21. des. 2021Upplýsingatæknimál ríkisins, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Afurð tengist stafrænu pósthólfi
Nú hefur Afurð, greiðslukerfi landbúnaðarins, tengst stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda á Ísland.is. Með þessari breytingu á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið nú í skriflegum samskiptum við bændur í gegnum stafrænt pósthólf en þannig er hægt að senda viðskiptavinum ráðuneytisins bréf sem annars þyrfti að senda með ábyrgðarpósti. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið er fyrsta ráðuneytið sem innleiðir þessa lausn, það er stafræna pósthólfið, í samskiptum við almenning.