05. nóv. 2022Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Almannaöryggi
Styrking lögregluembætta á landsbyggðinni
Dómsmálaráðherra hefur falið sjö lögregluembættum á landsbyggðinni að efla starfslið sitt og auglýsa stöður lögreglumanna. Lögregluumdæmin sem um ræðir eru Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland og Suðurnes.