikilvægi þess að Ísland hafi áfram skýra og einbeitta nálgun í sinni þróunarsamvinnu.

    15. des. 2023Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjögur fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs

    Fjögur fyrirtæki fengu í vikunni styrki frá utanríkisráðuneytinu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Markmið sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu. Fyrirtækin sem um er að ræða eru Tern systems, As We Grow, Creditinfo Group og Verkís.

    29. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Malaví, Utanríkismál

    Óháð úttekt staðfestir áþreifanlegan árangur Íslands í Malaví

    Áratugalangt samstarf Íslands við Mangochi-hérað í Malaví hefur skilað áþreifanlegum árangri fyrir íbúa héraðsins, að því er fram kemur í nýrri óháðri úttekt sem unnin var af alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu GOPA.

    17. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna

    Endurnýjun samstarfssamnings við UNESCO um þróunarsamvinnu

    Nýr samningur við Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um áframhaldandi stuðning Íslands við þróunarsamvinnuverkefni stofnunarinnar var undirritaður í höfuðstöðvum UNESCO í París í gær.

    16. nóv. 2023Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Árangur af þróunarsamvinnu Íslands og Malaví ræddur á fundi utanríkisráðherra

    Góður árangur af þróunarsamvinnu Íslands og Malaví, mikilvægi jafnréttismála og loftslagsmál voru ofarlega á baugi á fundi Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og Nancy Tembo, utanríkisráðherra Malaví, sem fram fór í morgun.

    07. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Tvö fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins

    Íslensku fyrirtækin Verkís og Fisheries Technologies hlutu á dögunum styrki til verkefna á sviði þróunarsamvinnu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins. Heildarframlag styrkja úr sjóðnum voru að þessu sinni tæplega 24 milljónir króna á móti framlagi fyrirtækjanna.

    04. nóv. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jákvæð niðurstaða í jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands var tekin fyrir á fundi nefndarinnar í París fyrir helgi. Niðurstöðurnar eru afar jákvæðar fyrir Ísland en þar kemur meðal annars fram að með skýrri og einbeittri nálgun á tiltekin málefnasvið, stofnanir og samstarfslönd, hafi Ísland nýtt styrkleika sína í þróunarsamvinnu og hámarkað framlag sitt til málaflokksins þrátt fyrir smæð.

    17. okt. 2023Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið, Malaví

    Íslensk stjórnvöld fjármagna nýja fæðingardeild sem rís í Makanjira

    Forseti Malaví, ásamt ráðherrum og starfsfólki sendiráðs Íslands í Lilongwe, tók í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri fæðingardeild sem mun rísa á afskekktu svæði Mangochi-héraðs fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda.

    22. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra undirritaði fjóra nýja rammasamninga við stofnanir Sameinuðu þjóðanna í vikunni í tengslum við 78. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur sem hæst í New York. Í ráðherraviku allsherjarþingsins koma leiðtogar allra aðildarríkjanna 193 saman og hefur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótt fjölda viðburða í vikunni auk þess sem hún hefur fundað með utanríkisráðherrum fjölmargra ríkja bæði nær og fjær.

    16. sep. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Ísland veitir fjárstuðning til uppbyggingar sjálfbærra fiskveiða í þróunarríkjum

    Íslensk stjórnvöld hafa undirritað samning við Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) um fjárstuðning til þróunarríkja við að koma á fót sjálfbærri fiskveiðistjórnun. Stuðningurinn nemur 500 þúsund svissneskum frönkum, en Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands í Genf, við sérstakt tilefni ásamt Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastýru Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

    14. sep. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Staða hinsegin fólks í Úganda og stuðningur við Úkraínu til umræðu á fundi með þróunarmálaráðherra Noregs

    Stuðningur við Úkraínu og staða hinsegin fólks í Úganda voru ofarlega á baugi á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Anne Beathe Tvinnereim, þróunarmálaráðherra Noregs, sem haldinn var í Ósló í gær.

    01. sep. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Síerra Leóne, Þróunarsamvinna, UNICEF, V-Afríka, Sameinuðu þjóðirnar

    Nýtt heildstætt verkefni um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í Síerra Leóne

    Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne, undirrituðu nýverið samstarfssamning um áframhaldandi stuðning við uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í Síerra Leóne. Um er að ræða umfangsmikið og samþætt verkefni til fjögurra ára, frá 2022 til 2026, sem mun ná til sextán afskekktra fiskiþorpa þar sem innviðir og grunnþjónusta er afar takmörkuð.

    24. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra á fundi með framkvæmdastjóra hjá Alþjóðabankanum

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra áttu í dag fund í utanríkisráðuneytinu með Jorge Familiar framkvæmdastjóra fjárreiða (Vice President and Treasurer) hjá Alþjóðabankanum í Washington.

    03. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við UN Women, UNICEF og UNFPA

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til UN Women, UNICEF og UNFPA sem eru þrjár áherslustofnanir Íslands í þróunarsamvinnu innan Sameinuðu þjóðanna. Hækkun framlaganna er umtalsverð og er hluti af aukinni áherslu íslenskra stjórnvalda á þróunarsamvinnu.

    02. ágú. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Síerra Leóne, UNICEF, Utanríkismál

    Ísland styður við vatns- og hreinlætisverkefni í Síerra Leóne

    ​Nýju samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum landsins var formlega hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í fiskiþorpinu Goderich í dag.

    18. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, Malaví, Síerra Leóne, Þróunarsamvinna, V-Afríka, Afríka

    Níu félagasamtök fá fjórtán styrki til þróunarsamvinnuverkefna

    ​Utanríkisráðuneytið hefur gert samninga við níu íslensk félagasamtök um styrki vegna fjórtán þróunarsamvinnuverkefna, samtals að fjárhæð 77 milljónir. Tvenn samtök fá að þessu sinni úthlutað í fyrsta sinn, Íslenska barnahjálpin og Björt Sýn, en bæði samtökin starfa í þágu barna í Kenía. Alls bárust sextán umsóknir frá tíu félagasamtökum.

    17. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þingsályktunartillaga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands komin í Samráðsgátt

    Þingsályktunartillaga um stefnu stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu hefur verið lögð fram í Samráðsgátt. Samkvæmt lögum skal utanríkisráðherra leggja fram tillögu um stefnu í alþjóðlegum þróunarmálum fimmta hvert ár, en stefnan sem nú er lögð fram nær til tímabilsins 2024-2028. Í gegnum samráðsgátt óskar utanríkisráðuneytið nú eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnuna.

    14. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við konur í Afganistan

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita viðbótarframlög til stofnana og sjóða sem berjast fyrir mannréttindum kvenna og stúlkna í Afganistan. Veittar verða samtals 150 milljón króna sem renna til Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women), Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) og UN Women’s Peace and Humanitarian Fund (WPHF), sem er sjóður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem veitir styrki til félagasamtaka sem eru leidd af konum.

    12. júl. 2023Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Úganda, Utanríkisráðuneytið

    Ísland bakhjarl mannréttindasamtaka í Úganda

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja stuðning við afrísku mannréttindasamtökin DefendDefenders. Samtökin, sem hafa höfuðstöðvar í Úganda, beita sér fyrir stuðningi við fólk sem berst fyrir mannréttindum, þar á meðal réttindum hinsegin fólks. 75 ár eru um þessar mundir frá því að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt.

    06. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, DAC, OECD, Utanríkismál

    Niðurstöður úr jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands kynntar

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands hefur verið birt. Carsten Staur, formaður nefndarinnar kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar og fór yfir styrkleika og áskoranir í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands á kynningarfundi á mánudag. Hann benti á að niðurstöður rýninnar væru jákvæðar og að Ísland hafi sýnt í verki hvernig lítið framlagsríki getur náð umtalsverðum árangri með skýrri og einbeittri nálgun.

    17. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, UN Women, UNICEF, Utanríkismál

    Nýir rammasamningar við landsnefndir UN Women og UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur undirritað rammasamninga við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Samningarnir ná til kynningar- og fræðslumála á sviði alþjóðlegar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

    29. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við friðaruppbyggingu og sáttamiðlun á vegum Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa gert nýjan fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðaruppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum, Department of Political and Peacebuilding Affairs, DPPA. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur og framlagið nemur 20 milljónum króna á ári í takt við langtímaáætlun DPPA, sem gildir næstu fjögur árin, 2023-2026.

    10. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ljósmyndasýning um barnungar mæður í þróunarríkjum

    Í dag var ljósmyndasýning Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) um barnungar mæður í þróunarríkjum opnuð í Smáralind. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra opnaði sýninguna og flutti ávarp.

    05. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs

    Hringrásarhagkerfi og nútímavæðing fiskveiða í Kenía

    Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu hefur veitt fyrirtækinu Pólar toghlerar ehf. fjárstyrk til að ráðast í undirbúningsverkefni í Kenía við að innleiða hringrásarhagkerfi og ný vinnubrögð við fiskveiðar og meðferð sjávarfangs. Samstarfsaðili er Kaldara Group ehf., auk heimamanna í Kenía.

    06. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þorri þjóðarinnar telur hagsæld hennar byggjast á alþjóðasamvinnu

    Rúm 77 prósent landsmanna telja hagsæld Íslands byggjast að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 80,5 prósent að hagsæld Íslands byggist að miklu leyti á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 78,4 prósent að Ísland treysti að miklu leyti á alþjóðalög og alþjóðastofnanir til að tryggja að landamæri og lögsaga séu virt. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu um utanríkismál og alþjóðasamstarf.

    02. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, WFP, Utanríkismál

    Ræddu alvarlega stöðu í mannúðarmálum

    Ástand mannúðarmála í heiminum og endurnýjun rammasamnings Íslands við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) voru til umfjöllunar á fjarfundi þeirra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og David Beasley framkvæmdastjóra stofnunarinnar í morgun.

    15. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Annað, Asía, OECD, Skólar GRÓ, Þróunarsamvinna, Afríka

    Nítján nemendur útskrifast frá Landgræðsluskóla GRÓ

    Landgræðsluskóli GRÓ útskrifaði í gær nítján sérfræðinga, sjö konur og tólf karla, frá átta löndum. Landgræðsluskólinn er eitt fjögurra þjálfunarprógramma sem rekin eru undir GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir merkjum UNESCO og er ein af meginstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Markmið miðstöðvarinnar er að byggja upp færni og þekkingu í þróunarlöndunum á sviðum þar sem sérþekking Íslendinga nýtist. Einnig eru starfandi á vegum GRÓ Jarðhitaskóli, Sjávarútvegsskóli og Jafnréttisskóli.

    14. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Aukin framlög til mannúðarstofnana vegna hamfara í Sómalíu og Pakistan

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að bregðast við neyðarástandi í Sómalíu og Pakistan með viðbótarfjármagni til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Um er að ræða þrjátíu milljóna króna framlag til WFP vegna afleiðinga langvarandi þurrka í Sómalíu og þrjátíu milljóna króna framlag til UNHCR í kjölfar mannskæðra flóða í Pakistan.

    12. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, WFP, Utanríkismál

    Áratugur frá upphafi samstarfs um heimaræktaðar skólamáltíðir

    Ísland var fyrst framlagsríkja til að taka höndum saman við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, um næringaríkar heimaræktaðar skólamáltíðir fyrir grunnskólanemendur í Malaví. Fyrir réttum tíu árum var samstarfið innsiglað með hátíð í Kankhande skólanum í Mangochi héraði. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti einmitt þann skóla í dag í vinnuferð sinni í Malaví til að kynna sér verkefnið.

    12. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, Utanríkismál

    Tilkynnt um nýtt samstarfsverkefni í Malaví um sólarknúið rafmagn

    Sendiráð Íslands í Lilongve og EnDev, verkefnastoð þýsku þróunarsamvinnustofnunarinnar GiZ, hafa undanfarin þrjú ár staðið að verkefni í Malaví um að veita skólum og heilsugæslustöðvum aðgang að sólarknúnu rafmagni og orkusparandi eldhlóðum til að draga úr eldiviðarnotkun við eldamennsku.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband