06. sep. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma (1. áfangi)
„Hér er stefnan tekin á tvö spennandi og góð verkefni sem samrýmast fullkomlega nýrri Orkustefnu fyrir Ísland: fjölnýtingu dýrmætra orkustrauma á borð við glatvarma, og hins vegar kolefnisföngun ýmist til niðurdælingar eða framleiðslu á rafeldsneyti. Þessi nýsköpunarverkefni stuðla ekki bara að markmiðum okkar Íslendinga um bætta orkunýtingu, orkuskipti og samdrátt í kolefnislosun heldur styrkja þau atvinnusvæðið á Grundartanga og þá miklu verðmætasköpun sem þar fer fram. Þetta er því gleðilegur áfangi og ég vil þakka Elkem, Veitum og CarbFix fyrir að setja stefnuna á þessi verkefni og Þróunarfelaginu fyrir að þjóna vel hagsmunum og tækifærum svæðisins,“ segir Þórdís Kolbrún.