Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 562
    Raða eftir:
    15. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ályktað um lausnir við áskorunum í umhverfismálum, sjálfbæra neyslu og plast í hafi á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna

    Umhverfisráðherrar heimsins ályktuðu m.a. um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, úrgangsstjórnun og sjálfbæra nýtingu lands á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Einnig voru fjölmargar ályktanir um tiltekin málefni samþykktar, þar á meðal ályktun um ferli til að ná á alþjóðavísu utan um plastmengun í hafi og örplast. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið þátt í fjölda leiðtogaumræðna, funda og annarra viðburða á þinginu.

    14. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Ósjálfbær neysla okkar hefur alvarleg áhrif á umhverfi og loftslag“ – ráðherra ávarpaði Umhverfisþing SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Neysla, sóun, náttúruvernd og barátta gegn plastmengun var meðal þess sem ráherra lagði áherslu á.

    05. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tók á móti skýrslu um norrænt utanríkismálasamstarf

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk í dag afhenta skýrslu norrænna alþjóðamálastofnana um framkvæmd tillagna Thorvalds Stoltenbergs um aukið samstarf Norðurlandanna í utanríkis- og öryggismálum. Skýrslan markar tíu ára afmæli Stoltenberg-tillagnanna svonefndu frá árinu 2009 um aukið samstarf Norðurlandanna á þessu sviði.

    26. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukin framlög Íslands til bágstaddra í Jemen

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti um 30 milljóna króna viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar í Jemen á alþjóðaráðstefnu sem nú stendur yfir í Genf. Heildarframlög íslenskra stjórnvalda til Jemen nema þá um 85 milljónum króna það sem af er ári. Guðlaugur átti einnig fund með Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.

    05. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með Theresu May

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, í Downingstræti 10 í morgun.

    18. jan. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Flug og flugvellir, Embassy of Iceland in Tokyo, Samgöngur og fjarskipti, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Tókýó, Sendiskrifstofa, Heimasendiherrar

    Samkomulag við japönsk yfirvöld greiðir fyrir beinum flugsamgöngum

    Á fundi sendinefndar utanríkis- og samgönguráðuneytis við japönsk samgönguyfirvöld náðist samkomulag sem greiðir fyrir beinu áætlunar- og leiguflugi milli Íslands og Japans.

    10. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið komin út

    Starfshópur skipaður af utanríkisráðherra hefur skilað skýrslu sinni um aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í dag.

    05. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með Jeremy Corbyn og tekur þátt í umræðum um framtíðaráskoranir í atvinnumálum og um velsældarhagkerfi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Jeremy Corbyn, formanni Verkamannaflokksins og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, í breska þinginu í dag.

    04. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

    Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland aðili að alþjóðasamþykkt um farendur

    Ísland tók þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga (e. Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration) á sérstakri ríkjaráðstefnu í Marrakesh í Marokkó.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Evrópusamvinna, Þróunarsamvinna, Alþjóðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra kjörinn varaformaður eigendanefndar EBRD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var kjörinn varaformaður eigendanefndar Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) á ársfundi bankans sem haldinn var við Dauðahafið í Jórdaníu dagana 9-10.maí.

    31. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Samgöngur og fjarskipti

    Umhverfis- og auðlindaráðherra sótti fund evrópskra ráðherra um sjálfbærar samgöngur

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sótti óformlegan fund umhverfis- og samgönguráðherra Evrópuríkja í Graz í Austurríki, 29.-30. október.

    29. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðstefna Atlantshafsbandalagsins um afvopnun og takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna hafin

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á afvopnun og frið í ræðu sinni á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins um takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna og afvopnun sem hófst í Reykjavík í morgun. Varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins flutti einnig ávarp við upphaf ráðstefnunnar.

    26. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum um Brexit

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í vikunni fundi með breskum ráðamönnum um framgang samninga vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

    16. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Alþjóðamál

    Minningarathöfn markar upphaf Trident Juncture 2018 á Íslandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og James E. Foggo aðmíráll leiddu í morgun minningarathöfn um þau sem létu lífið vegna átaka á Atlantshafi í síðari heimsstyrjöld. Athöfnin markar upphaf varnaræfingarinnar Trident Juncture 2018 á Íslandi.

    25. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í dag í 73. sinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var viðstaddur setningu þingsins.

    15. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Landbúnaður, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Norski utanríkisráðherrann í vinnuheimsókn

    Utanríkisráðherra Noregs heimsótti í dag bændur í Borgarfirði sem ætla að selja hey til norskra bænda. Þau Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ræddu ýmis málefni í vinnuheimsókn hennar hingað til lands.

    12. júl. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland tekur þátt í alþjóðasamþykkt um farendur

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að Ísland tæki þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga. Gerðir verða ákveðnir fyrirvarar við samþykktina þar sem túlkun Íslands verður áréttuð, í samræmi við það sem helstu grannríki gera.

    29. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Utanríkismál, Alþjóðamál, Barnaréttur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Bragi kjörinn í barnaréttarnefnd SÞ

    Bragi Guðbrandsson var í dag kjörinn í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi aðildarríkja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í New York í dag.

    25. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ráðherrafundi EFTA á Sauðárkróki lokið

    Fríverslunarsamningur við Ekvador og uppfærður fríverslunarsamningur við Tyrkland voru undirritaðir á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu sem haldinn var á Sauðárkróki í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra stýrði fundinum en Ísland fer með formennsku í EFTA um þessar mundir.

    25. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með efnahagsmálaráðherra Tyrklands

    Mannréttindi og mál Hauks Hilmarssonar voru á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Nihat Zeybekci, efnahagsmálaráðherra Tyrklands, ræddu á fundi í Skagafirði í morgun. Guðlaugur Þór kom ennfremur á framfæri gagnrýni á hernað Tyrkja í Norður-Sýrlandi.

    19. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ráðherra leiddi umræður um viðskiptamál á fundi með Visegradríkjum

    Staða mála gagnvart Rússlandi, öryggis- og varnarmál, samskiptin við Bandaríkin og þróun mála í Evrópu voru á meðal dagskrárefna á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegradríkjanna svonefndu (Póllands, Ungverjalands, Slóvakíu og Tékklands) í Stokkhólmi sem lauk nú fyrir stundu.

    18. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins lokið

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, lagði áherslu á mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu og frjálslynd og lýðræðisleg gildi á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Stokkhólmi í dag.

    04. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Lög og réttur, Evrópusamvinna, Alþjóðasamningar, Lagasetning, Utanríkisviðskipti, Alþjóðamál

    Ísland bætir frammistöðu sína við innleiðingar

    Innleiðingahalli Íslands hvað varðar EES-tilskipanir er nú 1,8 prósent en var í maí 2017 2,2 prósent. Ísland er þó enn í neðsta sæti þegar innleiðingarhalli EES-ríkjanna er tekinn saman.

    18. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherrafundi Evrópuráðsins lokið

    Árlegur ráðherrafundur Evrópuráðsins var haldinn í Helsingør í Danmörku í dag en Danir hafa farið með formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins síðastliðið hálft ár. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu, fór fyrir sendinefnd Íslands.

    16. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Umhverfi og náttúruvernd

    Viljayfirlýsing um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda

    Guðlaugur Þór Þórðarson undirritaði í dag viljayfirlýsingu um samstarf við Alþjóðabankann á sviðii sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda og málefna hafsins. Staða Íslands í breyttu öryggisumhverfi var meginþema í ræðu sem hann flutti hjá hugveitunni CSIS í Washington fyrr í dag.

    15. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra átti fund með Mattis í Pentagon

    Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum og innan Atlantshafsbandalagsins voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Washington í dag.

    15. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Málefni frumbyggja á norðurslóðum í brennidepli

    Málefni frumbyggja, sjálfbær samfélög og sameiginlegar áskoranir á norðurslóðum voru til umræðu á málstofu í Norræna húsinu í dag. Utanríkisráðherra lagði í opnunarávarpi áherslu á að samvinna yrði lykilstef í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.

    27. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Eining er undirstaða NATO-samstarfsins

    Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu samskiptin við Rússland, ástandið í Sýrlandi, stuðning við Írak og Afganistan auk stækkunarstefnu bandalagsins á fundi sínum sem lauk nú síðdegis í Brussel. Fundinum var slitið með fundarhamri sem Íslendingar gáfu á sínum tíma.

    24. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Flóttafólk, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðherra ræddi Sýrland og Jemen á allsherjarþingi SÞ

    Staða mála í Sýrlandi og Jemen og ábyrgð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, gerði að umtalsefni í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag.

    20. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Netöryggi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Brexit

    Utanríkisráðherra ræddi Brexit við Davis

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti fund með David Davis, ráðherra útgöngumála í bresku ríkisstjórninni, í London í gær þar sem þeir ræddu gang viðræðna Breta og Evrópusambandsins um Brexit og fóru yfir áhrif útgöngunnar á Ísland og önnur EES-EFTA ríki.

    18. apr. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norrænir utanríkisráðherrar funduðu í Stokkhólmi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fund utanríkisráðherra Norðurlanda sem haldinn var í Stokkhólmi í dag. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins og helstu málefni á alþjóðavettvangi, þar á meðal stríðið í Sýrlandi, voru á meðal umræðuefna á fundinum.

    13. apr. 2018Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í dag Alþingi skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál. Skýrslan gefur greinargott yfirlit yfir stöðu utanríkismála Íslands og helstu atburði á þeim vettvangi undanfarna tólf mánuði, með áherslu á þær breytingar sem nú eru til framkvæmdar í utanríkisþjónustunni.

    26. mar. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Aðgerðir íslenskra stjórnvalda vegna árásar í Salisbury

    Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið taka þátt í samstilltum aðgerðum vestrænna ríkja vegna efnavopnaárásar í enska bænum Salisbury

    15. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Aukin áhersla á Norður-Atlantshafið

    Varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins lauk í dag

    10. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með aðalframkvæmdastjóra UNESCO

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi framboð Íslands til framkvæmdastjórnar UNESCO og lýsti áhuga á enn nánara samstarfi á fundi með aðalframkvæmdastjóra UNESCO í París í morgun. Ráðherra fundaði jafnframt með stjórnendum OECD og tók svo þátt í rakarastofuráðstefnu um jafnréttismál í höfuðstöðvum stofnunarinnar.

    07. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðherrarnir ræddu öryggismál

    Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í næstu viku voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag.

    10. jan. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Utanríkismál

    EES-mál í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Frakklands

    Öryggismál á norðurslóðum, EES-mál, útganga Breta úr Evrópusambandinu og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands í París í morgun.

    28. des. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir

    Utanríkisráðherra endurnýjar samning við Norðurslóðanet Íslands

    Í dag undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Eyjólfur Guðmundsson formaður stjórnar Norðurslóðanets Íslands og rektor Háskólans á Akureyri endurnýjaðan samstarfssamning til fjögurra ára.

    27. nóv. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál, Barnaréttur, Mannréttindi og jafnrétti

    Ársskýrsla formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu 2016-2017

    Í ársskýrslunni er farið yfir helstu verkefni og viðburði á formennskutímabilinu, en áherslur Íslands lutu að jafnréttismálum, lýðræði og málefnum barna.

    26. okt. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Samið um samstarf vegna neyðartilvika erlendis

    Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri undirrituðu samning um samstarf þegar upp koma neyðartilvik erlendis sem varða íslenska ríkisborgara.

    13. okt. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Alþjóðamál

    Stjórnmálasamband tekið upp við Cook-eyjar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Henry Puna.forsætisráðherra Cook-eyja, undirrituðu í dag yfirlýsingu um stjórnmálasamband landanna

    29. sep. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ísland leiðir hóp 39 ríkja í mannréttindarráði Sameinuðu þjóðanna

    Ísland ítrekar mikilvægi þess að stjórnvöld á Filippseyjum virði mannréttindi þegna sinna.

    22. sep. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Í ræðu sinni gagnrýndi Guðlaugur Þór meðal annars eldflauga- og kjarnavopnatilraunir Norður-Kóreustjórnar og efnavopnaárásir Sýrlandsstjórnar og lýsti áhyggjum af aðstæðum Rohingya í Myanmar.

    13. sep. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Bláa lífhagkerfið leikur lykilhlutverk

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók þátt í ráðherrafundi um bláa lífhagkerfið í dag í tengslum við World Seafood Congress ráðstefnuna sem nú fer fram í Hörpu. Þá ávarpaði hann sérstakan

    31. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Samstarfssamningur við Færeyjar og Grænland undirritaður

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Poul Michelsen, utanríkisráðherra Færeyja og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands. Á fundinum undirrituðu ráðherrarnir samstarfssamning milli landana .

    31. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ræddi stöðu mála á Kóreuskaganum við varautanríkisráðherra Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Wang Chao, varautanríkisráðherra Kína, sem staddur var hér á landi. Ráðherrarnir ræddu m.a. málefni Norður-Kóreu, mannréttindamál, tvíhliða samskipti og norðurslóðir á fundi sínum.

    25. ágú. 2017Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Brexit

    Umræða um Brexit fyrirferðamikil á fundi NB8 ríkjanna

    Umræða um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit, var fyrirferðarmikil á á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Osló í dag og lagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi þess að forðast nýjar viðskiptahindranir og að samningar næðust á endanum sem allir aðilar gætu vel unað við.

    06. júl. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra ávarpar hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem nú stendur yfir í New York í Bandaríkjunum. Á hafráðstefnunni eru saman komnir leiðtogar heims í umhverfisvernd og málefnum hafsins til að ræða leiðir til að hrinda í framkvæmd heimsmarkmiði SÞ nr. 14, sem lýtur að því að vernda hafið og nýta auðlindir þess á sjálfbæran hátt.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband