Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun
Frumvarp um stofnun innviðafélags sett í samráð
Sett hafa verið í samráð drög að frumvarpi um stofnun sérstaks innviðafélags sem ætlað er að annast fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Stofnun innviðafélags styður við áherslur stjórnvalda um að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum og skapa skýrari umgjörð um framkvæmd stórra, þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna.