Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 892
    Raða eftir:
    17. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19

    Beiðnir um undanþágur frá takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar og meðferð þeirra

    Líkt og fram kemur í auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, getur heilbrigðisráðherra veitt undanþágu ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Skólastjórnendur sem telja efni standa til að sækja um slíka undanþágu eiga að beina henni til heilbrigðisráðuneytisins til umfjöllunar og afgreiðslu. Þegar liggja fyrir úrskurðir í þremur slíkum málum og hafa þeir verið birtir á vef Stjórnarráðsins.

    17. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Covid-19, Innviðaráðuneytið

    Víðtækt samstarf ríkis, sveitarfélaga, fagaðila og hagsmunaaðila í þágu viðkvæmra hópa vegna Covid 19

    Félags- og barnamálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga rituðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu til aðgerða sem miða að því að takast á við þær áskoranir sem stofnanir ríkisins, félagsþjónusta og aðrir aðilar sem sinna þjónustu við viðkvæma hópa í landinu standa frammi fyrir vegna Covid-19 veirunnar.

    17. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Bakvarðasveit velferðarþjónustu – óskað eftir starfsfólki á útkallslista

    Félags- og barnamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga, vinna í sameiningu að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu.

    17. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna útgáfumála ríkissjóðs

    Í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 er fyrirsjáanlegt að fjárþörf ríkissjóðs mun aukast umtalsvert frá fyrri spám. Mikil óvissa er um efnahagshorfur næstu mánuði og því er erfitt að meta lánsfjárþörf ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár. Einnig er óljóst hversu mikil þörfin verður annars vegar til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma.

    17. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19

    Utanríkisráðherra ræddi við Pompeo á símafundi í dag

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi við Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í síma í dag um áhrif tímabundins banns Bandaríkjastjórnar við ferðum ferðamanna af Schengen-svæðinu, sem nær einnig til íslenskra ríkisborgara.

    17. mar. 2020Norrænt samstarf, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Leggja áherslu á samstöðu Norðurlanda

    Utanríkisráðherrar Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar leggja áherslu á samstöðu Norðurlanda og samstarf þeirra andspænis þeim miklu áskorunum sem ríki heims standa frammi fyrir nú vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Ráðherrarnir fimm áttu símafund í gær og voru sammála um mikilvægi þess að Norðurlöndin standi þétt saman á þessum óvissutímum.

    16. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál, Covid-19

    Upplýsingar til Íslendinga sem eru á ferðalagi erlendis eða dveljast þar tímabundið

    Mikilvægar upplýsingar til Íslendinga sem annað hvort eru á ferðalagi erlendis eða dveljast þar tímabundið og eiga rétt á heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

    16. mar. 2020Almannaöryggi, Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Upplýsingamiðlun til Íslendinga erlendis

    Íslendingar erlendis eru hvattir til að fylgjast vel með utanríkisráðuneytinu á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum þar sem upplýsingum verður miðlað um leið og þær berast.

    16. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Skipting gjalddaga á staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp ríkisstjórnarinnar um tvískiptingu á gjalddaga staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds Breytingin felur í sér að í stað þess að greiða eigi alla kröfuna mánudaginn 16. mars verður greiðsla hennar tvískipt.

    16. mar. 2020Rit og skýrslur, Menntamál, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum

    mars 2020 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, UNICEF og Rauða krossins um lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum. Í þeim eru settar fram skýrar og framkvæmanlegar leiðbeiningar um öruggar aðgerðir sem tengjast því að koma í veg fyrir smit, greina það snemma og verjast COVID-19 í skólum og öðrum menntastofnunum

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 6/2020

    Menntaskólinn í Kópavogi sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi fyrir viðkvæma hópa, annars vegar fyrir nemendur með einhverfu á starfsbraut og hins vegar fyrir kennslu í Krýsuvík. Ráðuneytið samþykkti beiðnirnar með skilyrðum.

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 7/2020

    Svalbarðsstrandarhreppur óskaði eftir undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. Ráðuneytið samþykkti beiðnina með skilyrðum.

    16. mar. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    Úrskurður nr. 8/2020

    Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra óskaði eftir undanþágu frá takmörkunum á skólastarfi vegna verklegrar kennslu. Ráðuneytið hafnaði beiðni skólans.

    16. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Höldum heilbrigðum börnum í skóla

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, UNICEF og Rauða krossins um lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum.

    16. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Sjúkraflutningamenn bætast í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur boðið fram aðstoð sína um að biðla til félagsmanna sinna um að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Alls hafa nú um 350 heilbrigðisstarfsmenn skráð sig í bakvarðasveitina.

    16. mar. 2020Menningarmál, Almannaöryggi, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarstarf á tímum samkomubanns: Samráðshópur ráðherra fundar

    Mennta- og menningarmálaráðherra hefur kallað saman samráðshóp lykilaðila í menningarmálum um land allt til þess að vinna að því mikilvæga verkefni að halda uppi starfsemi listastofnana og safna við þær aðstæður sem skapast hafa í íslensku samfélagi

    15. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Sameiginleg yfirlýsing vegna áhrifa COVID-19 á skólastarf

    Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. mars, er birt sameiginleg yfirlýsing vegna áhrifa COVID-19 á skólastarf.

    14. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Utanríkismál

    Ráðleggingar íslenskra stjórnvalda til Íslendinga vegna ferðalaga

    Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis.

    14. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Ráðherra skipar samráðshóp lykilaðila í menntakerfinu

    Mennta- og menningarmálaráðherra hefur kallað saman samráðshóp lykilaðila í menntakerfinu til þess að vinna að því mikilvæga verkefni að halda uppi námi og kennslu í skólum við þær fordæmalausu aðstæður sem skapast hafa í íslensku samfélagi.

    13. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19

    Atvinnuleysisbótaréttur aukinn – Rýmkun á greiðslu hlutabóta

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti rétt í þessu frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðarsjóð launa, vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði.

    13. mar. 2020Samgöngur og fjarskipti, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Isavia fellir tímabundið niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli

    Isavia hefur tilkynnt ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að félagið muni fella tímabundið niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli.

    13. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstofnanir vel í stakk búnar fyrir fjarvinnu starfsfólks

    Nýtt skrifstofuumhverfi ríkisins, Microsoft 365, reynist vel við að tryggja að starfsfólk ríkisins geti á næstunni sinnt störfum sínum að heiman í ljósi Covid-19 faraldursins og hefur í för með sér að flestar stofnanir þurfa engar viðbótarfjárfestingar til þess að starfsmenn geti unnið heiman frá. Þar gegnir kerfið Teams lykilhlutverki, sem heldur utan um vinnu verkefnahópa, samvinnu í skjölum og fjarfundi.

    13. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19

    Frumvarp til laga um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera veikir samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag frumvarp félags- og barnamálaráðherra um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera veikir.

    13. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Takmarkanir á skólahaldi til að hægja á útbreiðslu Covid-19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur að tillögu sóttvarnalæknis ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars næstkomandi

    13. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Takmarkanir á samkomu- og skólahaldi til að hægja á útbreiðslu Covid – 19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur að tillögu sóttvarnalæknis ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars næstkomandi. Með takmörkun er átt við viðburði þar sem fleiri en 100 manns koma saman og verða þeir óheimilir. Samhliða verður skólahald takmarkað, einnig í fjórar vikur. Ákvörðun heilbrigðisráðherra var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun. Markmiðið er að hægja á útbreiðslu Covid – 19 svo að heilbrigðisþjónustan muni eiga auðveldara með að takast á álag í tengslum við veirusjúkdóminn.

    13. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19

    Málþingi um samspil náttúruverndar, samfélags og atvinnulífs frestað

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur í ljósi COVID-19 og samkomubanns vegna faraldursins ákveðið að fresta málþingi um samspil náttúruverndar, samfélags og atvinnulífs sem fram átti að fara í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsin 19. mars.

    12. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Helstu staðreyndir um bóluefni hér á landi

    Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. Ísland hefur þegar gert samning við fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni sem dugir fyrir 115.000 einstaklinga. Það bóluefni er heldur ekki komið með markaðsleyfi í Evrópu en gert ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu ljúki umfjöllun sinni um í janúar og þann 12. janúar verður fjallað um markaðsleyfi fyrir Moderna.

    12. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Utanríkismál

    Katrín ræddi við Morrison

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti símafund með Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, í gær.

    12. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Evrópskt markaðsleyfi fyrir bóluefni gegn COVID-19 í sjónmáli

    Lyfjastofnun Evrópu hafa borist umsóknir um skilyrt markaðsleyfi fyrir tvö bóluefni við COVID-19. Þetta er annars vegar bóluefni þróað af BioNTech og Pfizer og hins vegar bóluefni sem Moderna Biotech hefur þróað. Stofnunin mun beita flýtimati á umsóknirnar. Niðurstaða gæti legið fyrir innan nokkurra vikna, en það fer eftir því hvort gögnin sem berast sýna með fullnægjandi hætti fram á gæði, öryggi og virkni bóluefnanna. Reynist gögnin fullnægjandi er gert ráð fyrir að endanlegt mat liggi fyrir varðandi bóluefni BioNTech og Pfizer í síðasta lagi 29. desember og 12. janúar fyrir bóluefni Moderna. Ýtarlega er fjallað um málið á vef Lyfjastofnunar.

    11. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Reglugerðarbreyting varðandi fjölda viðskiptavina í verslunum

    Heimilt er að hafa allt að 50 viðskiptavini í einu inni í lyfja- og matvöruverslunum og allt að 10 viðskiptavini samtímis í öðrum verslunum, að því gefnu að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Um starfsmenn í þessum verslunum gildir að þeir mega ekki vera fleiri en 10 í sama rými og samgangur á milli rýma starfsmanna er óheimill. Öllum er skylt að bera andlitsgrímu í verslunum. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt breytingu á reglugerð um takmarkanir á samkomum þar sem fjöldatakmörk í verslunum eru skýrð.

    11. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Ráðherrar úthluta styrkjum til aðgerða gegn ofbeldi

    17 verkefni sem miða að því að auka þjónustu við viðkvæma hópa sem verða fyrir áhrifum vegna Covid-19 faraldursins styrkt.

    10. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Hertar samkomutakmarkanir taka gildi 5. október

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi mánudaginn 5. október og verður birt á morgun. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvum verður lokað. Sundlaugar verða áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum, eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi. Ekki verða breytingar á starfsemi leik- og grunnskóla. Í framhalds- og háskólum munu gilda 25 manna fjöldatakmarkanir og er þar miðað við algenga bekkjarstærð.…

    09. mar. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sértækir styrkir til íþrótta- og ungmennafélaga vegna COVID-19: 150 milljónum kr. úthlutað

    Tilkynnt hefur verið um úthlutun sértækra styrkja til íþróttahreyfingarinnar til að mæta áhrifum Covid-19. Úthlutunin nemur rúmlega 150 milljónum kr. og kemur í kjölfar 300 milljóna kr. framlags ríkisins til íþróttahreyfingarinnar sem úthlutað var í maí.

    09. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla

    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær styrk til að taka betur utan um börn og unglinga í viðkvæmri stöðu

    Styrknum er ætlað að hjálpa embættinu að sinna auknum forvörnum og stuðningi við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra.

    07. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvörðun um breyttar reglur vegna skimunar á landamærum

    Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis og er stefnt að því að breytingin komi til framkvæmda eigi síðar en 13. júlí.

    07. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.

    07. mar. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stuðnings - Kría hefur sig til flugs: Stefnt að mótframlagslánum í sumar

    „Sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafa mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu atvinnulífs hér á landi. Stuðnings - Kría nýtist sprotafyrirtækjum í því ótrygga ástandi sem nú ríki og er upptaktur að þeirri auknu samvinnu stjórnvalda sem stefnt er að með Kríu – sprota - og nýsköpunarsjóði,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra.

    06. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Umönnunargreiðsla vegna fatlaðra og langveikra barna samþykkt

    Breyting á reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

    06. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með NB8 og Visegrad-ríkjum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í utanríkisráðherrafundi Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja. Visegrad-ríkin eru Pólland, Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland. Afleiðingar COVID-19 heimsfaraldursins, efnahagsmál og þróun í þeim efnum í Evrópu voru til umfjöllunar.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Ávarp forsætisráðherra

    Við verðum að vanda okkur því verkefninu er langt í frá lokið, sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í ávarpi til íslensku þjóðarinnar í kvöld, degi áður en fyrsta skrefið er stigið í afléttingu samkomubanns á morgun.

    04. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Líf og heilsa, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga á Landspítala tryggður

    Vaktaálagsauki sem hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa fengið vegna tilraunaverkefnis spítalans verður framlengdur til næstu mánaða og nauðsynlegar fjárveitingar tryggðar. Þetta kemur fram í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sent forstjóra Landspítala vegna málsins.

    04. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Covid-19

    Lágmarks flugsamgöngur tryggðar með samningi við Icelandair

    Stjórnvöld hafa samið við Icelandair um flug til Evrópu og Bandaríkjanna en tilgangurinn er að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu.

    04. mar. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Útlendingar

    Réttur til dvalar lengdur vegna Covid-19

    Dómsmálaráðherra birti í dag nýja reglugerð sem tekur á dvöl þeirra útlendinga sem ekki hafa komist til síns heima frá 20. mars sl. vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar.

    04. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19

    Mikil ánægja með samstarf og samráð vegna COVID-19 á fundi norrænna utanríkisráðherra

    Mikilvægi norrænnar samvinnu og samráðs hefur sjaldan verið eins ljóst eins og á undanförnum vikum.

    04. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Takmarkanir á skólahaldi framlengdar

    Tilkynnt hefur verið að takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem falla áttu úr gildi 13. apríl næstkomandi verði framlengdar til mánudagsins 4. maí.

    04. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Réttindavaktin fundar um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi vegna COVID-19

    Í vikunni fundaði Réttindavakt félagsmálaráðuneytisins og var farið yfir stöðu fatlaðs fólks á Íslandi í ljósi COVID-19.

    04. mar. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Samkomubann framlengt til að hefta útbreiðslu Covid-19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt. „Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ segir heilbrigðisráðherra.

    04. mar. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Félags- og fjölskyldumál

    Félags- og barnamálaráðherra styrkir félagasamtök um 55 milljónir í baráttunni við COVID-19

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur veitt 28 félagasamtökum styrki upp á samtals 55 milljónir króna sem lið í því að auka þjónustu við viðkvæma hópa sem verða fyrir áhrifum vegna COVID-19 faraldursins. Félagasamtökin veita mikilvæga þjónustu til ýmissa hópa í samfélaginu og eru styrkirnir ætlaðir til að aðstoða samtökin í að bregðast við auknu álagi í kjölfar COVID-19 faraldurins og styðja betur við skjólstæðinga sína almennt.

    04. mar. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19, Atvinnuvegir

    Sveinspróf verða haldin

    Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt skólameisturum starfsmenntaskóla og umsýsluaðilum sveinsprófa hafa tekið saman höndum til að finna leiðir svo tryggja megi náms- og próflok hjá þeim sem nú stefna að sveinsprófum, þrátt fyrir tímabundnar lokanir skólabygginga og margra vinnustaða.

    04. mar. 2020Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19

    Heimilt að veita undanþágu frá skilum á kýrsýnum

    Með breytingunni verður ráðuneytinu heimilt við sérstakar aðstæður að veita undanþágu frá skilyrði um skila þurfi inn niðurstöðum kýrsýna (mjólkursýna) úr öllum mjólkandi kúm sem mjólkurframleiðendur skulu taka tvisvar sinnum í hverjum ársfjórðungi, til þess að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi teljist fullnægjandi.

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband