26. feb. 2025Utanríkisráðuneytið, Samgöngur, Utanríkismál, Innviðaráðuneytið
Ísland og Georgía undirrita loftferðasamning
Loftferðasamningur milli Íslands og Georgíu var undirritaður í Reykjavík í dag. Þetta er fyrsti loftferðasamningur þjóðanna en undirbúningur að gerð samningsins hófst árið 2018. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Givi Davitashvili, flugmálastjóri Georgíu, undirrituðu samninginn.