Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 851–900 af 2565
    Raða eftir:
    25. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Neytendamál, Atvinnuvegir

    Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins

    Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf. (3. gr. reglna nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla).

    25. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Atvinnuvegir

    14% fjölgun barna- og ungmennabóka milli ára

    Til marks um grósku í íslenskri bókaútgáfu fjölgar barna- og ungmennabókum sem kynntar voru á árlegri barnabókamessa Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir starfsfólk leikskóla og skólabókasafna um 14% milli ára. Viðburðinn er mikilvægur gluggi fyrir lykilfólk í læsisuppeldi yngri kynslóða en Lilja Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra leit við á messunni í Hörpu.

    24. nóv. 2022Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Úrskurðir viðskiptamál

    Úrskurður v. skráningar firmaheitis.

    Úrskurður v. skráningar firmaheitis. Skráning firmaheitis, heiti fasteignar, lagagrundvöllur ákvörðunar, valdþurrð, tómlæti.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið bannar löndun á karfa af Reykjaneshrygg

    Á 40. ársfundi Norðuraustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) sem haldinn var í London dagana 15.-18. nóvember, samþykktu aðildarríki ráðsins að banna löndun, umskipun eða aðra þjónustu við skip sem stunda veiðar á karfa á Reykjaneshrygg. Rússar hafa haldið þar áfram karfaveiðum þrátt fyrir skýra vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Tilgangur samþykktarinnar er að þrengja að þessum veiðum og þrýsta á að öll aðildarríki samþykki vísindaráðgjöf ICES sem grunn veiðistjórnunar.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menntamál, Neytendamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Viðskipti, Menningarmál

    Fundaði með viðskiptaráðherra Suður-Kóreu

    Aukin viðskipti og efnahagsleg samvinna milli Íslands og Suður Kóreu var á meðal umræðuefna Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með Ahn Duk-geun viðskiptaráðherra Suður-Kóreu í Seúl. Samningar á sviði tvísköttunar og fríverslunar eru í gildi milli landanna en árið 2020 nam umfang inn- og útflutnings milli Íslands og Suður-Kóreu um 8 milljörðum króna. Suður kóresk fyrirtæki hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum á umliðnum árum, má þar nefna kaup Kóreubúa á tölvuleikjafyrirtækinu CCP árið 2018 fyrir um 46 milljarða íslenskra króna.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Úkraína, Atvinnuvegir

    Engar einfaldar lausnir í boði vegna áskorana í landbúnaðarframleiðslu heimsins

    Á Matvælaþingi sem haldið var í Silfurbergi í Hörpu í gær flutti Olga Trofimtseva, fyrrum matvælaráðherra Úkraínu, erindi um framtíðarhorfur og áskoranir í matvælaframleiðslu í landbúnaði á heimsvísu.

    23. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Úthlutun nýliðunarstuðnings

    Matvælaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2022 í samræmi við reglugerð 430/2021 um almennan stuðning við landbúnað. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

    23. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður innlausnarmarkaðar fyrir greiðslumark sauðfjár

    Innlausnarmarkaður ársins 2022 með greiðslumark í sauðfé var haldinn þann 15.nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 226 umsóknir um kaup og 22 umsóknir um sölu.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skotar og Íslendingar takast á við svipaðar áskoranir í landbúnaði

    Pete Ritchie frá samtökunum Nourish Scotland flutti erindi á Matvælaþingi sem hófst í morgun. Í erindinu kom fram að Skotar glíma við svipuð vandamál í landbúnaði og Íslendingar. Til að mynda er mikil áhersla lögð á ræktun sauðfés og nautgripa í báðum löndum, og stór landsvæði henta ekki til hefðbundinnar akuryrkju.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Frumvarp um bílaleigur og kröfur til leyfishafa vegna íslenskra aðstæðna í Samráðsgátt

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sett í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015. Er frumvarpið síðari hluta lagabreytinga sem byggja á tillögum OECD um samkeppnishæfni, í þeim tilgangi að halda áfram að bæta rekstrarskilyrði íslenskrar ferðaþjónustu.

    22. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Heimsmarkmiðin, Landbúnaður, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Verslun, Atvinnuvegir

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, setti Matvælaþing 2022 í morgun

    Fullur salur er í Silfurbergi í Hörpu þar sem samankomnir eru fulltrúar allra þeirra greina sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi. Einnig er finna meðal þinggesta fjölbreyttan hóp fulltrúa félagasamtaka og stofnana sem tengjast matvælum á einn eða annan hátt. Sýnir fjölbreytnin vel áhuga fólks á málefninu. Þetta er í fyrsta sinn sem Matvælaþing er. haldið hér á landi.

    21. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra fundaði með formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, fundaði fyrir hönd Íslands með Hoesung Lee, formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm el Sheikh í Egyptalandi.

    21. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaþing hefst á morgun

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, opnar Matvælaþing í Silfurbergi í Hörpu á morgun 22. nóvember.

    18. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Skilvirkari gagnaöflun og vinnsla lykilatriði fyrir sjávarútveginn

    Matvælaráðuneytið og Intellecta hafa gert með sér samning um markvissari og skilvirkari öflun og úrvinnslu gagna í sjávarútvegi. Þetta var kynnt á fjórða fundi samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu sem haldinn var 16. nóvember sl. Nefndin hefur yfirsýn yfir starfshópa verkefnisins „Auðlindin okkar“.

    17. nóv. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland og Síle leiða alþjóðlegt átak til verndar freðhvolfinu

    Á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna COP27 sem haldið er í Sharm El Sheikh í Egyptalandi, undirrituðu ráðherrar 13 ríkja yfirlýsingu til að ýta úr vör alþjóðlegu átaki sem ætlað er að vekja athygli á mikilvægi þess að vernda freðhvolfið (e. Cryosphere). Sex ríki til viðbótar hafa einnig staðfest þátttöku.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir drög að matvælastefnu

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, kynnti í febrúar áherslur og verklag við gerð matvælastefnu í Samráðsgátt stjórnvalda. Síðan hefur vinnuhópur á vegum ráðuneytisins unnið að útfærslu stefnunnar og hafa nú verið gefin út drög að matvælastefnu sem ráðherra mun kynna á Matvælaþingi 22. nóvember.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Góð mæting í Hofi á fundi Auðlindarinnar okkar

    Fjölbreyttur hópur fundarfólks tók þátt í umræðum á fjórða og síðasta fundi fundaraðarinnar Auðlindin okkar sem haldinn var 15. nóvember í Hofi á Akureyri.

    16. nóv. 2022Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Drög að matvælastefnu

    nóvember 2022 / Atvinnuvegaráðuneytið Drög að matvælastefnu Drög að matvælastefnu

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir drög að verndun hafsvæða fyrir botnveiðum

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram reglugerðardrög í samráðsgátt um verndun svæða fyrir botnveiðum. Drögin eru byggð á skýrslu sem Hafrannsóknastofnun skilaði til ráðuneytisins árið 2021 og fjallar um verndun viðkvæmra botnvistkerfa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Menningarmál, Menntamál, Neytendamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Barnaréttur, Ferðaþjónusta, Iðnaður, Jafnrétti, Mannréttindi, Sveitarfélög, Atvinnuvegir

    Dúndur diskó Bragi Valdimar fékk verðlaun Jónasar

    Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og textasmiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni verkefnið Tungumálatöfrar á Ísafirði sem býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir fyrir fjöltyngd börn.

    16. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Áhersla á loftslagstengda þróunarsamvinnu og jafnréttismál á COP27

    Ísland var formlega tekið inn í samstarfshóp ríkja um fjármögnun aðlögunaraðgerða vegna afleiðinga loftslagbreytinga í þróunarríkjum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, í vikunni.

    15. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Utanríkismál, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra flutti yfirlýsingu Íslands á COP27

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, flutti í dag yfirlýsingu Íslands á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

    08. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælastofnun og Fiskistofa í samstarf um eftirlit við hvalveiðar

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar. Í reglugerðinni er Matvælastofnun falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar.

    04. nóv. 2022Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Þróunarverkefni búgreina

    Umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina framlengdur til 28. apríl 2022

    Matvælaráðuneytið vekur athygli á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er framlengdur til 28. apríl 2022.

    03. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Áburðarstuðningur greiddur til bænda

    Matvælaráðuneytið hefur greitt út stuðning, samkvæmt fjárlögum 2022, sem ætlaður er til að koma til móts við miklar hækkanir á áburði sem orðið hafa á milli áranna 2021 og 2022. Áætluð hækkun hérlendis frá síðasta ári er um 87% samkvæmt mati Hagstofunnar fyrir verðlagsgrundvöll kúabús.

    03. nóv. 2022Atvinnuvegir, Auðlindir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Dúi nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins

    Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins.

    02. nóv. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Önnur eftirfylgniskýrsla um uppbyggingu innviða

    Önnur eftirfylgniskýrsla um stöðu verkefna í aðgerðaáætlun um uppbyggingu innviða (hlekkur á skýrsluna) hefur verið birt. Aðgerðaáætlunin var samþykkt af ríkisstjórninni í lok febrúar 2020 en hún var sett fram í kjölfar fárviðrisins sem geisaði í desember 2019. Þar eru settar fram 287 aðgerðir um uppbyggingu innviða.

    31. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Ráðherra fundaði með Leiðsögn

    „Leiðsögumenn gegna afar mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu. Góðir og vel menntaðir leiðsögumenn gera ferðalagið ekki bara betra og skemmtilegra, heldur stuðla að öryggi ferðamanna, aukinni fagmennsku og margeykur líkurnar á því að ferðamenn mæli með landinu sem áfangastað eftir heimsóknina,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, sem fundaði með Leiðsögn – stéttarfélagi leiðsögumanna. Ráðherra hitti Friðrik Rafnsson, formann Leiðsagnar og Hörpu Björnsdóttur ritara félagsins. Félagið á 50 ára afmæli um þessar mundir og mun halda glæsilega afmælishátíð af því tilefni í nóvember.

    31. okt. 2022Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (3)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

    31. okt. 2022Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (2)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

    31. okt. 2022Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (1)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

    28. okt. 2022Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir gerð minnisvarða um síldarstúlkur á Siglufirði

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 15 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja gerð minnisvarða um þátt síldarstúlkna í íslensku atvinnu- og efnahagslífi á síðustu öld. Ráðgert er að minnisvarðinn verði staðsettur á sérbyggðu plani við Síldarminjasafnið á Siglufirði.

    28. okt. 2022Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir

    Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Enginn atvinnurekstur í félagi. Ákvörðun ársreikningaskrár felld úr gildi.

    Ákvörðun ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra um sektarálagningu vegna síðbúinna skila ársreiknings. Enginn atvinnurekstur í félagi. Ákvörðun ársreikningaskrár felld úr gildi.

    27. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Villa í svari við fyrirspurn um erfðablöndun

    Þann 25. október sl. svaraði matvælaráðherra fyrirspurn varðandi laxeldi frá þingmanninum Brynju Dan Gunnarsdóttur. Síðasti liður fyrirspurnarinnar af fjórum sneri að erfðablöndun milli eldislaxa sem sloppið hafa úr sjókvíum og villtra laxastofna, og var spurt hvort ráðherra teldi þörf á að bregðast við vísbendingum um slíkt með einhverjum hætti.

    26. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Málefnaleg umræða um sjávarútveg á Ísafirði

    Góð mæting var á fund sem haldinn var í gær í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á vegum verkefnisins Auðlindarinnar okkar. Einnig fylgdist fjöldi manns með fundinum í streymi á netinu og var góð þátttaka í umræðum bæði í sal og í gegnum streymi.

    26. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta

    Auglýsing um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi

    Með vísan til sérstaks samnings milli Íslands, Noregs, Liechtenstein og Bretlands um viðskipti með landbúnaðarvörur, á grundvelli 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi nr. 1170/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í Bretlandi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2023.

    25. okt. 2022Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegaráðuneytið, Fæðuöryggi

    Álag á jarðræktarstyrki og landgreiðslur greiddar út

    Greiddar voru í dag rúmar 465 milljónir til umsækjenda vegna álags á jarðræktarstyrki og landgreiðslna. Greiðslurnar eru samkvæmt tillögum spretthóps sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar í júní sl. vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar.

    25. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kallar eftir upplýsingum um eftirlit með fiskeldi

    Í ljósi atvika hefur matvælaráðherra óskað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um fyrirkomulag eftirlits með rekstrarleyfishöfum fiskeldis frá því seiði eru sett í kvíar og þar til slátrun er lokið.

    25. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Iðnaður, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Verslun, Auðlindir

    Matvælaþing haldið í Hörpu 22. nóvember

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra boðar til matvælaþings sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu 22. nóvember nk. Á þinginu mun matvælaráðherra kynna drög að nýrri matvælastefnu ráðuneytisins, en þinginu er ætlað að vera vettvangur samræðu og rýni hagaðila um stefnuna. Á þinginu er því stefnt undir eitt þak þeim fjölmörgu og ólíku starfsgreinum sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi.

    25. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Dýravelferð

    Matvælaráðherra kallar eftir upplýsingum frá Matvælastofnun

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits og verkferla vegna velferðar dýra þegar grunur leikur á að umráðamenn séu ekki að uppfylla ákvæði laga, hvort sem um er að ræða almennt eftirlit eða samkvæmt ábendingum sem berast stofnuninni.

    24. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Bandaríkin fresta breytingum á innflutningsreglum um meðafla sjávarspendýra

    Haf- og loftslagstofnun Bandaríkjanna (NOAA) hefur framlengt frest vegna innleiðingu reglna um vernd sjávarspendýra við fiskveiðar og fiskeldi til 31. desember 2023. Reglurnar gilda um innflutning til Bandaríkjanna á sjávarafurðum úr fiskveiðum þar sem sjávarspendýr eru meðafli eða úr fiskeldi sem getur haft áhrif á sjávarspendýr.

    24. okt. 2022Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi, Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn um úthlutun byggðakvóta.

    Byggðakvóti. Skilyrði fyrir úthlutun. Endurnýjun skips. Flutningur aflaheimilda. Lögvarðir hagsmunir

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2023

    Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2023 verði 149 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Hönnun, Iðnaður, Menningarmál

    Fjallaskáli framtíðarinnar hlýtur hæsta styrk í síðari úthlutun Hönnunarsjóðs 2022

    Hönnunarsjóður úthlutaði þann 20. október 20 styrkjum til ólíkra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og 10 ferðastyrki. Að þessu sinni var 17.5 milljón úthlutað en alls bárust 97 umsóknir um 218 milljónir í almenna styrki.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

    Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi nr. 1152/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabil.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2023.

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

    Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1151/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2023. ​

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Atvinnuvegir, Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn er fjármagnaður af matvælaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, og renna samtals 30 milljónir kr. í sjóðinn árlega.

    21. okt. 2022Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra

    október 2022 / Atvinnuvegaráðuneytið Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra Greinargerð um stöðu vinnu við sjávarútvegsstefnu matvælaráðherra

    21. okt. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Auðlindin okkar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Auðlindin okkar heldur fundaröð á landsbyggðinni

    Samræðufundir á landsbyggðinni eru hluti verkefnisins Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar í maí sl. Tilgangur verkefnisins er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

    • First
    • Prev
    • 16
    • 17
    • 18
    • 19
    • 20
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband