Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Lög og réttur, Hagsýn í rekstri
Áform um einfaldari og skilvirkari meðferð bótakrafna kynnt í samráðsgátt
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram áform í Samráðsgátt stjórnvalda um lagabreytingar sem miða að því að einfalda meðferð bótakrafna sem gerðar eru á grundvelli laga um meðferð sakamála. Markmið breytinganna er að þeir sem eiga rétt til bóta geti nálgast þær á einfaldari, skýrari og fyrirsjáanlegri hátt og þannig dregið úr þörf fyrir málarekstur. Með því minnkar álag hjá dómstólum og dregið er úr kostnaði.