03. jan. 2017Dómsmálaráðuneytið, Fullnusta refsinga, Réttarfar, Lög og réttur
Ný reglugerð umþóknun fyrir vinnu og nám og dagpeninga fanga
Sett hefur verið ný reglugerð um þóknun fyrir vinnu, nám og dagpeninga fanga. Tvær megin breytingar eru frá eldri reglugerð, annars vegar að sama gjald er greitt fyrir öll störf fanga og skólasókn og hins vegar er sett þak á fjölda greiddra klukkustunda í viku hverri.