Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Rekstur og eignir ríkisins
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 845
    Raða eftir:
    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning.

    15. sep. 2020Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla um efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    september 2020 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla um efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning

    12. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta með stafrænu pósthólfi

    Skilvirkari og betri opinber þjónusta og aukið gagnsæi við meðferð mála eru meðal helstu markmiða með frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um stafrænt pósthólf sem verið hefur til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda en frestur til að veita umsögn um frumvarpið var til 7. desember sl.

    11. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja innan skamms

    Hægt verður að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja hjá Skattinum um næstu mánaðamót, en Alþingi samþykkti í liðinni viku lög um aðgerðirnar sem hafa að markmiði að styðja fyrirtæki vegna áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins.

    10. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framhald á lokunarstyrkjum

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með það fyrir augum að tryggja framhald á lokunarstyrkjum til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september 2020.

    10. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins, Ferðakostnaður, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppfærðar reglur um kostnað vegna ferða á vegum ríkisins

    Endurskoðun á reglum um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins er lokið og uppfærðar reglur tóku gildi 1. október sl. Þær koma í stað eldri reglna frá árinu 2009. Markmið reglnanna er að stuðla að hagkvæmni í ferðatilhögun á vegum ríkisaðila.

    07. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Ríkisreikningar, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rekstrarafkoma ríkissjóðs árið 2019 jákvæð um 42 ma. kr.

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2019 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 42 ma.kr til samanburðar við 84 ma.kr. afgang árið 2018. Tekjur námu samtals 838 ma.kr. og rekstrargjöld 818 ma.kr. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 57 ma.kr. en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 78 ma.kr.

    07. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningslán virkjuð á Ísland.is

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stuðningslán á Ísland.is. Stuðningslán eru hluti af viðspyrnuaðgerðum stjórnvalda og er ætlað að styðja við smærri og meðalstór fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli.

    28. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starfshópur greinir efnahagsleg áhrif sóttvarna

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá.

    27. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Helstu skilmálar mögulegrar ríkisábyrgðar á lánsfjármögnun Icelandair Group

    Fjármála- og efnahagsráðherra lagði í fyrradag fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir og frumvarp til fjáraukalaga, til að óska heimildar vegna fyrirhugaðrar ríkisábyrgðar á lánalínu Icelandair í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru. Fyrirgreiðslunni er ætlað að stuðla að áframhaldandi rekstri og tryggja að fullnægjandi árangur geti náðst í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins en þingleg meðferð málanna hefst þegar Alþingi kemur saman í dag.

    26. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    App til að auðvelda endurvinnslu hlutskarpast í nýsköpunarkeppninni Gagnaþon fyrir umhverfið

    Sigurvegarar Gagnaþons fyrir umhverfið voru tilkynntir í beinni útsendingu í dag. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra afhenti verðlaunin ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands og Ara Kristni Jónssyni, rektor Háskólans í Reykjavík

    26. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Gagnaþon fyrir umhverfið: Fjöldi spennandi verkefna í úrslitum sem kynnt verða í dag

    Nýsköpunarkeppnin Gagnaþon fyrir umhverfið stóð yfir dagana 12. - 19. ágúst en í dag verða veitt verðlaun fyrir bestu verkefnin í þremur flokkum keppninnar. Úrslit verða tilkynnt kl 13:00 í beinni útsendingu á Facebook-síðu gagnaþonsins og á Vísi.is. Úrslit tilkynna Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands & Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík.

    25. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoðuð fjármálastefna: ríkissjóði beitt til að auka viðnámsþrótt heimila og fyrirtækja

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um breytingu á gildandi fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022. Tilgangur breytinganna er að styðja við stefnu ríkisstjórnarinnar um að bregðast við efnahagskreppu og koma í veg fyrir þrálátt atvinnuleysi í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru með því að leggja áherslu á að verja og skapa verðmæt störf um allt land á næstu misserum. Markmiðið er samkeppnishæft þjóðfélag þar sem velsæld byggist á öflugum mannauði og kröftugu efnahagslífi.

    21. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,1 milljarð króna milli ára

    Uppfært: Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins um 1,1 milljarð króna og fór úr 2 ma.kr. árið 2019 í tæpa 0,9 ma.kr.árið 2020. Lækkunin nemur 55% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru.

    20. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Samstaðan skilar árangri - grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu

    Frá fyrstu aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna heims­far­ald­urs­ins hafa skila­boð okk­ar verið skýr: Við mun­um beita rík­is­fjár­mál­un­um til að hjálpa fólki og fyr­ir­tækj­um í vanda og skapa skil­yrði fyr­ir vöxt efna­hags­lífs­ins á ný. Lík­lega má full­yrða að eng­inn sé ósnort­inn af af­leiðing­um far­ald­urs­ins, en af­leiðing­arn­ar væru meiri og þung­bær­ari ef ekk­ert væri aðhafst. Þetta kemur fram í grein Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í Morgunblaðinu í dag.

    18. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tölur yfir stöðu efnahagsaðgerða vegna Covid-19

    Stjórnvöld hafa frá því í mars gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að verja grunnstoðir samfélagsins vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, t.d. með hlutastarfaleið, viðbótarlánum, frestun skattgreiðslna, lokunarstyrkjum, greiðsluhléi lána, úttekt séreignarsparnaðar, styrkingu ferðaþjónustu og fleiri aðgerðum. Upplýsingar yfir stöðu aðgerðanna hafa verið settar upp með myndrænum hætti og verða uppfærðar vikulega á vef Stjórnarráðsins héðan í frá eftir því sem breytingar verða á þeim.

    18. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Íslensk stjórnvöld ákveða að veita Icelandair Group ríkisábyrgð á lánalínu

    Eins og tilkynnt hefur verið um, hafa viðræður staðið yfir milli Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda í samvinnu við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka og Landsbankann, um útfærslu á lánalínu með ríkisábyrgð til félagsins.

    14. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnaaðgerða á landamærum

    Meðfylgjandi er minnisblað fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg sjónarmið við ákvörðun um umfang sóttvarnarráðstafana á landamærum sem lagt var fram í ríkisstjórn í dag:

    12. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðlað að aukinni fjárfestingu fyrirtækja og sérstök ívilnun veitt vegna grænna eigna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja fram frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um tekjuskatt, í því skyni að hvetja einkaaðila til fjárfestinga. Sérstök áhersla er lögð á að hvatarnir snúi að fjárfestingum í eignum sem teljast umhverfisvænar og stuðla að grænni umbreytingu (grænum eignum).

    12. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Dómi Héraðsdóms Reykjavíkur vegna ÍLS-veðbréfs áfrýjað til Landsréttar

    Í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir eru í kjölfar nýgengins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3141/2020, um lögmæti uÍ ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir eru í kjölfar nýgengins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3141/2020, um lögmæti uppgreiðslugjalds vegna ÍLS-veðbréfs, hafa stjórnvöld ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar. ppgreiðslugjalds vegna ÍLS-veðbréfs, hafa stjórnvöld ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar.

    12. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla um efnahagsmál Norðurlanda: Spá aukinni landsframleiðslu á næsta ári

    Horfur eru á að landsframleiðsla á Norðurlöndum dragist saman á bilinu 3,1%-7,6% á árinu 2020 vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu og horfur efnahagsmála sem unnin er árlega af fjármálaráðuneytum ríkjanna.

    04. ágú. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins

    Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

    14. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    Umsóknir um stuðningslán komnar í 2,2 milljarða

    Umsókn um stuðningslán var virkjuð á ísland.is 9. júlí s.l. en síðan þá hafa 171 fyrirtæki sótt um grunnlán fyrir allt að 10 m.kr. með 100% ríkisábyrgð. Þar af hafa 56 fyrirtæki til viðbótar sótt um auka-stuðningslán, allt að 40 m.kr. með 85% ríkisábyrgð. Samtals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 milljarða (2.176.000.000).

    12. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stefna um notkun skýjalausna til umsagnar í samráðsgátt

    Notkun skýjalausna er mikilvæg forsenda þess að styðja við stafræn umskipti, auka sjálfvirkni og hækka öryggisstig upplýsinga og upplýsingakerfa hins opinbera. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt drög að stefnu um notkun skýjalausna í samráðsgátt stjórnvalda sem opin verða til umsagnar til 20. desember nk.

    12. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stórauknir hvatar til að styðja við almannaheillastarfsemi

    Stefnt er að því að framlög einstaklinga og atvinnurekenda til almannaheillastarfsemi aukist verulega með nýju frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðherra mælti fyrir málinu á Alþingi í síðustu viku, en tillögurnar snúa bæði að auknum hvötum til að styðja við aðila í almannaheillastarfsemi og léttari skattbyrði aðilanna sjálfra.

    10. júl. 2020Dómsmálaráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármálaáætlun, Almannaöryggi

    Fjármálaáætlun 2021-2025: Áhersluatriði dómsmálaráðuneytisins

    Efling löggæslu, rafræn þjónusta og hagkvæmari rekstur viðbragðsaðila eru meðal helstu áherslumála dómsmálaráðuneytisins í fjármálaáætlun 2021-2025.

    07. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Björgvin Víkingsson skipaður forstjóri Ríkiskaupa

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Björgvin Víkingsson sem forstjóra Ríkiskaupa frá og með 1. september n.k.

    05. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greining á mögulegri stærðargráðu áfalls vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið greiningar sem miða að því að varpa ljósi á mögulega stærðargráðu áfallsins sem hagkerfið stendur frammi fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    05. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ný arðgreiðslustefna fyrir Landsvirkjun: 10 milljarða króna arðgreiðsla á árinu 2020

    Ný arðgreiðslustefna Landsvirkjunar var samþykkt á fundi stjórnar fyrirtækisins í lok apríl sl. Á grundvelli hennar gerði stjórnin tillögu þann 20. apríl um að fyrirtækið greiddi 10 milljarða króna til ríkisins, sem er eini eigandi Landsvirkjunar og féllst aðalfundur á þessa ráðstöfun undir lok mánaðarins.

    04. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Aukin fjárfesting á Suðurnesjum

    Í samræmi við heimildir í fjáraukalögum fyrir árið 2020 hefur fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um 4 milljarða króna með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

    03. júl. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áframhaldandi samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um stafræna þróun

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær þátt í fundi norrænu ráðherranefndarinnar um stafræn málefni, sem haldinn var í Kaupmannahöfn.

    26. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nær allar mótvægisaðgerðir vegna heimsfaraldurs komnar til framkvæmda

    Nær allar mótvægisaðgerðir sem gripið hefur verið til vegna heimsfaraldurs kórónuveiru eru komnar til framkvæmda. Eftir stendur greiðsla launa á uppsagnarfresti, en stefnt er að því að fyrsti hluti komi til greiðslu fyrir 20. júlí, og stuðningslán þar sem verið er að leggja lokahönd á umsóknargátt.

    24. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Afgreiðsla lokunarstyrkja gengur vel - ánægja með úrræði stjórnvalda

    Um 170 umsóknir um lokunarstyrki hafa borist frá því opnað var fyrir umsóknir 12. júní. Af þeim hafa 75% verið afgreiddar og styrkfjárhæð að upphæð 137 m.kr. greidd út. Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið má búast við færri umsóknum en upphaflegt mat gerði ráð fyrir.

    11. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Skýrsla um nýtingu úrræða í heimsfaraldri: Hátt í 40 milljarðar í beinan stuðning til heimila og fyrirtækja

    Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma.kr. í beinan stuðning vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að því er fram kemur í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 ma.kr. farið í frestun skattgreiðslna, 20 ma.kr. í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 ma.kr. hafa verið lánaðir með ríkisábyrgð. Heimilin munu auk þess hafa fengið fyrirframgreiddan um 21 ma.kr. úr séreignarsparnaði fyrir árslok.

    11. jún. 2020Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja

    nóvember 2020 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja Heimili og fyrirtæki hafa til þessa fengið 38,2 ma. kr

    11. jún. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Rekstur og eignir ríkisins

    Meiri umsvif í hagkerfinu í þriðju bylgju faraldursins

    Umsvif í hagkerfinu eru mun meiri nú en í fyrstu bylgju heimsfaraldursins. Neysla Íslendinga innanlands er nú svipuð og á sama tíma í fyrra en í fyrstu bylgju faraldursins dróst hún saman um 20%. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað töluvert sem líklega endurspeglar aukna fjarvinnu.

    29. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starfshópur tryggir eftirfylgni efnahagsaðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar í dag að skipa starfshóp undir formennsku fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að tryggja eftirfylgni efnahagsaðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveiru en stjórnvöld hafa brugðist við faraldrinum með víðtækum efnahagsaðgerðum sem fela í sér fyrirgreiðslur til fyrirtækja og starfsfólks þeirra í gegnum vinnumarkaðs-, skatta-, og lánaúrræði, fjárfestingu hins opinbera, stuðning við nýsköpun og fjölbreyttan stuðning á sviði mennta- og félagsmála.

    29. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung 2020

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2020 liggur fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vefsíðu Fjársýslu ríkisins. Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs eru

    29. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álagning opinberra gjalda á einstaklinga fyrir 2019 birt

    Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga sbr. auglýsingu og frétt á vef Skattsins. Álagningin 2020 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2019 og eignastöðu þeirra 31. desember 2019.

    28. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sviðsmyndir um mögulegar afkomu- og skuldahorfur ríkissjóðs og hins opinbera

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um opinber fjármál sem felur í sér að veitt verði nauðsynlegt ráðrúm í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru til þess að undirbúa endurskoðun fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022, gerð fjármálaáætlunar fyrir árin 2021–2025 og fjárlagafrumvarps fyrir árið 2021 og leggja fram samhliða á þingsetningarfundi haustið 2020, svo og þær skattalagabreytingar og aðrar ráðstafanir í ríkisfjármálum sem því fylgja.

    27. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður gefur út skuldabréf í evrum

    Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði um 76 milljarða króna. Skuldabréfin bera 0,625% fasta vexti og voru gefin út til 6 ára á ávöxtunarkröfunni 0,667%.

    26. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Þriðja fjáraukalagafrumvarpið lagt fram

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram þriðja fjáraukalagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra á þessu ári, til að bregðast við aðstæðum sem skapast hafa vegna COVID-19

    26. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálastefna, -áætlun og -frumvarp lögð fram samhliða í haust

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um opinber fjármál.

    22. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch Ratings staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs en breytir horfum í neikvæðar

    Fitch Ratings hefur breytt horfum fyrir lánshæfismat ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs var staðfest og er því óbreytt.

    22. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að áætla fjárhæðir stuðningslána og lokunarstyrkja í reiknivél á Ísland.is

    Fyrirtæki geta nú kannað hvernig þau falla undir úrræði sem stjórnvöld hafa kynnt vegna Covid-19 í reiknivél á vefnum Ísland.is. Senn verður opnað fyrir móttöku umsókna um lokunarstyrki og stuðningslán á vefnum, auk þess sem þar er að finna upplýsingar um viðbótarlán.

    20. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mótvægisráðstafanir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru kynntar í ríkisstjórn

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í ríkisstjórn í gær umfang mótvægisráðstafana stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Á síðustu vikum hafa forsendur almennt breyst í þá veru að áhrif faraldursins verði djúpstæðari og langvinnari en áður var gert ráð fyrir og að sama skapi hafa afkomuhorfur versnað.

    15. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningur vegna greiðslu launakostnaðar á uppsagnarfresti

    Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra sem kveður á um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti var samþykkt af ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna í dag. Frumvarpinu er ætla að koma til móts við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir verulegri fjárhagslegri röskunar á atvinnurekstri vegna farsóttarinnar. Markmið stuðningsins er að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og tryggja réttindi launafólks.

    14. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mikill kippur í kortanotkun og vegaumferð eykst eftir rýmkun samkomubanns

    Umsvif í hagkerfinu hafa tekið vel við sér á ný samhliða því sem faraldur COVID-19 hér á landi hefur rénað og samkomubann var rýmkað. Vegaumferð og kortavelta drógust mikið saman í upphafi faraldursins en greinileg vatnaskil urðu í seinni hluta apríl þegar umsvif byrjuðu að aukast á ný.

    13. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Virðisaukaskattur greiddur óháð uppruna þjónustu

    Í tilefni af umfjöllun um útboð á kynningarverkefnum á vegum stjórnvalda vill fjármála- og efnahagsráðuneytið árétta að virðisaukaskattur er greiddur af vöru eða þjónustu óháð því hvaðan hún er keypt. Meginreglan er sú að seljandi innheimti skattinn af kaupanda og skili honum í ríkissjóð en í þeim tilvikum þar sem vara eða þjónusta er keypt að utan fellur skattskyldan á kaupandann.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband